Landspítalinn

Veiran náði í skottið á Þórólfi: „Ein sú versta pest sem ég hef nokkurn tímann fengið“
Töluvert færri eru nú að greinast með Covid-19 hér á landi heldur en fyrir aðeins nokkrum vikum en sóttvarnalæknir telur að veiran verði viðloðandi í einhvern tíma. Sjálfur hefur hann smitast og segir veikindin langt frá því að líkjast venjulegri flensu.

Fluttur á Landspítala eftir nauðlendingu á svifdreka
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann á Landspítala sem nauðlenti á svifdreka nálægt Hlíðarvatni í Selvogi klukkan 13 í dag. Þyrlan var kölluð út með mesta forgangi.

Tíu sjúklingar á Landspítala nú með Covid-19
Tíu sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19, þar af eru sex með virkt smit. Enginn sjúklinganna er á gjörgæslu.

Landverðir gáfu Barnaspítalanum fjölda gjafa
Ofurhetjurnar Landverðirnir afhentu Barnaspítala hringsins fjölda gjafa í gær. Meðal gjafa voru Playstation tölvur, fjarstýringar, LEGO-kubbar, boltar og bækur.

Landspítalinn af hættustigi
Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala hafa ákveðið að færa viðbúnaðarstig spítalans vegna Covid-19 af hættustigi á óvissustig.

Rannsókn lögreglu á máli hjúkrunarfræðingsins lokið
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti sem varð á geðdeild Landspítalans í ágúst síðastliðnum, þar sem hjúkrunarfræðingur er grunaður um að hafa orðið sjúklingi að bana, er lokið.

Hlutverk leikskólans er að tryggja börnum gæðamenntun
Nú þegar styttist í sveitarstjórnarkosningar setja frambjóðendur ýmissa flokka fram hugmyndir sem snúa sérstaklega að leikskólastiginu, oft að því er virðist án þess að hafa nægjanlega þekkingu á þessum málaflokki. Meðal annars heyrist að brúa verði bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla með því að taka inn yngri og yngri börn.

Arna Dögg nýr yfirlæknir líknarlækninga
Arna Dögg Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr yfirlæknir líknarlækninga á Landspítala og tekur við stöðunni þann 1. maí 2022. Hún hefur starfað við líknarlækningar frá árinu 2010 við líknardeild spítalans, í sérhæfðri líknarheimaþjónustu og líknarráðgjafateymi.

Lausnir fyrir bráðamóttökuna
Það vantar hjúkrunarfræðinga í tuttugu stöðugildi á stærstu bráðamóttöku landsins. Við erum að horfa upp á það að bráðamóttakan getur ekki sinnt því hlutverki sem hún á að sinna í þjóðfélaginu vegna álags á hjúkrunarfræðinga.

Sjúklingur með Covid-19 lést á Landspítala
Karlmaður á áttræðisaldri með Covid-19 lést á Landspítala í gær.

Tvær konur á áttræðisaldri með Covid-19 létust um helgina
Tvær konur á áttræðisaldri með Covid-19 létust á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi um helgina.

Afhentu Barnaspítala Hringsins 30 Míu bangsa
Styrktarfélagið Mia Magic afhenti Barnaspítala Hringsins 30 Míu bangsa í gær. Jón Sverrir Árnason, sonur Þórunnar Evu stofnanda Mia Magic, afhenti fyrsta Míu bangsann sem Barnaspítalinn fékk honum Sölva Páli Hólm.

Einn fluttur í sjúkraflugi á Landspítalann
Aðgerðum björgunarsveitarmanna í Svarfaðardal í nágrenni Dalvíkur lauk nokkru fyrir miðnætti, þar sem þrír bandarískir ferðamenn höfðu lent í snjóflóði um klukkan sjö í gærkvöldi. Einn þeirra var fluttur á Landspítalann með sjúkraflugi og tveir á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Segir óviðunandi aðstæður á geðdeild Landspítala
Aðstæður á bráðageðdeild eru algjörlega óviðunandi og nauðsynlegt er að byggja upp nýtt geðsjúkrahús, að mati forstöðumanns geðþjónustu Landspítala. Gríðarlegt álag hefur verið á bráðamóttöku geðsviðs undanfarnar vikur.

Fyrrverandi skrifstofustjóri læknaráðs Landspítala ákærður fyrir fjárdrátt
Örn Þ. Þorvarðarson fyrrverandi skrifstofustjóri læknaráðs Landspítalans hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Hann er sakaður um að hafa dregið sér rúma 4,1 milljón króna úr starfs- og gjafasjóði læknráðs frá 2012 til 2016.

Ljáum konum eyru
Fyrir nokkrum dögum byrjaði umræða í samfélaginu sem snerti við mér persónulega og hef ég verið alvarlega hugsi síðan. Í kjölfar Kveiks þáttsins um Bergþóru Birnudóttur og átakamikla sögu hennar af barnsburði þar sem hún lýsti sinni upplifun að ekki hafi verið hlustað á hennar áhyggjur á meðgöngu og í fæðingu sem varð til þess að hún örkumlaðist.

