Vonast til þess að afgerandi niðurstaða hafi áhrif Formaður BSRB segist ekkert sérstaklega bjartsýn fyrir fund bandalagsins með Sambandi íslenskra sveitarfélaga í dag. Hún segir það ekki vera rétt að bandalagið hafi áður hafnað þeim samningi sem þau krefjast nú. 2.5.2023 10:55
Samdi sjö lög á fjórum tímum eftir krabbameinsgreiningu eiginkonunnar Breski söngvarinn Ed Sheeran samdi sjö lög á fjórum klukkutímum eftir að eiginkona hans greindist með krabbamein er hún gekk með annað barn þeirra. Heimildaþættir um Sheeran og hans líf koma út á miðvikudaginn. 1.5.2023 14:50
Lögreglan lýsir eftir Sölva Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sölva Guðmundssyni. Sölvi er nítján ára, tæpir 190 sentimetrar að stærð, grannvaxinn með dökkt, hrokkið hár og brún augu. Hann er klæddur í svartar jogging buxur, ljósa hettupeysu og svartan primaloft jakka með hettu. Hann er í hvítum slitnum Nike skóm. 1.5.2023 14:13
Skutu fjölda eldflauga á Úkraínu í morgun Rússar skutu fjölda eldflauga á úkraínskar borgir í morgun. Að minnsta kosti einn lést í Kherson-héraði en 34 eru slasaðir í Dnipropetrovsk. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræddi við varnarmálaráðherra Úkraínu símleiðis í morgun. 1.5.2023 13:40
Jemenar og Sýrlendingar sitja eftir með sárt ennið Sádi-Arabar hafa unnið hörðum höndum við að koma fólki frá Súdan vegna átaka sem geisa yfir þar í landi. Einungis eru það ríkisborgarar annarra landa en Súdan sem þeir taka á móti en þúsundir manna hafa beðið í höfninni svo dögum skiptir með von um að komast úr landi. 1.5.2023 11:33
JPMorgan taka yfir First Republic-bankann Búið er að selja bandaríska bankann First Republic til annars banka, JPMorgan, eftir að bankinn fór í greiðslustöðvun. Tekur JPMorgan nú við öllum eignum og skuldum First Republic. 1.5.2023 09:45
Féll í klettunum við Kleifarvatn Í nótt féll maður í klettum við Kleifarvatn og svaraði félögum sínum illa á eftir. Tveir sjúkrabílar og fjallabíll slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn og maðurinn sóttur. Hann reyndist töluvert lemstraður og með höfuðáverka. 1.5.2023 08:35
Forsætisráðherraefni fæddi barn tveimur vikum fyrir kosningar Paetongtarn Shinawatra, sem talin er líklegust til að verða næsti forsætisráðherra Taílands, eignaðist barn í morgun, tveimur vikum áður en kosningar þar í landi hefjast. 1.5.2023 08:31
Bjart og níu stiga hiti í dag Bjartviðri verður á sunnanverðu landinu fram undir kvöld í dag og hiti á bilinu núll til níu stig. Norðlæg eða breytileg átt þrír til átta metrar á sekúndu. Norðvestantil verða átta til þrettán metrar á sekúndu. Í kvöld má búast við stöku skúrum og éljum. 1.5.2023 07:48
MasterChef-dómarinn Jock Zonfrillo er látinn Skoski sjónvarpsmaðurinn Jock Zonfrillo er látinn, 46 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem dómari í áströlsku útgáfu MasterChef-þáttanna. 1.5.2023 07:36