
Dýr

Leita á Hornströndum vegna mögulegra ummerkja um ísbjörn
Leit stendur nú yfir á Hornströndum eftir að gönguhópur tilkynnti lögreglu á Vestfjörðum um ummerki eftir mögulegan ísbjörn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Vestfjörðum á öðrum tímanum í nótt.

Hundur seldur á uppboði hjá sýslumanni
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu verður í næstu viku með uppboð á Rjúpnabrekku Blakki, enskum setter-hundi, sem er settur á uppboð vegna slita á sameign tveggja aðila.

Fíll braust inn á heimili í Taílandi
Ratchadawan Puengprasoppon vaknaði upp við mikinn skarkala á heimili sínu í Taílandi á laugardaginn. Þegar hún fór fram kom hún auga á stærðarinnar fíl sem hafði brotist inn til hennar.

Nýr olíuakur ógnar lífi 130 þúsund fíla
Tugir þúsunda afrískra fíla eru í hættu vegna áforma um að bora fyrir olíu á svæði sem talið er meðal síðustu ósnertu svæða í álfunni. Ætlunin er að olíuakurinn teygi sig frá Namibíu yfir til Botnsvana, sem myndi koma öllu lífríki, og samfélögum, á svæðinu úr jafnvægi.

Forsetahundurinn Champ er allur
Í tilkynningu frá forsetahjónum Bandaríkjanna kemur fram að hundurinn Champ sé látinn.

Eitrað fyrir öðrum ketti í Heiðargerði
Eigandi kattar sem eitrað var fyrir í vikunni segir annan kattaeigenda hafa tilkynnt sér um eitrun.

Hrútur olli miklum skemmdum á Þingvöllum
Mannýgur hrútur olli miklu tjóni á Þingvöllum í vikunni þegar hann stangaði rúðu á gestastofunni á Þingvöllum. Morgunblaðið greindi frá atvikinu í morgun.

Björn særði fjögur í Japan
Villtur skógarbjörn gekk laus í Sapporo, í norður Japan, í dag. Björninn særði fjóra áður en hann var skotinn til bana.

„Við getum leitað annarra leiða til þess að laga þetta heldur en að drepa kettina“
Eigendur læðu sem nýlega eignaðist kettlinga telja að eitrað hafi verið fyrir henni með því að gefa henni frostlög. Þeir segja önnur svipuð tilvik hafa komið upp í nágrenninu, nánar tiltekið smáíbúðahverfinu.

Wasabi krýndur verðugastur voffa á Westminster-hundasýningunni
Smáhundurinn Wasabi var krýndur verðugastur allra hunda á Westminster-hundasýningunni í Bandaríkjunum í gær. Um er að ræða virtustu hundasýningu heims og titillinn afar eftirsóttur.

„Guð minn góður, ég er í gini hvals“
Bandarískur humarsjómaður lenti í því magnaða atviki að vera gleyptur af Hnúfubaki, sem virðist ekki hafa líkað bragðið og spýtti honum aftur út. Hann slapp vel þrátt fyrir martraðakennda sögu og virðist aðeins hafa farið úr öðrum hnjálið.

Vatnsþurrð í Grenlæk ógnar sjóbirtingsstofninum
Alvarlegt ástand hefur skapast í Grenlæk í Landbroti vegna þurrka. Við vettvangsskoðun Hafrannsóknarstofnunar þann 3. júní síðastliðinn að efstu ellefu kílómetrar lækjarins, á svæðinu fyrir ofan Stórafoss, eru þurrir.

Fjögurra ára drengur gekk gæsaungum í föðurstað
Ólafur Elí Erlendsson fjögurra ára hefur gengið nokkrum gæsaungum í föðurstað. Fréttastofan heimsótti þennan yngsta gæsabónda landsins á Álftanesi og hitti krúttlegu vinina.

Friðlýsing sem verndar lundavarp rétt utan borgarinnar
Lundey í Kollafirði var friðlýst í dag. Í eynni er fjölskrúðugt varp sjófugla, þar á meðal sumra sem eru í bráðri útrýmingarhættu.

Hundaeigandinn í Noregi ákærður vegna dauða barnsins
Lögregla í Noregi hefur ákært eiganda hundanna tveggja sem urðu átján mánaða barni að bana í Brumunddal, um 130 kílómetra norður af Osló, á laugardaginn. Barnið var í heimsókn hjá ættingjum þegar atvikið átti sér stað.

