Heilbrigðismál

Missti minnið eftir raflost
Gunnhildur Una lýsir reynslu sinni af raflostmeðferðum sem hún fór í á Landspítalanum. Hún glímdi við djúpt þunglyndi og meðferðin átti að kippa henni upp, hratt og örugglega. Eftir meðferðina missti hún bæði minni og færni til að gera einföldustu hluti eins og að kaupa inn mat.

840 milljónir til að stytta bið eftir mikilvægum aðgerðum
Liðskiptaaðgerðir, augasteinsaðgerðir, tilteknar kvenlíffæraaðgerðir og brennsluaðgerðir vegna gáttatifs verða í forgangi við ráðstöfun 840 milljóna króna sem ætlaðar eru til að stytta bið sjúklinga eftir mikilvægum aðgerðum.

Vilja fá sálfræðinga í skóla strax í haust til að bæta líðan
Samfylkingin leggur fram þingsályktunartillögu um fría sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanema. Þetta er í fjórða sinn sem tillagan er lögð fram. Þingmaður er bjartsýnn á að tillagan nái fram að ganga.

Reynir á trúnaðarmannakerfið að fylgja eftir styttingu vinnuvikunnar
Forseti ASÍ segir að stytting vinnuvikunnar sé stór breyting en á sama tíma mjög spennandi verkefni.

Málefni aldraðra eitt af stóru málum ársins
Stjórnvöld standa frammi fyrir þeirri staðreynd að meðalaldur fólks fer hækkandi með ári hverju. Mikil fjölgun hefur orðið í aldursflokki aldraðra og segir landlæknir málaflokkinn vera áskorun enda hafi lengi verið vandi á Landspítala.

Runólfur skipaður skrifstofustjóri
Runólfur Birgir Leifsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri yfir skrifstofu hagmála og fjárlaga í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára.

Sóltún öldrunarþjónusta tekur við rekstri Sólvangs
Sóltún öldrunarþjónusta hefur tekið við rekstri hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði í kjölfar útboðs Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands á síðasta ári.

Vilborg ráðuneytisstjóri þar til Ásta tekur við
Heilbrigðisráðherra hefur sett Vilborgu Þ. Hauksdóttur til að gegna stöðu ráðuneytisstjóra tímabundið frá 1. apríl til loka maí.

„Það lítur út fyrir að Reykjavíkurborg sé ekki annt um öryggi barna“
Íbúar í Seljahverfi í Breiðholti eru uggandi yfir fyrirhugaðri byggingu húsnæðis fyrir fólk með þungan geðrænan vanda, á sömu lóð og félagsmiðstöð barna í hverfinu.

Tveir Íslendingar fá heilablóðfall á dag
Heilablóðfall verður þegar æð sem flytur súrefnis- og næringarríkt blóð til ákveðins svæði heilans stíflast eða springur. Um tveir Íslendingar fá að meðaltali heilablóðfall á dag en sú tala fer þó sífellt lækkandi.

Blað brotið í baráttunni við eyðniveiruna
Tveir, og að líkindum fleiri, hafa nú verið læknaðir af HIV. Vísindamenn reyndu í 12 ár að endurtaka sögulega meðferð fyrsta einstaklingsins sem læknaður var af veirunni. Þó er lækning við eyðni enn fjarlægur draumur.

Óskar skipaður forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Óskar Reykdalsson forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára.

Flugfreyjurnar aftur á spítalana
Lærðir hjúkrunarfræðingar hverfa aftur til starfa á spítalana eftir flugið.

Milljarður gæti veikst alvarlega vegna hærri meðalhita jarðar
Allt að milljarður gæti veikst af sjúkdómum sem moskítóflugur bera fyrir lok aldarinnar vegna hlýnunar jarðar.

Ásta nýr ráðuneytisstjóri
Heilbrigðisráðherra skipað Ástu Valdimarsdóttur, núverandi framkvæmdastjóra hjá Alþjóðahugverkastofnuninni í Genf, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu til fimm ára.

