Hádegisfréttir Bylgjunnar Forseti Úkraínu þvertekur fyrir að Rússar hafi náð borginni Bakhmút á sitt vald, þrátt fyrir afgerandi yfirlýsingar þeirra þar um í gær. Vafi var þó í fyrstu um afstöðu forsetans eftir svar hans við spurningu fréttamanns á G7-leiðtogafundinum í morgun. Bandaríkjaforseti kynnti þar stóraukinn stuðning við Úkraínu í formi hergagna. Við förum yfir morguninn á G7 í hádegisfréttum Bylgjunnar. 21.5.2023 11:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Félagsmenn BSRB í Garðabæ bættust í dag í stóran hóp félagsmanna sem fara munu í víðtæk verkföll eftir um tvær vikur. Aðgerðirnar ná til 29 sveitarfélaga og meðal annars bitna á sundlaugum, sem víða gætu staðið lokaðar fram eftir sumri. Varaformaður BSRB segir verkföll verstu niðurstöðu sem hann geti hugsað sér. 20.5.2023 18:17
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Bæjarstjóri Akureyrar segir mikil vonbrigði fyrir íbúa Norðurlands að félagið Niceair sé farið í þrot. Of litlum markaði fyrir utanlandsflug frá Akureyri sé ekki um að kenna, heldur öðrum þáttum. Gjafabréf sem fólk á inni hjá félaginu eru líklegast ónýt, að sögn formanns Neytendasamtakanna. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 20.5.2023 11:46
Lentu loksins í Keflavík eftir næstum 40 tíma seinkun Flugvél Icelandair með farþegum innanborðs sem setið höfðu fastir í næstum fjörutíu klukkustundir á flugvellinum í Glasgow tók loks á loft í kringum miðnætti að íslenskum tíma í gærkvöldi og var lent á Keflavíkurflugvelli upp úr tvö í nótt. 20.5.2023 11:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins, en á þriðja tug öryggismyndavéla sem settar voru upp fara hvergi. Við gerum leiðtogafundinn upp í fréttatímanum og ræðum aukið myndavélaeftirlit í kjölfar fundar við borgarfulltrúa í beinni útsendingu. 19.5.2023 18:20
Fólk virtist hrætt við að mæta í bæinn Veitingamaður telur að þungvopnaðir lögreglumenn hafi skotið fólki skelk í bringu og það þess vegna forðast að sækja miðborgina síðustu daga. Miðbærinn hafi verið „skelfilega rólegur“ yfir leiðtogafundinn. 17.5.2023 21:26
Vikudvöl á „versta hóteli Bretlandseyja“ Þegar ljóst varð að Eurovision yrði haldið í Liverpool nú í maí sáu markaðsöflin í borginni sér leik á borði. Verð á gistingu var á meðal þess sem rauk upp úr öllu valdi yfir nýliðna Eurovision-helgi og herbergi bókuðust hratt. Fulltrúar Eurovísis lentu þannig á vægast sagt umdeildum gististað í fréttaferð sinni til Liverpool: hinu sögufræga Hótel Adelphi, því ódýrasta sem bauðst í hjarta borgarinnar. 15.5.2023 09:01
Sjáðu langþráðan Eurovision-flutning Daða Freys Daði Freyr Pétursson flutti í fyrsta sinn lag á Eurovision-sviði í kvöld, þrátt fyrir að hafa í tvígang verið valinn fulltrúi Íslands í keppninni. Daði Freyr heillaði áhorfendur á úrslitakvöldi keppninnar í Liverpool með lagi úr smiðju bresku stúlknasveitarinnar Atomic Kitten. 13.5.2023 22:46
Graham Norton kallaði Einar „svifaseinasta strippara heims“ „Hatari er eins og svifaseinasti strippari heims,“ sagði Eurovision-kynnirinn Graham Norton í Liverpool í kvöld, þegar Hatarinn Einar Hrafn Stefánsson hafði kynnt dómnefndarstig okkar Íslendinga í kvöld. 13.5.2023 22:44
Eurovisionvaktin: Sænskur eða finnskur sigur í kvöld? Sigurvegari Eurovision 2023 verður krýndur í Liverpool í kvöld. Allra augu beinast að framlögum Svíþjóðar og Finnlands sem þykja líklegust til sigurs. Eurovisionvaktin fylgist með gangi mála í allt kvöld, beint frá Liverpool. 13.5.2023 17:08