Læknar um stöðuna á Landspítala: „Allir sem vinna að öryggismenningu vita að öryggi kostar“
Hópur lækna segir að alvarlegt vanmat á mönnunarþörf Landspítalans komi fram í nýrri skýrslu Heilbrigðisráðuneytisins. Skýrslan, sem unnin var af ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey byggir á ítarlegri greiningu á stöðu sjúkrahússins og þeim áskorunum sem eru framundan á Landspítala.

Sjaldan fleiri verið nauðungarvistaðir en í ár
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri verið nauðungarvistaðir og á fyrstu mánuðum þessa árs að sögn ráðgjafa nauðungarvistaðra. Þetta úrræði sé gríðarlegt inngrip í líf fólks sem líkist oft á tíðum gæsluvarðhaldi.

Öryggi kostar – Alvarleg vanáætlun á mönnunarþörf í skýrslu um framtíðarþróun þjónustu Landspítala
Í nýlega birtri skýrslu um framtíðarþróun þjónustu Landspítala kemur fram að okkar mati alvarlegt vanmat á mönnunarþörf Landspítalans. Skýrslan, sem var unnin af ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey og gefin út af Heilbrigðisráðuneytinu, byggir á ítarlegri greiningu á stöðu sjúkrahússins og þeim áskorunum sem framundan eru á Landspítala.

Sjúklingum með Covid-19 fækkar áfram og enginn er á gjörgæslu
Alls er nú 31 sjúklingur inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 en enginn þeirra er á gjörgæslu að því er kemur fram í tilkynningu á vef spítalans. Kona á sjötugsaldri með Covid-19 lést á Landspítalanum í gær og kona á áttræðisaldri lést um helgina, þann 2. apríl.

Meinað að drekka kaffi, reykja og fara út
Samtökin Geðhjálp segja ljóst að daglega sé brotið á mannréttindum fólks inni á geðdeildum landsins. Fólki er sums staðar meinað að drekka kaffi, fara í símann, reykja sígarettu eða rölta út undir bert loft.

Hver einasta frásögn hitti starfsfólk fæðingarþjónustu í hjartastað
Starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna mikillar samfélagsumræðu undanfarið um störf þeirra.

Að láta verkin tala í stað þess að tala bara
Ráðherrar og forstöðumenn heilbrigðisstofnana hafa að undanförnu talað mikið um „mönnunarvanda“ heilbrigðiskerfisins og mikilvægi þess að hlúið sé að heilbrigðisstarfsfólki meðal annars með hækkun launa.

Tíu innlagnir á Landspítala vegna inflúensu síðustu þrjár vikur
Inflúensa er nú í vexti á Íslandi en það sem af er vetri hafa 230 inflúensutilfelli greinst, þar af um 200 á síðustu þremur vikum, auk þess sem 292 tilfelli til viðbótar hafa verið greind án rannsóknar. Þrátt fyrir að Covid-tilfellum fari fækkandi er enn mikið um öndunarfærissýkingar í samfélaginu.

Landspítali ekki lengur á neyðarstigi
Landspítali hefur verið færður af neyðarstigi og er kominn á hættustig frá á með hádegi í dag.

Landspítali líklega af neyðarstigi en vandamálin áfram mörg
Gert er ráð fyrir því að Landspítalinn verði færður af neyðarstigi í vikunni eftir að hafa verið þar í meira en mánuð. Forstjóri spítalans segir þó fleiri úrlausnarefni en kórónuveirufaraldurinn blasa við.

Missir heimaþjónustu á þriðjudag og hræðist að enda aftur á bráðamóttöku
Fjölfatlaður 45 ára karlmaður hræðist að lenda varanlega inni á bráðamóttöku um miðja viku þar sem þjónustusamningur borgarinnar við hann er við það að renna út. Hann segist hafa sent borginni ítrekaðar fyrirspurnir en fái ekki svör um hvort samningurinn verði framlengdur svo hann geti verið áfram heima.

Gríðarlegt álag á bráðamóttöku barna vegna inflúensu
Gríðarlegt álag hefur verið á bráðamóttöku barna í vikunni vegna inflúensu og kórónuveirunnar. Aðsóknarmet hafa verið slegin dag eftir dag, að sögn Valtýs Thors, barnalæknis á Barnaspítala Hringsins.

Nýburi liggur á gjörgæslu með Covid-19
Fimm börn eru inniliggjandi á Landspítala með Covid-19, þar af eitt á nýburagjörgæslu.

Öryrki mátti sín lítils í baráttu við Landspítalann vegna öndunarvélar
Öryrki sem notar öndunarvél vegna öndunarerfiðleika við svefn kærði íslenska ríkið og Landspítala en hann taldi gjaldtöku Landspítalans fyrir leigu á öndunarvélinni ólögmæta. Héraðsdómari taldi rétt að sýkna ríkið og spítalann.