Icelandair
1 2 3 4 5 6 … 55 ›
Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki. Innlent 27.2.2026 12:03
Hreyflaskipti á flugvél dýrari en einbýlishús „Það er allt dýrt í flugi. Það er bara svoleiðis,“ svarar Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, þegar spurt er hversvegna fargjöldin séu svona dýr. Hann nefnir sem dæmi hreyflaskipti á Dash 8-vélunum. Innlent 27.2.2026 08:28
Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík. Innlent 26.2.2026 21:50
Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. Viðskipti innlent 26.2.2026 09:14
Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. Innlent 25.2.2026 14:15
Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt er föst í New York ásamt fimmtán ára dóttur sinni eftir að Icelandair felldi niður flugferðir vegna veðurs. Hún hefur ófáum sinnum komið til stórborgarinnar en segir tímann núna vera einstakan. Lífið 23.2.2026 23:35
Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Færeysk þjóðsaga segir frá tveimur tröllum sem komu frá Íslandi til að reyna að draga Færeyjar til Íslands. En verkið reyndist þeim ofviða og þegar sólin kom upp urðu tröllin að steini og enduðu sem tveir drangar norðan Færeyja. Innlent 22.2.2026 07:57
Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. Innlent 19.2.2026 13:13
Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. Viðskipti innlent 19.2.2026 06:45
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Skiptastjóri þrotabús Play vill kanna hvort búið eigi bótakröfu á Icelandair vegna yfirlýsinga flugstjóra skömmu fyrir gjaldþrot. Kröfuskrá hefur verið gefin út og hljóða heildarkröfur upp á 21 milljarð króna. Viðskipti innlent 18.2.2026 22:47
Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar. Viðskipti innlent 18.2.2026 08:30
Ef snúa á við rekstri Icelandair er nær ekkert svigrúm til launahækkana í dollar Veiking Bandaríkjadals á liðnu ári hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair og skýrir að stórum hluta rekstrartap flugfélagsins þrátt fyrir ágætis tekjuvöxt og bata á fjórða ársfjórðungi, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmat á félaginu hækkar lítillega í nýrri greiningu en þar undirstrikað að ef stjórnendum á að takast að rétta við reksturinn þá er nær ekkert svigrúm fyrir launahækkunum í Bandaríkjadollar. Innherji 12.2.2026 16:51
Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Tromsø í Norður-Noregi en flogið verður tvisvar í viku til borgarinnar frá 23. október 2026. Viðskipti innlent 11.2.2026 12:15
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. Innlent 8.2.2026 08:00
Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Vanstilltur aðflugsgeisli flugvallar var meginorsök mannskæðasta flugslyss Íslandssögunnar þegar DC 8-þota Flugleiða fórst á Srí Lanka árið 1978. Þetta er mat þeirra Flugleiðamanna sem rifjuðu upp slysið í þáttaröðinni um Flugþjóðina. Innlent 7.2.2026 07:27
Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Icelandair tapaði 1,2 milljörðum króna árið 2025 eftir skatta. Um er að ræða samdrátt frá fyrra ári þegar tap nam 2,8 milljörðum króna. Stjórnendur segja tekjur félagsins aldrei hafa verið hærri og þær aukist um 11 prósent milli ára í 223,6 milljarða. Viðskipti innlent 5.2.2026 19:08
Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Gdańsk sem jafnframt verður fyrsti áfangastað félagsins í Póllandi. Viðskipti innlent 5.2.2026 10:48
Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. Innlent 4.2.2026 22:40
„Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. Neytendur 30.1.2026 06:30
Kemur frá Icelandair til Varðar Helga Huld Bjarnadóttir er nýr þjónustustjóri þjónustustýringar hjá Verði tryggingum og hefur hún nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 27.1.2026 09:02
Icelandair aflýsir flugferðum Icelandair hefur aflýst fimm flugferðum til Bandaríkjanna í dag. Nístingskuldi er vestanhafs og afar hvasst. Innlent 25.1.2026 09:40
Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Vegagerðin hefur boðið út rekstur á áætlunarflugi til og frá Ísafirði. Tæpt ár er síðan forsvarsmenn Icelandair tilkynntu að félagið hyggðist hætta að fljúga til Vestfjarða. Innlent 24.1.2026 13:09
Hættu við lendingu í miðju aðflugi Flugvél Icelandair þurfti að hætta við lendingu í miðju aðflugi í Keflavík og fara í svokallað fráhvarfsflug. Vélin hafði flogið frá Arlanda í Stokkhólmi og kom til lendingar í Keflavík um þrjúleytið í dag. Innlent 21.1.2026 17:56
Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Forsvarsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna, eða FÍA, segja það alfarið á ábyrgð stjórnenda Icelandair að hætta eigi að fljúga til Istanbúl í Tyrklandi. Stjórnendur hafi gert mistök sem nú sé verið að varpa yfir á flugmenn. Ekkert í núverandi kjarasamningi komi í veg fyrir áframhaldandi flug til Istanbúl. Viðskipti innlent 17.1.2026 08:15
Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Icelandair hefur ákveðið að hætta flugi til Istanbúl í Tyrklandi frá og með 1. febrúar 2026. Viðskipti innlent 16.1.2026 14:17
Vísaði frá máli flugmanna gegn Icelandair vegna starfslokagreiðslna Máli sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna höfðaði gegn Icelandair þar sem deilt var um rétt flugmanna til sérstakra starfslokagreiðslna við sextugt hefur verið vísað frá en vegna málsins hafði stéttarfélagið gert hlé á kjaraviðræðum við flugfélagið síðasta haust. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að starfslokaákvæðið, sem flugmenn byggðu kröfur sínar á, teldist ekki hluti af gildandi kjarasamningi og félli ágreiningurinn því utan valdsviðs dómsins. Innherji 8.1.2026 15:52
Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Forstöðumaður hjá Icelandair segir flugfélagið hafa greitt fjóra milljarða í kolefnisgjald fyrir árið 2025. Hún óttast að undanþága Íslands frá reglugerð Evrópusambandsins falli úr gildi í árslok og verði gjöldin þar af leiðandi mun hærri. Staðsetning Íslands skekkir samkeppnisstöðu íslenskra flugfélaga. Viðskipti innlent 6.1.2026 23:22
Icelandair setur nokkur met Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á síðasta ári en í heildina var fjöldinn um 5,1 milljónu og er það átta prósentum meira en árið 2024. Þá var desember stærsti desembermánuðurinn í sögu Icelandair en þá flutti flugfélagið 344 þúsund farþega. Viðskipti innlent 6.1.2026 09:05
Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, FÍ, segja lítið að frétta í kjarasamningsviðræðum þeirra við Icelandair. Samningar félaganna við félagið losnuðu í haust og flugvirkja nú um áramót. Innlent 2.1.2026 14:48
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. Innlent 26.12.2025 07:47