Nær ómöglegt að hætta við kaupin Nær ómögulegt er fyrir Landsbankann að hætta við að kaupa TM að mati dósents við Háskóla Íslands. Hætti bankinn við séu allar líkur á að hann baki sér skaðabótaskyldu. Fjármálafyrirtæki hafi undanfarið keypt tryggingafyrirtæki og því ekkert óeðlilegt við kauptilboðið. 21.3.2024 21:00
Fyrirtækjum í Grindavík að blæða út Fyrirtækjum í Grindavík er að blæða út vegna andvaraleysis stjórnvalda að sögn forsvarsmanna tæplega hundrað og fimmtíu fyrirtækja í bænum. Kallað er eftir auknu aðgengi, skýrari svörum og samráði. Eigi Grindavík að lifa áfram sem bæjarfélag þurfi að halda atvinnulífinu gangandi. Bæjarstjórn tekur undir með fyrirtækjunum um aukið aðgengi. 14.2.2024 18:52
Starfsmenn Ægis í Grindavík teknir af launaskrá: Vilja svör um framhaldið Starfsmönnum Ægis sjávarfangs í Grindavík hafa verið teknir af launaskrá og settir á úrræði ríkisins. Um er að ræða álíka úrræði og Vísir í Grindavík er að beita. 14.2.2024 17:52
„Þetta er ástand sem mun örugglega taka nokkra daga að ná tökum á“ Loka hefur þurft fyrir heita vatnið á ný í nokkrum hverfum á Suðurnesjum vegna bilanna í dreifikerfinu. Forstjóri HS veitna segir viðgerðir ganga vel. Stórnotendur á Suðurnesjum eru beðnir um að spara vatn og ekki verður hægt að fara í sund á næstu dögum. 14.2.2024 12:06
„Þetta er allt á hreyfingu“ Björgunarsveitarmaður sem var á vakt í Grindavík í dag segir jörðina enn á hreyfingu í bænum. Hann segist merkja breytingar í þessari frá þeirri síðustu, hús halli meira og merki um jarðhræringar sjáist á malbiki. 13.2.2024 23:12
Fékk flogakast vegna streitu og álags Ung hjón úr Grindavík segja erfitt að taka ákvörðun um að selja ríkinu glænýtt hús sitt í bænum. Það sé útilokað að finna sambærilega eign í nágrenni höfuðborgarsvæðisins fyrir verðið sem þau fá fyrir húsið. Þau segja að álagið undanfarna mánuði hafi tekið mikinn toll af þeim og vonast til að geta snúið einhvern tíma aftur heim. 13.2.2024 20:00
Íbúar í Suðurnesjabæ geti fljótlega byrjað að kynda hús sín Suðurnesjabær enn án hita en vonast er til íbúar geti kynt hús sín um og eftir hádegi að sögn verkstjóra hjá HS veitum. Hiti sé kominn víðast hvar annars staðar á Suðurnesjum. Sérfræðingar hafa farið í fjölda útkalla vegna ástandsins síðasta sólahringinn. 13.2.2024 11:51
Kraftaverk við hitaveitulögnina Íbúar á Reykjanesi ættu allir að vera komnir aftur með heitt vatn á ný í síðasta lagi í nótt. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að um kraftaverk sé að ræða en fjörutíu pípulagningamenn eru í viðbragðsstöðu í kvöld. 12.2.2024 21:42
Blæs á gagnrýni um að ekkert hafi verið gert Forstjóri HS Orku vísar á bug gagnrýni á að ekki hafi verið lögð varalögn við Svartsengi. Vinna síðustu þriggja ára hafi nýst vel. 12.2.2024 18:52
Íbúar verði að vera heima þegar vatnið kemur aftur á Arinbjörn Snorrason, fulltrúi almannavarna, segir mikilvægt að Suðurnesjamenn séu heima hjá sér og fylgist með þegar verið er að hleypa heitu vatni aftur inn á kerfin eftir viðgerð á Njarðvíkurlögn. 12.2.2024 13:27