Langvinn veikindi barns
Það er mjög krefjandi og erfitt hlutskipti að vera sjúklingur og gildir einu á hvaða aldri viðkomandi er í sjálfu sér.

Eftirlit með eftirlitinu
Í nóvember gerði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur úttekt á Fossvogsskóla og gaf honum einkunnina 4 af 5.

Erfitt að manna teymi í barnageðlækningum
Aðeins iðjuþjálfi og geðlæknir í hálfri stöðu, búsettur í Reykjavík, verða í barnaog unglingageðteymi Sjúkrahússins á Akureyri að óbreyttu um miðjan næsta mánuð. Erfiðlega gengið að manna teymið og tveir sálfræðingar hætt á hálfu ári

Tekist hefur að stöðva útbreiðslu mislinga
Engin mislingatilfelli greind á undanförnum dögum.

Varð fyrir vonbrigðum með ákvörðun SÁÁ að loka göngudeildinni
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að lokun göngudeildar SÁÁ Akureyri hafi komið sér á óvart og valdið henni vonbrigðum.

Bræður geðhjálpast að
Halldór og Kári Auðar Svanssynir hafa báðir tekist á við geðræna kvilla og höfðu nýlega vaktaskipti í stjórn Geðhjálpar þegar Kári hætti og Halldór tók við. Kári segir að tala megi um fjölskylduhefð í þessu sambandi.

Gefst aldrei upp
Örin sitja eftir, segir Einar Þór Jónsson, nýr formaður Geðhjálpar, sem missti bróður sinn úr sjálfsvígi fyrir ellefu árum. Hann segir frá uppvextinum, móðurmissinum, hvernig kerfið brást bróður hans og áfallinu við að greinast með HIV. Einar Þór berst á fleiri vígstöðvum, eiginmaður hans er þungt haldinn af Alzheimer.

Sá sem bar mislinga til Íslands finnur ekki til samviskubits enda taldi hann sig bólusettan
Leið eins og hann væri að drepast.

Frumvarp um örugg neyslurými sprautufíkla verður líklega að lögum
Neytendur ólöglegra fíkniefna í æð geta gert það í öruggu neyslurými undir eftirliti heilbrigðisstarfsmanna nái frumvarp heilbrigðisráðherra fram að ganga.

Fjórfalt meira af kókaíni í frárennslivatni í Reykjavík og miklu fleiri kókaínfíklar
Magn kókaíns í frárennslivatni í Reykjavík hefur fjórfaldast á tveimur árum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.

Sýklalyfjaónæmar bakteríur fundust í íslensku kjöti
Bakteríur með ónæmi fyrir sýklalyfjum fundust í skimun Matvælastofnunnar á íslenskum dýrum og kjöti.

Vantar fjármagn til að ljúka breytingum á fleiri deildum geðsviðs
Breytingar sem hafa verið gerðar á geðsviði Landspítala í kjölfar sjálfsvíga, ná til þriggja deilda af átta. Verkefnastjóri hjá sjúkrahúsinu segir óvíst hvenær hægt verður að halda áfram vinnu við nauðsynlegar breytingar vegna skorts á fjármagni.

Heilbrigðiseftirlitið gaf Fossvogsskóla næst hæstu einkunn
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gaf Fossvogsskóla næst hæstu einkunn í reglubundnu eftirliti í nóvember. Fossvogsskóla var lokað vegna raka-og loftgæðamála rúmum fjórum mánuðum síðar. Deildarstjóri Umhverfiseftirlits borgarinnar segir farið að verklagsreglum við eftirlit sem fer fram einu sinni á ári í grunnskólum borgarinnar.

Breytingar á geðsviði í kjölfar sjálfsvíga
Breytingar hafa verið gerðar á geðsviði Landspítala í kjölfar tveggja sjálfsvíga. Verkefnastjóri sjúkrahússins segir að nýtt verklag tryggi frekar öryggi sjúklinga sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Gamla verklagið hafi ekki verið eins öruggt og það nýja.

Að missa barn úr fíkniefnaneyslu er einu barni of mikið
Félags- og barnamálaráðherra vill taka á fíknivanda barna og ungmenna.