
Gjaldþrot

730 milljóna króna gjaldþrot félags stofnað í kringum kísilverksmiðjuna í Helguvík
Engar eignir fundust í þrotabúi Kísils III sem úrskurðað var gjaldþrota í september síðastliðnum. Lýstar kröfur í búið námu 731 milljón króna.

Ekki króna fannst upp í 600 milljóna gjaldþrot fyrirtækis Magnúsar
Engar eignir fundust upp í 628 milljóna króna kröfur í þrotabú félags í eigu Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon. Félagið Brimstone ehf. var úrskurðað gjaldþrota í maí á þessu ári og lauk skiptum þann 4. desember.

Vildu 71 milljón úr búi iglo+indi
Engar eignir fundust í búi hönnunarverslunarinnar iglo+indi.

3,7 milljarða forgangskröfur samþykktar í þrotabú WOW air
Búið er að samþykkja níu hundruð forgangskröfur er nema alls 3,7 milljörðum króna í þrotabú WOW air. Boðað var til skiptafundar í þrotabúinu á Nordica hótel í dag og að sögn Þorsteins Einarssonar skiptastjóra voru flestar forgangskröfur samþykktar.

171 milljóna króna gjaldþrot Ingunnarstaða ehf
Stærstur hluti krafna í þrotabúið fékkst greiddur.

Önnur starfmannaleiga Ingimars í þrot
Starfsmannaleigan Manngildi ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta.

Arnar gjaldþrota
Arnar Bergmann Gunnlaugsson, fjárfestir og fyrrverandi knattspyrnumaður, var úrskurðaður gjaldþrota í sumar og lýkur skiptum á búinu á næstu dögum.

26,4 milljóna króna gjaldþrot á einu ári
Skiptum er lokið í þrotabúi fyrirtækis Jupiter gisting ehf., sem var í eigu athafnamannsins Sverris Einars Eiríkssonar.

Lögmaður Skúla svarar Sveini Andra fullum hálsi
Segir Svein Andra í nauðvörn og vilji snúa vörn í sókn með vafasömum yfirlýsingum.

Borgaði sig að halda Sólningu í rekstri
Skiptastjóri Sólningar segir að það hafi verið rétt að halda rekstrinum gangandi. Útlit fyrir að heimtur verði mun betri en ella. Óhefðbundin leið sem fleiri skiptastjórar geta nýtt sér. Mikilvægt að þekking á rekstrinum sé til staðar til að verkefnið gangi upp.

„Að sjálfsögðu á ég fyrir því“
Sveinn Andri Sveinsson mun endurgreiða hundrað milljónir en þar með er ekki öll sagan sögð.

Tryggingin dugði fyrir 190 milljóna kröfum
Byrjað verður að greiða samþykktar kröfur á næstu dögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

Barnafatamerkið iglo+indi gjaldþrota
Hönnunarfyrirtækið Ígló ehf hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Menn í vinnu pakka saman
Starfsmannaleigan Menn í vinnu hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta, en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í síðustu viku.

Settu stefnuna á Michelin-stjörnu en enduðu í 106 milljóna gjaldþroti
Ekki ein einasta eign fannst í þrotabúi veitingastaðarins Nostra.

West Seafood á Flateyri gjaldþrota
Fiskvinnslufyrirtækið West Seafood á Flateyri var úrskurðað gjaldþrota fyrr í mánuðinum.

Almennir kröfuhafar í þrotabú WOW air fá ekki krónu
Eftir að kröfur voru innkallaðar var fyrsti skiptafundur haldinn með helstu kröfuhöfum í dag.

Krefja Skúla um tæpar 108 milljónir sem fengust frá WOW sjö vikum fyrir gjaldþrot
Um var að ræða arð sem WOW air fékk greiddan frá Cargo Express.

Foreldrafélög, leikskólar og framhaldsskólar eiga inni pening hjá WOW
Skúli Mogensen er einn þeirra sem hefur gert kröfu í þrotabú flugfélagsins WOW Air. Alls bárust 5964 kröfur í búið fyrir lok kröfulýsingarfrests þann 3. ágúst síðastliðinn.

Flugvélaleigur, rekstrarfélög og þýska lögreglan á meðal kröfuhafa
Kröfur í þrotabú flugfélagsins WOW Air nema rúmlega 138 milljörðum króna en 5964 kröfur bárust fyrir lok kröfulýsingarfrests þann 3. ágúst síðastliðinn. Ekki hefur verið tekin afstaða til krafanna en farið verður yfir kröfuskrá á skiptafundi WOW Air 16. ágúst næstkomandi.

Skúli gerir tæplega fjögurra milljarða kröfu í þrotabú WOW air
Þetta kemur fram í kröfuskrá þrotabúsins sem afhent var þeim kröfuhöfum sem óskuðu eftir í dag.

Kröfur í þrotabú WOW air nema 138 milljörðum króna
Stærsti kröfuhafinn fer fram á 52,8 milljarða króna.

Umdeilt Panamafélag í 277 milljóna þrot
Skiptum er lokið í þrotabú félagsins Sýrey ehf, en um 1,52 prósent fengust upp í almennar kröfur sem voru tæplega 278 milljónir króna.

Er ráðlagt að slitastjórnarmenn séu skipaðir skiptastjórar?
Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem falin er meðferð þrotabúa, njóti almenns trausts og virðingar.

Boða nauðungarsölu á eignum Björns Inga
Sýslumaðurinn á Vesturlandi, Ríkisskattstjóri, Hvalfjarðarsveit og Vátryggingafélag Íslands hafa farið fram á að fjórar eignir fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar í Hvalfjarðarsveit verði seldar nauðungarsölu.

Bókunarþjónusta í 270 milljóna þrot
Kröfur í þrotabú bókunarþjónustunnar Iceland Travel Asisstance, sem tekið var til gjaldþrotaskipta í mars á síðasta ári, námu rúmum 268 milljónum króna.

200 milljóna króna gjaldþrot vegna Jamie´s
Skiptum á þrotabúi Borgarhorns ehf. er lokið en félagið var á sínum tíma rekstraraðili Jamie's Italian á Íslandi.

Tölvutek gjaldþrota
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á beiðni stjórnar Tölvuteks ehf, sem rak samnefnda verslun við Hallarmúla í Reykjavík og á Akureyri, að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Gjaldþrota, fjallhress og sáttur
John Snorri göngugarpur hefur verið úrskurðaður gjaldþrota og honum er létt.

Rúmlega þúsund kröfur vegna Gaman ferða
Ferðamálastofa áætlar að nokkurn tíma muni taka að fara yfir þann mikla fjölda krafna sem gerður var í tryggingafé ferðaskrifstofunnar Gaman ferða, sem lögðu upp laupana í vor.