Börn og uppeldi

Lýsandi hegðun: Leikskólalaust barn olli verulegum örðugleikum í fréttasetti
Leikskólamálin í Reykjavíkurborg hafa verið í brennidepli frá því að foreldrar hófu að mótmæla úrræðaleysinu í sjálfu Ráðhúsinu í síðustu viku. Á morgun er boðuð stofnun hústökuleikskóla í Ráðhúsinu meðan á borgarráðsfundi stendur.

Chicco bóndabærinn talar íslensku
Fyrsta íslenskumælandi leikfangið frá Chicco er komið á markað hér á landi, krúttlegur bóndabær þar sem börn á aldrinum eins til fjögurra ára geta leyst þrautir á íslensku og ensku.

Hver er vandinn?
Leikskólamál voru kosningamál síðastliðið vor og flestir flokkar ætluðu sér að brúa bilið milli leikskóla og fæðingarorlofs. Fáir höfðu raunverulegar hugmyndir um það hvernig fara mætti að því og enn færri lögðu fram tillögur sem myndu ráðast að rót vandans, sem er að fjölga leikskólakennurum. Ef sá vandi er ekki leystur munu allar tilraunir til að stækka leikskólakerfið, til dæmis með því að taka inn yngri börn, draga úr gæðum leikskólastarfs og hafa alvarleg áhrif á starfsumhverfi leikskólakennara.

Stýrihópur um leikskólamál skilar minnisblaði fyrir fimmtudag
Stýrihópur sem heldur utan um uppbyggingu leikskóla í Reykjavík mun skila minnisblaði um stöðu mála fyrir fund borgarráðs á fimmtudag.

Borgin hafi dregið foreldra á asnaeyrunum
Borgin hefur dregið okkur á asnaeyrunum , segir faðir tæplega tveggja ára barns sem hefur enn ekki komist inn á leikskóla. Hann vill að foreldrar í sömu stöðu fái bætur, enda hafi margir nýtt sumarfrí næsta árs og tekið launalaust leyfi til að sjá um börnin.

„Fátækt hefur áhrif á börn. Þau skammast sín og finna oft fyrir mikilli höfnun“
Einstæð móðir og sjálfboðaliði í samtökum um fátækt segir fólk kvíða hækkandi útgjöldum sem fylgja skólabyrjun. Hún leggur til að börnum verði útvegaðar skólatöskur. Vaxandi verðbólga bitni helst á þeim sem glíma við fátækt.

Geti kallað á aðkomu lögreglu að fara með börn að gosinu
Umboðsmaður barna ítrekar að foreldrar eigi að gæta velferðar og öryggis barna sinna í tilefni barnabanns Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Börn yngri en tólf ára gömul mega ekki ganga að gosstöðvunum í Meradölum.

Úkraínskir krakkar lærðu fótbolta og eignuðust nýja vini hjá Þrótti
Úkraínskir krakkar nutu velvildar Þróttara í liðinni viku þegar þeim var boðið að sækja fótboltanámskeið. Það voru Úkraínumennirnir Konstiantyn Iaroshenko og Konstiantyn Pikul, leikmenn Þróttar, sem leiðbeindu krökkunum sem sumir höfðu aldrei spilað fótbolta áður.

UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) mun taka við rekstri Skólabúðanna að Reykjum frá næsta skólaári. Um 3.200 nemendur í 7. bekk í grunnskóla heimsækja búðirnar ár hvert.

Fjarskafögur fyrirheit
Enn einu sinni eru leikskólamálin í brennidepli. Fyrirheit borgarstjórnar um að öll 12 mánaða börn og eldri fái leikskólapláss í haust virðast ekki ætla að ganga eftir og foreldrar eru uggandi.

Dagforeldrastéttin sem brúar bilið
Í áratugi hafa dagforeldrar brúað bilið. Við fáum þó aldrei hrós fyrir það. Við höfum sparað borginni miljarða, en hvergi erum við nefnd. Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og ávallt reiðubúin og höfum verið.

Krakkar ósáttir með bann á gosstöðvum: „Mér finnst það ekki í lagi“
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um ákvörðun hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Börn segja ósanngjarnt að sumir megi ekki skoða gosið.

„Þetta er algjör skrípaleikur“
Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni.

Lestur barna er á ábyrgð foreldra
Mikið hefur verið í umræðunni undanfarinn tíma að lestur barna (sérstaklega drengja) sé ekki nógu góður og skólakerfið sett inn í þá umræðu. Kennarar þurfi að leggja auknar áherslur á lestur barna svo börnin geti lesið sér til gagns við lok grunnskólagöngu. Lítið hefur farið fyrir umræðu foreldra í þessar umfjöllun. Lestur er á ábyrgð foreldra.

Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða.

Hvernig skólatösku á ég að velja fyrir barnið mitt? – skilaboð frá iðjuþjálfum
Að mörgu er að hyggja þegar velja á skólatösku og miðað við auglýsingar verslana er úrvalið töluvert. Iðjuþjálfar hvetja foreldra til að vanda valið enda hefur góð skólataska mikið forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barna.

