KSÍ

KSÍ og ÍTF ætla að efla samskiptin: „Knattspyrnunni á Íslandi til heilla“
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, og Íslenskur toppfótbolti, ÍTF, hafa sent frá sér sameiginlega viljayfirlýsingu um bætt samstarf og samskipti.

„Í íþróttum er ekkert búið fyrr en það er búið að flauta af“
Þorvaldur Örlygsson segir að fyrstu dagarnir á skrifstofunni sem formaður KSÍ hafi verið viðburðaríkir. Hann var mættur til vinnu strax á sunnudagsmorgninum.

Tveir nýir varaformenn hjá KSÍ
Þorvaldur Örlygsson var kjörinn formaður KSÍ á 78. ársþingi KSÍ um helgina og nú hefur verið ákveðið hverjir verða varaformenn hans.

Jörundur Áki verður framkvæmdastjóri meðan leitað er að eftirmanni Klöru
Ný stjórn Knattspyrnusambands Íslands fundaði í dag og þar var rætt um stöðu framkvæmdastjóra en Klara Bjartmarz, sem hefur sinnt embættinu síðan 2015, lætur af störfum þann 1. mars.

Þrumuræðan sem tryggði Þorvaldi formannsstól KSÍ: „Ég býð ykkur annan valkost en afturhvarf til fortíðar“
Þorvaldur Örlygsson var um síðastliðna helgi kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands. Þorvaldur flutti kraftmikla framboðsræðu sem hreyfði eflaust við fundargestum áður en gengið var til kjörkassa. Þar boðaði hann breytingar og framfarir, lýsti yfir óbeit sinni á óheiðarleika og sagði KSÍ ekki eiga að vera klíkuskap á kaffihúsum.

Vel undirbúinn Þorvaldur horfir fram veginn
Þorvaldur Örlygsson var í dag kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi sambandsins sem haldið var í Framheimilinu. Tvær umferðir þurfti til að skera úr um sigurvegara kosninganna.

Máni meðal þeirra sem komst í stjórn KSÍ
Kosið var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, á 78. ársþingi sambandsins í dag. Alls voru sjö karlmenn sem buðu sig fram en eins og áður hefur verið greint frá var engin kvenmaður sem bauð sig fram.

Þorvaldur Örlygsson nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands
Þorvaldur Örlygsson var nú rétt í þessu kosinn formaður KSÍ, Knattspyrnusambands Íslands, en hann hafði betur gegn Guðna Bergssyni og Vigni Má Þormóðssyni í formannskjörinu.

Leikmenn verða ekki launþegar og fá ekki fjögurra vikna frí
Leikmannasamtök Íslands fengu hugmyndum sínum ekki framfylgt á 78. ársþingi KSÍ. Tillögu um launþegasamninga leikmanna var vísað frá og tillaga um sumarfrí var felld með afgerandi hætti.

Unga konan sem kærði Albert muni eyða ævinni í að vinna úr málinu
Lögmaður konunnar sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot skoðar nú hvort kæra skuli ákvörðun héraðssaksóknara um að láta málið niður falla til ríkissaksóknara. Málið hafi verið afar erfitt fyrir ungu konuna, sem muni eyða ævinni í að vinna úr því.

Tillaga ÍTF felld og enginn stjórnarmaður KSÍ má starfa fyrir aðildarfélag
Lagabreyting var gerð á 78. ársþingi Knattspyrnusambands Íslands. Héðan í frá má enginn stjórnarmaður KSÍ sitja í stjórn eða ráðum hjá aðildarfélögum sambandsins, en hingað til hafði fulltrúi Íslensks toppfótbolta verið undanskilinn þeim reglum.

Sérstök hvatning veitt Grindvíkingum á ársþingi KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands veitti Ungmennafélagi Grindavíkur sérstaka hvatningu vegna þeirra áskorana sem Grindvíkingar hafa staðið og standa enn frammi fyrir.

Mál Alberts látið niður falla
Héraðssaksóknari hefur fellt niður kynferðisbrotamál gegn knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni. Síðasta sumar var hann kærður fyrir kynferðisbrot.

Vanda kveður: „Munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ“
Á morgun, laugardag, fer ársþing Knattspyrnusambands Íslands fram. Þar mun Vanda Sigurgeirsdóttir láta af störfum sem formaður sambandsins.

Frambjóðendur um Ísraelsleikinn: „Undir UEFA komið að taka þessa ákvörðun“
Frambjóðendur til formanns KSÍ eru á því að Ísland eigi að spila leikinn gegn Ísrael í umspili um sæti á EM í Þýskalandi í næsta mánuði.

Guðni og Vignir með svipað fylgi | Gæti þurft að kjósa tvisvar
Formannsframbjóðendur KSÍ voru í Pallborði dagsins á Vísi og í þættinum var birt niðurstaða könnunar íþróttadeildar meðal aðildarfélaga KSÍ. Það er að segja þeirra sem munu kjósa á ársþinginu á laugardag.

