Airbnb

Þriðjungs samdráttur í útleigu með Airbnb á Íslandi
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí dróst saman um rúmlega tíu prósent milli áranna 2018 og 2019. Munaði þar mestu um heimagistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður en þar var fækkunin 29%. Kortavelta útlendinga hefur hins vegar dregist minna saman en fjöldi þeirra og þeir ferðamenn sem koma verja hærri fjárhæðum í landinu.

Gistinóttum á Airbnb fækkaði um 29 prósent
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí dróst saman um 10,2% milli 2018 og 2019.

Þúsundir ábendinga um óleyfilega heimagistingu og fjöldi mála áframsendur til skattrannsóknarstjóra
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað tugum mála til lögreglu vegna brota á lögum um heimagistingu. Þúsundir ábendinga hafa borist um óleyfilega skammtímaleigu og hefur mörgum þeirra verið vísað til skattrannsóknarstjóra. Ráðherra segir þetta mun meiri árangur en búist hafi verið við og hefur ákveðið að eftirlit með heimagistingu verði til frambúðar.

Tugir mála ratað á borð lögreglunnar
Yfir 3.000 ábendingar um óleyfilega skammtímaleigu hafa borist heimagistingarvakt ráðherra ferðamála. Tugir mála hafa endað með stjórnvaldssektum og tæp 60 mál hafa ratað á borð lögreglu.

Yfir 300 vettvangsheimsóknir vegna óskráðrar skammtímaleigu
Starfsmenn Heimagistingarvaktar hjá sýslumanni hafa farið í yfir 300 vettvangsheimsóknir í kjölfar ábendinga um óskráða skammtímaleigu síðan átaksverkefni hófst í fyrra.

Airbnb aukið ójöfnuð
Fjöldi eigna á höfuðborgarsvæðinu sem skráður er á Airbnb tvöfaldaðist á árunum 2016 til 2018, fjölgaði úr 2032 í 4154.

Fjölgar í Airbnb en fækkar á hótelum
Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 694.000 í mars síðastliðnum, en þær voru um 719.000 í sama mánuði fyrra árs.

Gistinóttum Airbnb fækkað eftir að reglur voru hertar
Gistinóttum fjölgar á hótelum og gistiheimilum.

Talsvert um afbókanir á Airbnb vegna gjaldþrots WOW air
Fall Wow air hefur víðtæk áhrif á ferðaþjónustutengda starfsemi á landinu.

25 prósent álag á skatt vegna Airbnb
Eigandinn hafði ekki talið fram rúmlega þrjár milljónir króna sem hann hafði í tekjur árið 2016 af slíkri leigu.

Reglur settar til að hemja nethagkerfi eins og Airbnb
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra, situr nú leiðtogafund Sharing Cities í Barcelona fyrir hönd Reykjavíkurborgar.

Mun fleiri skrá heimagistingu
Mikil aukning hefur verið á skráningum heimagistingar það sem af er ári. Heimagistingarvaktin sem er starfrækt af Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefur samþykkt 1.860 skráningar á yfirstandandi ári en skráningarnar voru 1.059 á öllu síðasta ári.

Fá heimild til að sekta fyrir heimagistingu án leyfis
Ferðamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um heimagistingu.

Airbnb „meinvarp“ í viðskiptalífinu
Hótel og gistihús hafa tekið höndum saman og stofnað eigin samtök. Kristófer Oliversson er nýkjörinn formaður FHG – Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu og framkvæmdastjóri og eigandi CenterHotels.

Ríkið verði af tveimur milljörðum á ári
Samtök ferðaþjónustunnar áætla að ríkið verði af tveimur milljörðum króna á meðan Airbnb og sambærilegum leigusíðum er ekki gert að innheimta gistináttaskatt. Taka átti á málinu fyrir ári en það er enn í skoðun. Kerfið míglekur, segir stjórnarformaður Gray Line.

Mismunun skattheimtu af ferðamönnum
Aukið eftirlit með íbúðagistingu breytir litlu fyrir samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar ef seljendur á neytendamarkaði halda áfram að sleppa við að innheimta virðisaukaskatt og gistináttaskatt.

Hægari vöxtur en áður í Airbnb hér á landi
Tekjur af Airbnb-útleigu á Íslandi hafa vaxið hægar á fyrstu mánuðum ársins en á sama tímabili síðustu ár.

Skattaundanskotin hleyptu lífi í umræður
Framkvæmdastjóra SI fannst ummæli Lífar Magneudóttur um skattaundanskot vegna Airbnb „áhugaverð“. Líf sagði um smápeninga að ræða. Hún segist hafa talað fjálglega, en ekki af vanvirðingu líkt og framkvæmdastjórinn vill meina.

Íslendingar þéna mest á Airbnb
Íslendingar eru sú þjóð sem þénar mest á skammtímaleigu til ferðamanna í gegnum vefinn Airbnb ef marka má gögn sem nálgast má á vefsíðunni sjálfri.

Á annan tug milljarða í neðanjarðarhagkefinu vegna Airbnb
Vöxtur í gistiþjónustu á Íslandi er að stórum hluta drifinn áfam af AirBnB sem að mestum hluta fer fram í neðanjarðarhagkerfinu og skilar því ekki sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélaga.

Mesti vöxturinn er í Airbnb
Vöxtur ferðaþjónustunnar er aðallega í deilihagkerfinu gegnum Airbnb samkvæmt nýrri skýrslu Íslandsbanka. Airbnb er með fjórðung af gistimarkaðnum. Teymi bankans á sviði ferðaþjónustu reiknar með minni fjárfestingu í hótelum á næstu fjórum árum.

Fleiri tekjuháir nýta sér Airbnb
Tekjuháir ferðamenn nýta sér leiguvefinn Airbnb í síauknum mæli. Fyrir fáeinum árum gistu aðallega tekjulægri ferðamenn í Airbnb-íbúðum. Viðsnúningurinn hefur verið hraður, að sögn hagfræðings.

Óheft íbúðaleiga á Airbnb grefur undan ferðaþjónustunni
Til eru þeir sem halda að íbúðaleiga til ferðamanna gegnum Airbnb og ámóta leigumiðlanir hafi "bjargað“ ferðaþjónustunni. Annars hefði ekki fengist gisting fyrir alla þessa nýju ferðamenn. Þetta sýni dásemdir hins "litla og krúttlega“ deilihagkerfis.

Kofi Hrafns Gunnlaugssonar í Laugarnesinu til útleigu
Nuddpottur kvikmyndaleikstjórans slær í gegn hjá gestum.

Sextán prósent íbúðarhúsa á Flúðum notuð sem sumarhús
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um húsnæðisáætlun Hrunamannahrepps.

Græðum meira en aðrir á Airbnb
Yfir helmingur Airbnb-gestgjafa í Reykjavík hafa fleiri en eina íbúð til útleigu á vefsíðunni. Reykjavík fær miklu fleiri Airbnb-gesti hingað til lands á ári en borgir sem eru mun fjölmennari.