Skipulag

Milljarða króna uppbygging í Þjórsárdal með fjallaböðum og hóteli inni í fjalli
Markmiðið er að vinna með náttúrunni og bæta uppbyggingu innviða á svæðinu.

Þéttari borg
Spurn eftir litlum íbúðum miðsvæðis í Reykjavík hefur farið hratt vaxandi og er langtum meiri en framboðið eins og birst hefur í síhækkandi íbúðaverði á undanförnum árum.

Nýr miðbær Selfoss í íbúakosningu
Bæjarstjórn Árborgar hefur samþykkt að efna til íbúakosninga um aðal- og deiliskipulag Selfoss.

Stefna á að opna Hótel Reykjavík sumarið 2020
Nú styttist í að uppbygging á fjögurra stjörnu hóteli hefjist við Lækjargötu.

Yfirsást að telja rafrænu nöfnin
Við talningu á undirskriftum vegna íbúakosningar um nýtt skipulag í miðbæ Selfoss gleymdist að telja rafrænar undirskriftir.

Birkimelur með hjólastíg og þrengingum handan við hornið
Stígurinn er fjögurra metra breiður og fær betri lýsingu.

Deila um undirskriftir vegna íbúakosningar
29,4 prósent kosningabærra íbúa Árborgar óskuðu eftir því að íbúakosning færi fram um nýtt deiliskipulag miðbæjar Selfoss. Undirskriftalistar sendir til baka til ábyrgðarmanna af Þjóðskrá. Ekkert átt við listana að sögn ábyrgðamanns.

Skoða kosti þess að setja sundlaug á fyrirhugaða brú yfir Fossvoginn
Í dag eru í megindráttum tvær leiðir fyrir fólk að komast akandi eða með strætó á milli Reykjavíkur og Kópavogs, annars vegar um stofnbraut í Fossvogsdal eða um Reykjanesbraut.

Tvær stofur fá að móta framtíð Hlemmsvæðisins
Reykjavíkurborg hefur valið stofurnar Mandaworks og DLD til að þróa í sameiningu Hlemmsvæðið

Stórt skref stigið í átt að Borgarlínunni
Breyting á svæðisskipulagi á höfuðborgarsvæðinu samþykkt.

Elsta hús borgarinnar með glænýtt hlutverk
Elsta og eitt merkasta hús borgarinnar var í dag opnað sem safn og sýningarhús á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur. Reykjavíkurborg keypti húsið af Minjavernd á síðasta ári. Heildarkostnaður við húsið og sýninguna er um þrjúhundruð og sjötíu milljónir króna segir borgarstjóri.

Bæjarstjórinn tjáir sig ekki um meint vanhæfi bæjarfulltrúa í Sundhallarmáli
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, vildi ekkert gefa upp um afstöðu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar vegna meints vanhæfis Unu Maríu Unnarsdóttur í atkvæðagreiðslu um nýtt deiliskipulag á Framnesvegi 9 og 11 í bænum, sem gerir ráð fyrir því að Sundhöllin í Keflavík verði rifin.

Reykjanesbær þarf að svara um meint vanhæfi bæjarfulltrúans
Skipulagsstofnun gerir kröfu um skýr svör frá Reykjanesbæ vegna meints vanhæfis Unu Maríu Unnarsdóttur í atkvæðagreiðslu nýs deiliskipulags sem gerir ráð fyrir að Sundhöllin í Keflavík verði rifin. Frændur Unu Maríu eiga hagsmuna að gæta, enda eigendur lóðanna. Miklar deilur vegna framtíðar Sundhallarinnar

Mikill meirihluti bæjarbúa vill strompinn burt
Um var að ræða ráðgefandi könnun á meðal íbúa Akraness.

Bæjarstjóri segir enga formlega ákvörðun liggja fyrir um landfyllingu
Eins og kom fram á Vísi fyrr í kvöld felast breytingar í fyrirhugaðri stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis sem þar er á svæðinu.

