
Norður-Kórea

Trump og Kim sammála um greindarvísitölu Biden
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu eru sammála um það að Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og einn af forsetaframbjóðendum í forkosningum demókrata, sé með lága greindarvísitölu.

Trump gerir lítið úr vopnabrölti Norður-Kóreumanna
Skömmu eftir að þjóðaröryggisráðgjafi Trump Bandaríkjaforseta fordæmdi eldflaugatilraunir kom forsetinn einræðisherra Norður-Kóreu til varnar á Twitter.

Kenna Bandaríkjunum um að viðræður séu í hnút
Viðræðunum um stöðvun kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætlun Norður-Kóreu verður ekki haldið áfram án þess að Bandaríkin breyti um stefnu.

Norður-Kóreumenn kalla Biden fávita
Svo virðist sem að yfirvöld Norður-Kóreu hafi ekki tekið vel í það að Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hafi kallað Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, "harðstjóra“.

Moon varar Norður-Kóreu við frekari eldflaugaskotum
Norður-Kóreumenn virðast hafa gert sínar fyrstu eldflaugatilraunir frá árinu 2017. Samskiptin orðin stirð eftir árangurslausan fund með forseta Bandaríkjanna í febrúar.

Lögðu hald á stærðarinnar flutningaskip frá Norður-Kóreu
Yfirvöld Bandaríkjanna lögðu í dag hald á flutningaskipið "Wise Honest“ frá Norður-Kóreu sem þeir segja að hafi verið notað til að brjóta gegn viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum gegn einræðisríkinu.

Kim lætur reyna á þolinmæði Trumps
Norður-Kórea gerir tilraunir með flugskeyti í því skyni að auka "bardagagetu“ ríkisins.

Hafa ekki hugmynd um hvernig Kim kom höndum yfir eðalvagnana
Forsvarsmenn þýska bílaframleiðandans Daimler segjast ekki hafa átt í nokkrum viðskiptum við Norður-Kóreu enda fer sala lúxusvara eins og þessara bíla gegn viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gagnvart Norður-Kóreu.

Kim Jong-un sakar Bandaríkjamenn um óheilindi
Þetta kom fram í máli hans eftir leiðtogafund hans og Vladimirs Pútíns, Rússlandsforseta, sem fram fór í gær í rússnesku borginni Vladivostok.

Kim og Pútín hyggjast efla samskipti Norður-Kóreu og Rússlands
Þeir Vladimír Putín Rússlandsforseti og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, ætla að efla samskipti ríkjanna tveggja til muna.

Kim sækir Pútín heim
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, mun ferðast til Rússlands og eiga þar fund með Vladímír Pútín, forseta Rússa. Frá þessu var greint í norðurkóreska ríkissjónvarpinu, KCNA, í gær.

Handtekinn fyrir hryðjuverkaárás í norðurkóresku sendiráði
Bandarísk yfirvöld hafa handtekið fyrrum landgönguliða sjóhersins sem var hluti hóps sem á að hafa ráðist inn í norðurkóreska sendiráðið í Madríd í febrúar og stolið raftækjum.

Ætlar að halda áfram viðræðum um kjarnorkuafvopnun: „Ekkert hefur breyst“
Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist bjartsýnn á árangur í viðræðum við Norður-Kóreu um kjarnorkuafvopnun.

Norður-Kóreumenn gera tilraunir með nýja stýriflaug
Tilraunin er sú fyrsta eftir fund Kim Jong-un og Donalds Trump í febrúar.

Morðið á Kim Jong-nam: Víetnömsku konunni sleppt í næsta mánuði
Lögmaður Doan Thi-Huong segir að henni verði sleppt úr malasísku fangelsi 3. maí næstkomandi.

Segir samband sitt við Kim vera ljómandi gott
Donald Trump Bandaríkjaforseti, tók í dag undir orð leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-Un og sagði samband þeirra vera ljómandi gott. Trump sagði að gott yrði að leiðtogarnir funduðu í þriðja sinn til þess að átta sig fyllilega á því hvar málin standa milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna.

Segja árás á sendiráð ríkisins í Madríd vera hryðjuverkaárás
Yfirvöld Norður-Kóreu krefjast þess að málið verði rannsakað til hlítar og segjast hafa orðróma um aðkomu Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) að árásinni í huga.

Konu sem sökuð er um að hafa myrt Kim sleppt á næstunni
Doan Thi Huong, sem sökuð er að hafa myrt Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, á flugvellinum í Kúala Lumpur árið 2017 hefur játað vægara brot en hún var upprunalega ákærð fyrir.

Dularfull samtök vilja velta Kim Jong-un úr sessi
Samtök sem kallast Cheollima Civil Defense hafa lýst yfir ábyrgð á árás á sendiráð Norður-Kóreu í Madríd.

Trump dregur nýjar refsiaðgerðir skyndilega til baka
Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að Trump telji ekki þörf á fleiri refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu vegna þess að honum líki vel við Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu.

Kim Jong-un íhugar að slíta viðræðum við Trump
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, mun brátt ákveða hvort hann ætli að slíta viðræðum við Donald Trump, Bandaríkjaforseta, um kjarnorkuafvopnun eða halda þeim áfram.

Kosningaþátttakan í Norður-Kóreu sögð 99,99 prósent
Norður-Kóreumenn kusu sér nýtt þing á sunnudag.

Meintur morðingi Kim Jong-nam látinn laus
Konunni, Siti Aisyah, var gefið að sök að hafa makað taugaeitrinu VX í andlit Kims á flugvellinum í Kuala Lumpur árið 2017.

Norður-Kóreumenn kjósa nýtt þing og fá að velja um einn frambjóðanda
Ekki er von á spennandi spennandi kosninganótt.

Telja Norður-Kóreu vera að undirbúa eldflauga- eða gervihnattarskot
Donald Trump segir að hann verði fyrir miklum vonbrigðum, komi í ljós að Norður-Kóreumenn séu að stunda vopnaprófanir á nýjan leik.

Kenna Bandaríkjunum um og skamma Japana fyrir afskipti
Norðurkóreskir ríkisfjölmiðlar segja að Bandaríkjunum sé almennt kennt um árangursleysi í leiðtogaviðræðum. Segja Japana reyna að spilla viðræðum. Þeir séu með svört hjörtu og eins og dvergar sem hanga í skottinu á Bandaríkjamönnum.

Bandaríkin opin fyrir samningaviðræðum við Norður Kóreu þrátt fyrir bakslag
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, vill halda áfram samningaviðræðum við Norður-Kóreu þrátt fyrir að nýlegar upplýsingar bendi til þess að Noður-Kóreumenn hafi hafið enduruppbyggingu á eldflaugastöð sinni í Sanumdong.

Trump heldur að Kim valdi sér ekki vonbrigðum
Fréttir hafa borist af því að Norður-Kórea byggi aftur upp eldflaugastöð sína. Trump Bandaríkjaforseti segist verða fyrir vonbrigðum með Kim Jong-un reynist það rétt en að hann trúi ekki að það gerist.

Norður-Kórea byggir aftur upp eldflaugastöð
Framkvæmdir við eldflaugastöðina virðast hafa hafið um það leyti sem Trump og Kim funduðu í Víetnam.

Segir Cohen mögulega hafa skemmt fund hans og Kim
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir vitnisburð Michael Cohen, fyrrverandi lögmanns hans til áratugar, hafa „mögulega“ skemmt fyrir fundi hans og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu í síðustu viku.