

Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.
Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku.
Albert Þór Kristjánsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns í upplýsingatækni og stafrænni þróun á fjármála- og rekstrarsviði og Rakel Másdóttir hefur tekið við stöðu verðstýringar- og verkefnastjóra á verslunar- og mannauðssviði hjá Samkaupum. Þau hafa bæði þegar hafið störf hjá fyrirtækinu.
Karen Björk Eyþórsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri til Transition Labs, loftlagsfyrirtækis í eigu Davíðs Helgasonar og Kjartans Ólafssonar.
Icelandair hefur ráðið þau Ásdísi Sveinsdóttur og Snorra Tómasson í störf forstöðumanna á Tekju-, þjónustu- og markaðssviði félagsins.
Hulda Þórhallsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Klöppum grænum lausnum.
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjölfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála, í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins til 31. mars næstkomandi.
Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra sölu-, markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Arctic Adventures. Hún hefur þegar hafið störf og tekið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Thelma Björk Wilson hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra smásölusviðs Olís. Hún mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Olís.
Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar og fjölmiðlamaður, er genginn til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti.
Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason hafa verið valin leikskáld Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur 2024 til 2026. Tilkynnt var um valið við athöfn í Borgarleikhúsinu í gær þann 11. janúar, á afmælisdegi leikfélagsins, sem fagnaði 127 árum.
Þrír sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar um miðjan síðasta mánuð.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Hún mun hafa aðsetur á skrifstofu sambandsins á Stéttinni, Húsavík.
Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin til að stýra samskipta- og kynningarmálum Advania á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Rúmlega áttatíu manns sóttu um starfið.
Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf.
Um nýliðin áramót tók Brynjar Elefsen Óskarsson við sem forstjóri bílaumboðsins BL ehf.. Hann tekur við af Ernu Gísladóttur, eiganda BL, sem hefur verið forstjóri félagsins síðastliðin 11 ár.
Hjálmar Jónsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Honum bauðst að skrifa undir starfslokasamning en hann hafnaði.
Gestur Steinþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi).
Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna.
Ása Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vinnuverndar. Hún tekur við starfinu af Valgeiri Sigurðssyni sem lýkur störfum eftir átján ár í starfi framkvæmdastjóra eða allt frá stofnun Vinnuverndar árið 2005.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir hefur verið verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Hún hefur þegar hafið störf.
Björg Magnúsdóttir, sjónvarpskona, hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar, verðandi borgarstjóra. Björg hefur verið starfsmaður hjá Ríkisútvarpinu undanfarin tólf ár.
Guðrún Lilja Kristinsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Elvu Rakel Jónsdóttur sem hafði starfað sem framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi frá árinu 2010.
Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins.
Rúnar Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aquatiq á Íslandi. Rúnar hefur starfað fyrir Marel í kvartöld.
Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík.
Berglind Lóa Sigurðardóttir hefur tekið við stöðu vefstjóra hjá Póstinum.
Úlla Árdal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mývatnsstofu og hefur hún þegar hafið störf.
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fyrrverandi aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið fengin til að miðla af sérþekkingu sinni innan dómsmálaráðuneytisins.