Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE lokið Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE í Vestmannaeyjum er nú lokið. Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir lögreglu hafa lokið rannsókn sinni nýlega, í lok sumars, og hafi þá sent málið til ákærusviðs. Hann á von á ákvörðun þeirra á næstu vikum. 6.9.2024 09:04
Ekki hægt að fara í skurðaðgerð til að losna við fíknisjúkdóminn Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ segir nýjan samning samtakanna við Sjúkratryggingar Íslands tímamótasamning. Samningurinn felur í sér fimmfalda aukningu á aðgengi að lyfjameðferð hjá SÁÁ fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóðafíkn. 6.9.2024 06:45
Kennir börnum að verjast stunguárás án leyfis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við mann sem hefur kennt börnum í Kópavogi að verjast hnífaárás og að nota kylfur og sverð. Maðurinn birti myndbönd af sjálfum sér í gær og í dag með kylfur og hnífa á leikvelli við ærslabelg við Gerðasafn í Kópavogi. 5.9.2024 14:00
Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. 5.9.2024 13:15
Barnier nýr forsætisráðherra Frakklands Michel Barnier verður næsti forsætisráðherra Frakklands. Emmanuel Macron, forseti landsins, tilkynnti um það í morgun. Barnier var áður aðalsamningamaður Evrópusambandsins og leiddi til dæmis samningaviðræðurnar þegar Bretar gengu úr úr samningu, Brexit. 5.9.2024 11:49
Grunur um íbúðir í óleyfi stoppar frekari framkvæmdir Theódóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, segir mikilvægt að byggingafulltrúi fái heimild til að skoða hús að Melgerði á Kársnesi áður en gefið verður leyfi til að byggja við húsið. Eigandi hefur óskað eftir leyfi til að stækka húsið þannig það verði tvær íbúðir. Skipulagsráð frestaði í vikunni afgreiðslu málsins. 5.9.2024 10:00
Flúðu heimili sitt eftir líkamsárás og umsátur Nýbakaðir foreldrar þurftu í vikunni að flýja heimili sitt á Akureyri í kjölfar líkamsárásar og umsáturs um helgina. Þau leita vitna að árásinni sem átti sér stað á föstudagskvöld við Íþróttahöllina á Akureyri. Þau hyggjast leggja fram kæru vegna árásarinnar og umsátursins í dag. 4.9.2024 17:02
„Við þurfum ekki að vera með hníf hérna í höfuðborginni“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir vopnaburð hafa aukist og samhliða því stunguárásis. Hann segir það orðið afar algengt að lögreglan leggi hald á hnífa í útköllum sem ekki tengist vopnaburði. Flestir sem beri hnífa beiti þeim ekki en það sé samt líklegra að einhver beiti hníf ef hann er með hníf á sér. Hann segir lausnina við vandamálinu ekki að refsa bara. Það verði að finna fleiri leiðir. 4.9.2024 10:49
Alvarlegt þegar harðkjarninn íhugar að kjósa ekki flokkinn Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir alvarlega stöðu komna upp í flokknum þegar harðkjarna Sjálfstæðismenn hugsi um að kjósa hann ekki í næstu kosningum. Páll var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og ræddi möguleikann á DD framboði í næstu Alþingiskosningum. 4.9.2024 08:41
Byggja „risagagnaver“ : Endurnýta varma í upphitun húsa og gróðurhúsa Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hyggst byggja sitt stærsta gagnaver til þessa í bænum Ølgod í Varde á Vestur Jótlandi í Danmörku. Í því verður sérstök áhersla á fyrirtæki sem nota mikið magn gagna. Gert er ráð fyrir að endurnýta varma frá gagnaverinu til að hita upp hús og aðra starfsemi í nágrenni við gagnaverið. 4.9.2024 07:52