Vilja stytta vinnuvikuna enn frekar Friðrik Jónsson, formaður BHM segir styttingu vinnuvikunnar hafa tekist mjög vel. Starfsfólk sé ánægt með breytinguna. Nú þurfi vinnulöggjöfin að breytast og óskað sé eftir því að vinnuvikan sé stytt enn frekar. 6.12.2022 23:18
Ekki tímabært að ræða frekari styttingu Ekki er tímabært að ræða frekari styttingu á vinnuvikunni líkt og verkalýðshreyfingin kallar eftir, að mati fjármálaráðherra. Hann segir útfærsluna hafa verið áskorun. 6.12.2022 19:20
Netþrjótar herja á fólk í aðdraganda jólanna Netþrjótar hafa undanfarið herjað á viðskiptavini Póstsins og eru dæmi um að fólk hafi orðið fyrir tjóni vegna þessa. 5.12.2022 22:00
Framlögin tveir milljarðar króna Heilbrigðisráðherra segir framlög til Sjúkratrygginga Íslands hafa aukist á sama tíma og stofnunin hafi aukist að umfangi. Forstjóri Sjúkratrygginga hefur sagt störfum upp þar sem hann telur sig ekki geta borið ábyrgð á rekstri stofnunarinnar vegna vanfjármögunar. 5.12.2022 20:00
Vilja samþætta þjónustu fyrir aldraða Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að gera eldra fólki kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu lengur. Liður í því er sérstök aðgerðaráætlun um endurskoðun á þjónustu við eldra fólk. 5.12.2022 19:23
„Við hefðum ekki getað verið heppnari“ Þúsundir flykktust að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli þegar eldgos hófst þar á ný í ágúst. Í þetta sinn voru engar samkomutakmarkanir líkt og árið áður og því fátt sem kom í veg fyrir að erlendir ferðamenn gerðu sér ferð til að skoða gosið. Eldgosið stóð undir væntingum og gerði marga agndofa. 5.12.2022 07:00
Mikilvægt að ná samningum sem fyrst Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að ná samningum við sérgreinalækna sem fyrst en sumir þeirra hafa hækkað verðskrár sínar vegna skorts á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Það sé vont að vita til þess að það eigi að rukka allt að tvö hundruð þúsund krónur fyrir aðgerðir sem áður kostuðu mun minna. 30.11.2022 21:00
„Farið ofan í vasa fólks sem stendur veikt fyrir“ Það er á ábyrgð stjórnvalda að koma í veg fyrir að kostnaðurinn vegna skorts á samningi við sérgreinalækna falli á veikt fólk. Þetta segir þingmaður Samfylkingarinnar og bætir við að margfaldur kostnaður sjúklinga vegna ástandsins sé algjörlega óboðlegur. 30.11.2022 12:31
Aðgerðin fimm sinnum dýrari eftir mánaðamótin Átján ára stúlka, sem á þarf að fara í aðgerð á krossbandi í desember, þarf að greiða ríflega hundrað og þrjátíu þúsund krónum meira fyrir aðgerðina en ef hún hefði farið í hana núna í nóvember. Samningsleysi á milli sérgreinalækna og Sjúkratrygginga Íslands er sagt skýra þessa hækkun. 29.11.2022 19:02
„Þeir virðast vera bara með nóg af vopnum“ Lögregla hefur lagt hald á töluvert af vopnum í tengslum við rannsókn á árásinni á skemmtistaðnum Bankastræti Club. Þar á meðal skotvopn. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir átökin undanfarna daga snúast um völd. 23.11.2022 18:47