Heilbrigðismál

„Við búum öll við geðheilsu rétt eins og við erum með hjarta“
Geðhjálp hefur sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við fyrirtöku í héraðsdómi Reykjavíkur í máli hjúkrunarfræðings sem ásakaður er um að hafa valdið andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans, og fjölmiðlaumræðu vegna fyrirtökunnar.

Læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun
Skráðum samskiptum heimilislækna við sjúklinga hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum og fleiri læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun. Þetta kom fram í erindi forstjóra Heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu á læknaráðstefnu sem nú fer fram í Hörpu. Hann tengir þetta ástand við aukin rafræn samskipti.

Eilíft líf líklega handan seilingar
Tæplega 300 núlifandi einstaklingar eru eldri en 110 ára gamlir, svokallaðir „íturöldungar“. Sá elsti er 118 ára og sá næst elsti 115 ára. Fjórir einstaklingar á Norðurlöndum tilheyra hópnum en Íslendingur hefur aldrei náð þessu marki; sá elsti varð 109 ára.

Telur mengunina líklegustu skýringuna á daglegum blóðnösum
Líklegt er talið að met hafi verið slegið í mengun af völdum útblásturs bíla á þessari öld. Reykvíkingar segja mengunina farna að hafa áhrif á heilsuna og kalla eftir tafarlausum aðgerðum.

Heildargreiðsla vegna einkarekinna dvalar- og hjúkrunarheimila 24,8 milljarðar
Áætluð heildargreiðsla árið 2022 vegna reksturs dvalar- og hjúkrunarheimila sem rekin eru af einkaaðilum með samningum við Sjúkratryggingar Íslands er 24,8 milljarðar króna. Þessi þjónusta er ekki veitt án samninga við hið opinbera.

Langlífir og hamingjusamir en um leið methafar í lyfjanotkun
Á meðan Íslendingar eru meðal hamingjusömustu og langlífustu þjóða í heimi setja þeir hvert metið á fætur öðru í lyfjanotkun. Heimilislæknir segir mikilvægt að finna út hvað veldur þessu og meta stöðuna upp á nýtt. Það geti verið skaðlegt að vera mörgum lyfjum í langan tíma.

Nýir starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins kosta 150 milljónir
Í svari við fyrirspurn Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingar til Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, kemur fram að fjölgað hefur í ráðuneytinu frá því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við 2021.

„Mannekla er að verða langstærsti vandi heilbrigðisþjónustu á Vesturlöndum“
Forstjóri Landspítala segir tillögur viðbragðsteymis um bráðaþjónustu stórt skref og löngu tímabært. Á bráðamóttöku Landspítala hafi staðan verið mjög þung undanfarið en þó skánað. Þegar holskefla veirusýkinga fari að renna sitt skeið muni hagurinn vænkast en mannekla sé aftur á móti að verða langstærsti vandi heilbrigðisþjónustu á Vesturlöndunum.

Fjarskiptalæknir gæti hafið störf innan nokkurra mánaða
Með tilkomu fjarskiptalæknis verður hægt að leysa mörg vandamál í bráðaþjónustu á landsvísu en bráðasérfræðingur sem leiddi vinnu viðbragðsteymis heilbrigðisráðherra segir að hægt væri að koma þjónustunni á fót á nokkrum mánuðum. Teymið lagði ýmsar tillögur að umbótum en þær leysa ekki vanda bráðamóttöku Landspítalans.

Vilja koma á fót sérstakri „bráðafjarheilbrigðismiðstöð“
Viðbragðsteymi á vegum heilbrigðisráðherra hefur lagt fram 39 tillögur að umbótum þegar kemur að bráðaþjónustu en tillögurnar voru kynntar á ríkisstjórnarfundi í dag. Í megindráttum snúa tillögurnar meðal annars að því að efla og samræma bráðaþjónustu um allt land og auka samvinnu milli stofnana.

Skerðing á Akureyri þar sem gengur illa að fá fólk til starfa
Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Valkvæðum skurðaðgerðum verður fækkað tímabundið meðal annars til að létta á álagi á gjörgæsludeild. Þetta kemur fram í pistli Hildigunnar Svavarsdóttur forstjóra á vefsíðu stofnunarinnar.

„Ég var á barmi þess að fyrirfara mér“
Fyrir sjö árum síðan fór íslensk kona á fimmtugsaldri í svokallað „ferðalag“ með hugvíkkandi efninu Ayahuasca. Eftir ferðalagið segist hún hafa hún náð botninum andlega og fór hún sjálfviljug á geðdeild Landspítalans vegna afleiðinga ferðalagsins. Hún var með sjálfsvígshugsanir og var hún greind í djúpri geðlægð.

Lofsyngur Landspítalafólk 32 kílóum léttari eftir heimsókn á Klíníkina
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir stærsta vanda heilbrigðiskerfisins á Íslandi snúa að offitu. Sjálfur fór hann í hjáveituaðgerð í ágúst og er 32 kílóum léttari.

Sigurður svo öflugur að ekki hafi verið tilefni til að auglýsa starfið
Heilbrigðisráðherra segist fylgja þeirri reglu að auglýsa í opinber störf en að í tilviki Sigurðar Helga Helgasonar, nýskipaðs forstjóra Sjúkratrygginga, sé hann svo öflugur stjórnandi að ekki hafi verið talin ástæða til að auglýsa stöðuna.