Landfylling á Akranesi leggst ekki vel í íbúa
Breytingarnar felast í fyrirhugaðri stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis sem þar er á svæðinu.

Segir íbúðirnar sniðnar að fyrstu kaupendum
Íbúðir í fyrsta fjölbýlishúsinu í nýrri Hlíðarendabyggð voru sýndar í dag. Verðið er frá tæpum fjörutíu milljónum króna, en framkvæmdastjóri segir einblínt á fyrstu kaupendur. Fyrirhugað er að um 800 íbúðir rísi á svæðinu á næstu árum.

Rótgrónir Álftnesingar vilja brúa Skerjafjörð
Rótgrónir Álftnesingar eru jákvæðir fyrir því að fá brú yfir Skerjafjörð. Tenging yfir fjörðinn styttir aksturstímann úr miðborg Reykjavíkur yfir á Álftanes úr 20 mínútum í 5 mínútur.

Guðni um nýjan Laugardalsvöll: „Mikilvægt að geta lokað þakinu“
Niðurstöður starfshóps um uppbyggingu Laugardalsvallar voru kynntar í dag og undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd hefur verið stofnað. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir bjartsýnustu menn sjá flautað til leiks á nýjum velli árið 2020.

Sjáðu hvað starfshópurinn um uppbyggingu Laugardalsvallar skilaði af sér
Starfshópur sem ríkið og Reykjavíkurborg skipaði 11. janúar síðastliðinn um uppbyggingu Laugardalsvallar hefur nú skilað af sér niðurstöðum.

Sjö lóðir í borginni eyrnamerktar ungu fólki
Tillaga þess efnis að sjö svæði og lóðir í Reykjavík verði ætluð uppbyggingu fyrir hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur var samþykkt í borgarráði Reykjavíkurborgar í gær.

Vilja hjólastíg á milli Miklubrautar og Bústaðavegar
Áætlað er að framkvæmdin, auk hljóðvarnaraðgerða og endurgerðar göngustígs, kosti 270 milljónir króna.

Skagamenn fá að ráða örlögum strompsins
Bæjarstjórinn vill að hann víki.

Bæjarstjóri Garðabæjar ætlar að beita sér fyrir auknu aðgengi að áfengi
Mun ræða við Hagkaupsmenn um málið sem og þingmenn.

Deilu Norðurturnsins og Smáralindar um bílastæði vísað aftur í hérað
Málið má rekja til þess að Norðurturninn stefndi verslunarmiðstöðinni og Kópavogsbæ og vildi staðfestingu dómstóla á að kvaðir um samnýtingu bílastæða séu í gildi

Starfsmenn glíma enn við eftirköst myglu á Kirkjusandi
Nokkrir starfsmenn Íslandsbanka hafa enn ekki flust yfir í nýjar höfuðstöðvar bankans í Norðurturninum í Kópavogi meðan framkvæmdir þar hafa staðið yfir. Ástæðan er að þau eru viðkvæm fyrir ryki og raski eftir veikindi sem rekja má til myglu- og rakaskemmda í gömlu höfuðstöðvunum. Ráðgert að rífa gamla húsið.

Leyndardómar Laugardalsstúku
Í stúkunni við Laugardalslaug er að finna dularfull skúmaskot og leyndardómsfulla hluti.

Hafnar vegg á eigin lóð til að leysa ljósmengun
Formaður húsfélags stendur fast við að hann hafi óskað viðtals við bæjarstjóra Kópavogs vegna deilu um bílageymslu þótt bæjarstjórinn kannist ekki við það. Bærinn bjóði enn óásættanlega lausn í málinu og megi því búast við dómsmáli.

Nasa-salurinn rifinn
Framkvæmdir á Landssímareitnum svokallaða við Austurvöll hófust í dag með niðurrifi Nasa-salarins sem deilur hafa staðið yfir um í mörg ár.

Hollvinasamtök leggja fram kæru
Samtök unnenda sundahallar Keflavíkur funduðu með Minjastofnun.