Þýskaland

Þýskaland

Höfuðborg: Berlín. Mannfjöldi: 84,4 milljónir (2025). Flatarmál: 357.592 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Kenningin um útskiptin miklu sem um­breytti vest­rænum stjórn­málum

Vesturlönd hafa gengið í gegnum pólitíska umbrotatíð frá aldamótum. Samspil efnahagslegra og samfélagslegra áfalla hefur skapað frjóan jarðveg fyrir þjóðernispopúlisma þar sem samsæriskenningar á borð við um „útskiptin miklu“ hafa færst úr afkimum internetsins og inn í hjarta stjórnmálanna.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Segir Klopp taka við þýska lands­liðinu

Jurgen Klopp hefur verið ráðinn sem þjálfari þýska landsliðsins samkvæmt félagsskiptafréttamanninum Fabrizio Romano. Julian Nagelsmann var gert að hætta sem þjálfari þýska landsliðsins eftir slæmt gengi á heimsmeistaramótinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Dúx í MH og talar fjögur tungu­mál

Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara er dúx Menntaskólans við Hamrahlíð í ár. Alls voru á föstudag brautskráðir 127 nemendur úr skólanum. Sóley var á náttúrufræðibraut og útskrifaðist sem dúx með 9,88 í meðaleinkunn.

Innlent
Fréttamynd

„Sögu­legt augna­blik“ fyrir þýska klúbba­menningu

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. 

Lífið
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Sátu um tóman banka í sex tíma

Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir.

Erlent
Fréttamynd

Um­sátur í Þýska­landi: Banka­rán varð að gíslatöku

Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Brott­flutningur banda­rísks her­liðs frá Evrópu

Trump, forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að fækka í her Bandaríkjamanna sem staðsettur er í Evrópu. Fyrstu fimm þúsund hermennirnir sem kvaddir eru heim eru staðsettir í Þýskalandi, en fleiri munu fylgja á eftir, þ.á.m. frá Ítalíu og Spáni.

Skoðun
Fréttamynd

Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu

Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn.

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir her­manna kallaðir heim frá Þýska­landi

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran.

Erlent
Fréttamynd

Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum

Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína.

Erlent
Fréttamynd

Merz segir Írani spila með Banda­ríkja­stjórn

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi.

Erlent
Fréttamynd

Gagn­rýna tví­skinnung Vance í Ung­verja­landi

Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar.

Erlent
Fréttamynd

Karl­menn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði

Karlmenn í Þýskalandi þurfa nú leyfi frá þýska hernum ef þeir ætla að dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Breytingarnar tóku gildi í byrjun árs en hafa ekki ratað í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Á meðan herskylda er ekki í gildi líta stjórnvöld þó ávallt svo á að leyfið sé veitt, en herskylda tekur vissulega gildi á ný á næsta ári.

Erlent