Sálfræðingar gagnrýna auglýsingu um „hugræna endurforritun“
„Það er mjög mikilvægt að almenningur sé gagnrýninn á það hver meðferðaraðilinn er. Og hann á að spyrja: Er meðferðaraðilinn heilbrigðisstarfsmaður? Því ef eitthvað fer illa og þér líður ef til vill verr eftir meðferð, þá er ekkert hægt að gera í því.“

Mælir alls ekki með því að fólk prófi hugvíkkandi efni heima hjá sér
Margir helstu vísindamenn, læknar og sérfræðingar á sviði hugvíkkandi efna héldu erindi á ráðstefnu um málefnið í dag. Rætt var um rannsóknir á efnum eins og MDMA, Sílósíbin, Ketamín og Ajúvaska og hvernig þau hafi gagnast við meðferð á geðröskunum. Geðlæknir segir rannsóknir lofa góðu en mælir gegn notkun efnanna.

Skipaður forstjóri Sjúkratrygginga án auglýsingar
Sigurður Helgi Helgason, skrifstofustjóri skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hefur verið skipaður forstjóri Sjúkratryggingar. Þetta staðfestir Sigurður í samtali við Vísi og segist spenntur að taka við starfinu. Stofnunin heyrir undir heilbrigðisráðuneyti Willums Þórs Þórssonar.

Biðin eftir lausn á biðlistavanda
Eftir síðustu kosningar urðu þær breytingar að Vinstri græn yfirgáfu heilbrigðisráðuneytið og afhentu Framsóknarflokknum lyklana. Margir bjuggust við breytingum við þessi lyklaskipti. Allt síðasta kjörtímabil einkenndist af mikilli tregðu við að nýta krafta sjálfstætt starfandi sérfræðinga.

Orð Svanhildar sýni skilningsleysi og sendi erfið skilaboð
Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs endurspegla það gildismat samfélagsins að störf kvenna megi verðleggja hvernig sem er. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar því að hennar flokkur sé í aðför gegn stéttinni og telur að einkarekstur innan heilbrigðiskerfisins geti bætt kjör starfsfólks.

Dæmi um að börn hafi verið hætt komin vegna streptókokkasýkingar
Dæmi er um að börn hafi verið hætt komin og verið lögð inn á gjörgæslu vegna hættulegrar streptókokkasýkingar sem nú gengur yfir. Sérfræðingur í barnasmitsjúkdómum segir alla á tánum vegna ástandsins.

Engin fagleg rök fyrir aðgerðum á landamærum vegna Covid í Kína
Sóttvarnalæknir telur engin fagleg rök fyrir því að taka upp aðgerðir á landamærum hér á landi til að vernda lýðheilsu vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína. Þetta kemur fram í nýju minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra.

Reyndist ekki tilbúinn að hætta: „Núna er vikan mín komin“
Veitingastaðurinn Lauga-ás var opnaður í gær eftir nokkurra vikna lokun. Opnunin er þó ekki með hefðbundnu sniði en allur ágóði rennur nú til góðgerðamála.

Áfengisneysla stigmagnast: „Á meðan þeir eru fúnkerandi er best að grípa inn í“
Áfengisneysla Íslendinga hefur stigmagnast og tilfellum skorpulifrar fjölgað, að sögn forstjóra Vogs. Hún segir sjúklinga illa á sig komna vegna drykkju og hvetur fólk til að takast á við vandamálin áður en í óefni er komið.

Hvenær er nóg nóg?
Þessari spurningu var varpað fram í Silfrinu sunnudaginn 8. janúar þegar kjör heilbrigðisstétta og staða heilbrigðiskerfisins voru til umræðu. Þetta er góð spurning sem flestir ættu að velta fyrir sér.

Borgin ekki enn greitt skaðabætur vegna mistaka barnaverndar árið 2013
Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Þá neitar borgin að afhenda konunni greinagerð dómkvaddra matsmanna um miska konunnar, sem borgin óskaði eftir.

Hugvíkkandi efni spennandi en margt enn óljóst
Geðlæknar eru upp til hópa spenntir fyrir þeirri nálgun að hugvíkkandi efni í lækningarskyni að sögn Karls Reynis Einarssonar, formanns Geðlæknafélags Íslands.

Fólk ekki öruggt í íslensku samfélagi nema það sé vel fjáð
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir Landspítalann ekki nógu vel fjármagnaðan. Erfitt sé að telja sér trú um að fólk sé öruggt í íslensku samfélagi nema það sé vel stætt fjárhagslega.

Elísabet Jökulsdóttir fékk nýra
Skáldkonan Elísabet Jökulsdóttir er komin með nýtt nýra. Í byrjun síðasta árs var hún komin á lokastig nýrnabilunar.

Ótrúleg saga Árna Þórðar: „Ég sé að honum hrakar og þetta endar með ósköpum“
Árni Þórður Sigurðsson hefur náð ótrúlegum bata eftir að hafa veikst af svokallaðri fjöllíffærabilun. Honum var haldið sofandi í fimm mánuði og var talinn í lífshættu í heilt ár.

Þurfi drastískar aðgerðir til að mengunardauðsföll fari niður fyrir fimm fyrir 2029
Þingmaður Pírata hefur kallað eftir fundi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna mikillar loftmengunar á fyrstu dögum ársins. Hann segir um að ræða lýðheilsumál sem stjórnvöld hafi ekki brugðist við af nógu mikilli hörku.