Guðni: Hefði ég átt að fara í þetta viðtal? Nei
Guðni Bergsson, frambjóðandi í formannskosningu Knattspyrnusambands Íslands, svaraði í dag fyrir gagnrýni á störf sín þegar hann var áður formaður KSÍ. Guðni segir að málin sem urðu til þess að hann hafi sagt af sér hafi tekið mikið á sig og sína. Segist hafa tekið ábyrgð með því að hætta sem formaður og að hann sé nú reynslunni ríkari.

Svona var Pallborðið með frambjóðendum til formanns KSÍ
Frambjóðendur til formanns Knattspyrnusambands Íslands mættust í Pallborðinu á Vísi í dag.

Varar við afturhvarfi KSÍ: „Mikilvægara var að verja ofbeldismenn en brotaþola“
„Það er óbærilegt ef barátta hugrakkra brotaþola gegn ofurefli frægðar og vinsælda verður til lítils og allt verður eins og áður,“ skrifar Drífa Snædal, talskona Stígamóta, í grein á Vísi. Tilefnið er kjör á nýjum formanni Knattspyrnusambands Íslands og ósk um fullvissu þess að sambandið taki ekki skref aftur á bak í jafnréttisbaráttunni, í gamalt far.

Formannsframbjóðendur í Pallborðinu
Pallborðið verður á Vísi klukkan 14.00 í dag og að þessu sinni mæta mennirnir sem berjast um formannsstólinn hjá KSÍ.

KSÍ ræður lögmann í slaginn við ÍSÍ
Knattspyrnusamband Íslands hefur ekki fengið krónu úr Afrekssjóði Íþrótta- og ólympíusambands Íslands síðustu sjö ár, öfugt við öll önnur íþróttasérsambönd á Íslandi. Þolinmæði KSÍ er á þrotum og hefur sambandið ráðið lögmann vegna málsins.

Bónusar landsliðsfólks helmingi lægri og færri leikir eftir mikið tap KSÍ
Leikir knattspyrnulandsliða Íslands verða enn færri í ár en í fyrra, eða alls tíu leikjum færri, og greiðslur til leikmanna A-landsliðanna helmingi lægri, samkvæmt fjárhagsáætlun Knattspyrnusambands Íslands. Sambandið þarf að rétta af reksturinn eftir 126 milljóna tap á síðasta ári.

KSÍ tapaði 126 milljónum króna
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, birti í dag ársreikning sinn fyrir árið 2023 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.

KSÍ auglýsir eftir lukkukrökkum
Knattspyrnusamband Íslands býður nú börnum á aldrinum 6-10 ára upp á tækifæri til að leiða leikmenn kvennalandsliðsins inn á Kópavogsvöll, fyrir leikinn mikilvæga við Serbíu um sæti í A-deild Þjóðadeildar UEFA.

Konur hverfa úr forystu KSÍ og aðeins karlar í framboði
Nú er orðið ljóst að þrjár konur sem verið hafa í fararbroddi Knattspyrnusambands Íslands síðustu ár munu kveðja sambandið í þessum mánuði.

Vara við að sumarfrí valdi tekjumissi frá veðmálum
Tillaga Leikmannasamtaka Íslands um að knattspyrnufólk á Íslandi fái sumarfrí ár hvert virðist falla í nokkuð grýttan jarðveg hjá nefndum Knattspyrnusambands Íslands. Það er meðal annars talið valda tekjumissi vegna veðmálaréttinda.

Vilja breyta reglum eftir mál Arnars
Stjórn Íslensks Toppfótbolta hefur lagt fram tillögu til ályktunar á ársþingi KSÍ síðar í mánuðinum. Tillagan kemur til eftir kærumál vegna leikbanns Arnars Gunnlaugssonar á síðustu leiktíð.

Harðneituðu að spila í Ísrael: „UEFA steig sem betur fer inn“
Ísraelska knattspyrnusambandið pressaði stíft á KSÍ og UEFA að fá að halda umspilsleik karlalandsliða Íslands og Ísrael í heimalandinu. KSÍ harðneitaði ítrekuðum beiðnum og UEFA ákvað að leikurinn skyldi haldinn á hlutlausum velli.

Afar ólíkar tillögur KSÍ og ÍTF um kjörgengi
Ljóst er að stjórn KSÍ (Knattspyrnusambands Íslands) er á öndverðum meiði við stjórn ÍTF (Íslensks toppfótbolta) hvað varðar kjörgengi stjórnarmanna KSÍ. Tvær ólíkar tillögur liggja fyrir ársþingi KSÍ sem fram fer eftir rúmar tvær vikur.

„Ætla ekki að vera inni á skrifstofu KSÍ milli níu og fimm alla daga“
Vignir Már Þormóðsson, sem hefur yfir að skipa mikilli reynslu af störfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á komandi ársþingi sambandsins.