

Stærsti ásteytingarsteinninn í viðræðum Indigo Partners og WOW air er stærð eignarhlutar stofnanda flugfélagsins eftir fjárfestingu bandaríska sjóðsins, að sögn heimildarmanns bresks viðskiptablaðs.
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair vill ekki tjá sig um það hvort Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi Wow air, hafi leitað til hans til að kanna aðkomu Icelandair að Wow air.
Hækkunin var sú mesta í viðskiptum dagsins.
WOW og Indigo funduðu stíft í gær en á meðan styrktist gengi Icelandair.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi Wow air, segist alltaf vera vongóður aðspurður um hvort takist að sigla kaupum Indigo Partners á stórum hlut í Wow Air í heimahöfn fyrr en síðar.
Wow air og Indigo Partners hafa ekki gengið frá endanlegu samkomulagi um kaup bandaríska félagsins á stórum hlut í Wow air. Viðræður munu halda áfram og vonast er til að þeim verði lokið fyrir 29. mars.
Gengið var frá samkomulagi á milli WOW air og leigusala flugfélagsins í lok síðustu viku. Þar með hefur síðasta skilyrðið fyrir fjárfestingu Indigo Partners í félaginu verið uppfyllt. Unnið er að því að leggja lokahönd á viðskiptin.
Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW Air, fullvissar starfsmenn flugfélagsins um það að viðræður við fjárfestingafélagið Indigo Partners gangi vel.
Icelandair áformar að auka sætaframboð sitt yfir sumartímann um 14% í ár frá því sem var í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44%.
Stjórnendur WOW air hafa beðið um frest fram í miðjan mars til að gera upp ógreidd lendinga- og farþegagjöld á erlendum flugvöllum, samkvæmt heimildum Túrista, en vefurinn greindi fyrst frá málinu.
Samgöngustofa hefur hafnað bótakröfu farþega Wow Air sem krafðist þess að fá bætur eftir að flugvél flugfélagsins var snúið við svo koma mætti tveimur öðrum farþegum undir læknishendur.
WOW air flutti 160 þúsund farþega til og frá landinu í janúar eða um 26% færri farþega en í janúar árið 2018. Þá var sætanýting WOW air 80% en var 88% í sama mánuði á síðasta ári.
Segir Bill Franke ekki leggja krónu í rekstur án þess að hafa eitthvað um reksturinn að segja.
Airport Associates sem veitir flugafgreiðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli hefur nú afturkallað uppsagnir 156 starfsmanna af þeim 237 sem sagt var upp í lok nóvember á síðasta ári.
Flugvallastjórn Allegheny-sýslu í Bandaríkjunum hefur krafist endurgreiðslu á niðurgreiðslum sem flugfélagið WOW air fékk fyrir samning um að fljúga til Pittsburgh í Bandaríkjunum til tveggja ára.
WOW air hefur náð samkomulagi við fjárfesta, sem keyptu skuldabréf í útboði fyrirtækisins í fyrra, um skilmálabreytingar á skuldabréfunum. Samkomulagið var forsenda fyrir því að fjárfesting Indigo Partners í WOW air næði fram að ganga.
Skuldabréfaeigendur WOW Air féllust á breytingar á skilmálum á bréfanna. Atkvæðagreiðslu um breytingarnar lauk í gær.
Lággjaldaflugrisinn Ryanair hefur lækkað afkomuspá sína fyrir yfirstandandi rekstrarár vegna lækkunar á flugfargjöldum.
Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, áætlar að flugfélag sitt muni flytja rúmlega 2 milljón farþega til á þriðja tug áfangastaða árið 2019. Er það umtalsverð fækkun frá nýliðnu ári þegar WOW Air flutti um 3,5 milljónir farþega, mesta fjölda í rúmlega 6 ára sögu flugfélagsins.
Gangi kaup Indigo Partners í WOW Air eftir mun bandaríska fjárfestingafélagið eignast 49 prósent hlut í flugfélaginu.
Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna en neytendum er bent á reglugerð um réttindi flugfarþega.
Nokkrir fyrrverandi starfsmenn WOW air hafa leitað til VR til að kanna réttarstöðu sína vegna uppsagna. Fólki í fæðingarorlofi sagt upp án þess að fyrir lægi skriflegur rökstuðningur eins og lög gera ráð fyrir. VR rukkar WOW um svör.
Fjölmiðlar í Skotlandi segja að um veikindi um borð hafi verið að ræða.
Kaup á skuldabréfum WOW air í útboði flugfélagsins í september eru verstu viðskipti ársins að mati dómnefndar Markaðarins. Fjármögnunin, um átta milljarðar króna, er sögð engan veginn hafa dugað flugfélaginu og komið allt of seint.
Nýuppfærðar upplýsingar yfir lendingarleyfi í Bretlandi sýna að breska flugfélagið easyJet og ungverska flugfélagið Wizz air hafi keypt flugtíma WOW Air.
Olíuverð hefur hrunið að undanförnu og stendur tunnan af Brent-hráolíu núna í 55 dollurum. Verðið hefur lækkað um 35 prósent frá því í byrjun október þegar tunnan kostaði 85 dollara. Að sögn séfræðings hjá Íslandsbanka tekur dálítinn tíma fyrir lækkunina að skila sér í lægra bensínverði hjá neytendum.
Við erum í miklum samskiptum við skuldabréfaeigendurna um þessar mundir og vinnum sameiginlega að ná því marki, segir Skúli Mogensen.
Sjóðstaða WOW air mun batna um 12 milljónir Bandaríkjadala.
WOW Air hefur í kjölfar endurskipulagningar á rekstri selt flugtíma sína á London Gatwick flugvelli.
WOW air fluttu um 197 þúsund farþega til og frá landinu í síðasta mánuði.