Hundar drápu ungt barn í Noregi
Eins og hálfs árs gamalt barn lést þegar tveir hundar réðust á það í bænum Brumunddal í austanverðum Noregi í gær. Hundarnir voru aflífaðir strax í kjölfar.

Sest í helgan stein eftir farsælan feril sem sprengjuleitarrotta
Rottan Magawa, sem hlotið hefur gullna medalíu fyrir hetjudáðir sínar, hefur sest í helgan stein og lætur af störfum sem sprengjuleitarrotta.

Smokkfiskar verða geimfarar
Næsta geimskot NASA verður farþegaflug en 128 smokkfiskar verða þá geimfarar.

Stórlækka gjöld til að fjölga skráðum hundum í Reykjavík
Reykjavíkurborg lækkar gjöld tengd hundum umtalsvert í þriggja ára tilraunaverkefni.

Sýknuð af því að hafa sigað Dobermann-hundi á aðra konu
Landsréttur sýknaði á dögunum konu af því að hafa sigað Dobermann-hundi á aðra konu og sparkað í andlit hennar, en héraðsdómur hafði áður sakfellt hana fyrir þessi atriði.

Hrinti birni til að bjarga hundi sínum
Hin sautján ára gamla Hailey Morinico hikaði ekki þegar birna náði taki á einum hundi hennar og hrinti birnunni af lágum vegg.

Tígrisdýrabani handtekinn eftir 20 ára leit
Karlmaður sem talinn er hafa drepið 70 tígrisdýr, sem eru í útrýmingarhættu, í Bangladess hefur verið handtekinn eftir 20 ára leit að honum.

Fundu risaskjaldböku af tegund sem var talin hafa dáið út fyrir rúmri öld
Erfðarannsóknir hafa leitt í ljós að risaskjaldbaka sem fannst á Galapagoseyjum sé af tegund sem vísindamenn töldu hafa dáið út fyrir rúmum hundrað árum.

Björgunarsveitir kallaðar út vegna hunds í sjálfheldu
Rétt fyrir klukkan 12 á hádegi í dag voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til aðstoðar við hund í sjálfheldu í Glymsgili í Hvalfirði. Hundurinn hafði hrapað fram af brúninni.

Tóku 68 framandi dýr úr dýragarði Tiger King
Yfirvöld í Oklahoma í Bandaríkjunum gerðu í dag rassíu á dýragarði tígriskóngsins Jeff Lowe sem Netflix-heimildaþættirnir vinsælu Tiger King fjölluðu um. Samkvæmt tilkynningu yfirvalda tóku þau 68 framandi dýr af Lowe.

Þúsundir ljósmyndara berjast um að eiga fyndnustu dýralífsmynd ársins
Maður er manns gaman. Þannig hljómar orðatiltækið gamla en færa má rök fyrir því að oft séu dýr einnig manns gaman. Hin árlega Comedy Wildlife Photography Awards verðlaunakeppni stendur nú yfir í sjöunda sinn og streyma myndir úr dýraríkinu inn í keppnina.

Fara ekki fram á aflífun: Hundurinn hafði dvalið á skemmtistaðnum í þrjá tíma
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun ekki fara fram á að hundurinn sem beit konu á skemmtistaðnum Röntgen í mars síðastliðnum verði aflífaður. Ákvörðunin var tekin í kjölfar skapgerðarmats á hundinum.

Mannleg mistök ástæða þess að ísbjörn í Berlín reyndist afkvæmi systkina
Forsvarsmenn dýragarðsins í Berlín í Þýskalandi hafa greint frá því að ísbjarnarhúnninn Hertha sé í raun afkvæmi systkina. Segja þeir að ónákvæmni í skjölum sem fylgdu innfluttum ísbjörnum frá Rússlandi til garðsins skýri mistökin.

Blóðug aftaka náðist á myndband
Það var ójafn leikur þegar þrír háhyrningar tóku varnarlausan sel af lífi skammt vestan við Hvammsvík í Hvalfirði á dögunum, eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Áætla að fuglar heims séu um 50 milljarðar
Ástralskir vísindamenn áætla að fuglar heims séu nú um 50 milljarðar talsins, eða um sex sinnum fleiri en menn. Algengustu tegundirnar séu gráspörvar og evrópskir starrar.