Stjórnvöld fá falleinkunn í netöryggismálum
Íslensk stjórnvöld eru í 4. sæti meðal Evrópuþjóða í stafrænni þjónustu og markmiðið er að gera enn betur á komandi árum. Markmið Stafræns Íslands er að gera aðgengi að upplýsingum og þjónustu auðveldari á komandi árum.

Börn geti fengið of stóran skammt af svefnlyfjum vegna ósamræmis samheitalyfja
Sérfræðingur í nýrnalækningum barna segir „bagalegt“ að lyfseðilsskylt svefnlyf fyrir börn fáist ekki á landinu og að samheitalyf skuli koma í mörgum mismunandi styrkleikum. Slíkt geti valdið því að börn fái of stóran skammt af svefnlyfjum.

„Utan frá séð lítur þetta út eins og einhver geðþóttaákvörðun“
Í morgun tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að gossvæðið yrði lokað fyrir alla umferð í dag, en tilkynnti jafnframt að ákvörðun hefði verið tekin um að heimila ekki umferð barna yngri en tólf ára um gosstöðvarnar, óháð veðurskilyrðum.

Sum börn séu betur til þess fallin að ganga að gosinu en fullorðið fólk
Í dag bárust fregnir af því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði tekið þá ákvörðun að börn undir tólf ára aldri væru ekki velkomin að eldgosinu í Meradölum. Mikið ósætti virðist ríkja meðal fólks vegna ákvörðunarinnar en lögreglustjórinn, Úlfar Lúðvíksson segir að verið sé að „tryggja hagsmuni barna“ með þessari ákvörðun.

Leikskólinn byrjaður og sautján mánaða gömul börn sitja heima
Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Móðir sautján mánaða barns sem fær ekki leikskólapláss í haust líkir leikskólamálum borgarinnar við frumskóg.

Ný fjölskyldumiðstöð Snapchat fyrsta skref í bættu öryggi
Samfélagsmiðillinn Snapchat kynnti sínar fyrstu öryggisráðstafanir sem beinast að foreldrum ungra notenda miðilsins í dag.

Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum
Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára.

Eldgosið bannað börnum yngri en tólf ára
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að meina börnum yngri en tólf ára aðgangi að eldgosinu í Meradölum. Öflugri gæsla verður á svæðinu í dag en í gær.

Holdgervingur eitraðrar karlmennsku slær í gegn á TikTok
Fyrrum bardagakappinn Andrew Tate hefur slegið í gegn á TikTok síðustu vikur, þá sérstaklega meðal ungra karlmanna. Ummæli Tate verður þó að flokka oft á tíðum sem afar umdeild en hann talar oftar en ekki niður til kvenna og ýtir undir eitraða karlmennsku. Fleiri og fleiri ungir karlmenn fylgjast með Tate á hverjum einasta degi.

Vill að tilmæli verði gefin út um göngu barna að gosinu
Borgarfulltrúi Flokks fólksins mælist til þess að yfirvöld gefi út sérstök tilmæli til foreldra að þeir taki fyrirmælum um að fara ekki með ung börn sín að eldgosinu í Meradal alvarlega.

Ferðaplönin vs. raunveruleikinn
Öll höfum við ákveðnar hugmyndir um hvernig ferðalögin okkar eiga að vera – t.d. slökun og „tjill“ á ströndinni, skoða borgir, söfn og fornar minjar. Setjast svo niður í rólegheitum og drekka rjúkandi heitan kaffibolla, kaldan drykk eða snæða góðan mat á veitingastað. Eiga notalegar stundir á pallinum í kvöldsólinni. Þetta lítur allt mjög vel út á blaði þegar ferðin er skipulögð.

Ung börn örmögnuðust á leiðinni frá gosstöðvunum
Erlendir ferðamenn fóru með tvö ung börn sín upp að gosstöðvunum í Meradölum í gærkvöldi. Á leiðinni niður örmögnuðust börnin í slæmum veðuraðstæðum. Leiðsögumaður sem var á svæðinu segir „firringu“ hafa átt sér stað í gærkvöldi.

Eiga von á regnbogabarni
Hjónin Chrissy Teigen og John Legend eiga von á regnbogabarni sem hún tilkynnti um í færslu á Instagram. Chrissy segist vera stressuð á meðgöngunni en tæp tvö ár eru liðin síðan þau misstu son sinn Jack á miðri meðgöngu.

Að græða á ríkinu en tapa börnum sínum
Þegar fólk er ungt og ástfangið getur ekkert gerst. Framtíðin blasir við unga fólkinu. Barn í vændum og hamingja óstjórnleg. Ekki hægt að hemja hana. Par bíður í ofvæni eftir að erfingi fæðist. Síðan annar. Þau gifta sig ekki. Margir telja það óþarfa.