Heilbrigðismál
77 78 79 80 81 82 83 84 85 … 219 ›
Starfsfólk Landspítala biðlar til óbólusettra Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn Landspítala kveðst nú hafa miklar áhyggjur af þeim hópi fólks sem ekki hefur látið bólusetja sig og starfsfólk Landspítala biðlar til óbólusettra að endurskoða ákvörðun sína. Ef ekki tekst að ná fjölda smitaðra niður má gera ráð fyrir að 60 manns verði inniliggjandi á spítala, þar af fimmtán á gjörgæslu, þann 10. janúar. Innlent 30.12.2021 16:18
„Takk Covid fyrir að sýna mér þessa nýju tilveru“ „Það er svo ótrúlega skrítið þegar tilveran fer svona á hvolf eins og síðustu tæplega tvö ár hafa liðið þá er til fólk sem mislíkar það ekki svo sárt,“ skrifar Katrín Björk Guðjónsdóttir á bloggsíðu sinni þar sem hún skrifar á jákvæðan hátt um það hvernig það er að vera ung kona í bataferli eftir heilablæðingar. Lífið 30.12.2021 13:30
Allt að 72 tíma bið eftir niðurstöðu úr PCR Óvenjumörg PCR-einkennasýni hafa verið tekin síðustu daga og fjöldinn farið fram úr afkastagetu sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans sem sér um greiningu sýnanna. Getur fólk nú átt von á því að bið eftir niðurstöðu sé allt að þrír sólarhringar eða 72 tímar. Innlent 30.12.2021 11:52
Lokuðu skammtímavistun fyrir fötluð börn vegna manneklu Loka þurfti skammtímavistheimili fyrir fötluð börn í Reykjavík í nokkra daga í síðustu viku vegna manneklu. Velferðarsvið hefur umsjón með heimilinu en sviðið hefur þar að auki umsjón með heimaþjónustu og búsetukjörnum. Neyðarstjórn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefur nú verið virkjuð. Innlent 29.12.2021 18:51
Fólk með kvef beðið um að fara í PCR áður en mætt er á heilsugæslu Fólk með kvefeinkenni eða önnur einkenni sem geta bent til kórónuveirusýkingar er beðið um sýna nýlega niðurstöðu úr PCR-einkennasýnatöku áður en það mætir á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Gera þarf ráð fyrir því að bið eftir niðurstöðum geti verið allt að 48 klukkustundir. Innlent 29.12.2021 18:42
Flytja 30 af Landspítala á aðrar stofnanir til að létta álag Þrjátíu sjúklingar, sem nú liggja á Landspítala, verða fluttir þaðan á aðrar heilbrigðisstofnanir víðs vegar um land til að bregðast við erfiðum aðstæðum á spítalanum vegna Covid. Innlent 28.12.2021 12:04
Hópsmit hafi verið tímaspursmál Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, hefur áhyggjur af stöðu mála á spítalanum í ljósi fjölda þeirra sem nú greinast smitaðir af kórónuveirunni. Í dag greindust sjö inniliggjandi sjúklingar á hjartadeild smitaðir, Tómas segir það hafa verið tímaspursmál hvenær veiran kæmist inn á spítalann. Innlent 28.12.2021 00:06
Framtíð geðheilbrigðismála Á hverjum degi síðastliðna 22 mánuði hafa íslensk stjórnvöld birt tölulegar upplýsingar um Covid-faraldurinn. Hversu margir greinast, eru í sóttkví, eru inniliggjandi, eru á gjörgæslu, eru á öndunarvél og hafa látist. Skoðun 27.12.2021 15:54
Að minnsta kosti tveir inniliggjandi sjúklingar með ómíkron Tveir sjúklingar af þeim fjórtán sem eru nú inniliggjandi á Landspítala eru með ómíkron afbrigði veirunnar en ekki er útilokað að þeir séu fleiri. Mikið álag er nú á göngudeildinni og smitrakningarteymi almannavarna. Innlent 27.12.2021 13:51
Nýta reynsluna eftir hópsmitið á Sólvöllum Hópsmit kom upp á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðir í Vestmannaeyjum yfir hátíðirnar en átta starfsmenn og fjórir íbúar hafa nú greinst. Svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum segir viðbúið að fleiri muni greinast á næstu dögum en verið er að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Innlent 27.12.2021 13:15
Ómíkron kalli á breytingar á einangrun Fimm hafa kært ákvörðun sóttvarnalæknis um að skikka þá í einangrun vegna Covid-19. Aðalmeðferð í málum þeirra fer fram í dag en niðurstaðan gæti orðið til þess að endurskoða þyrfti alla nálgun á sóttvarnatakmarkanir á Íslandi. Innlent 27.12.2021 12:08
Siglum báruna Líf okkar allra hefur markast af kófinu síðastliðin tvö ár og því hefur fylgt gríðarlegt heilsufarslegt og efnahagslegt tjón. Þegar þetta er ritað eru tæplega sjö þúsund manns á landinu í einangrun eða sóttkví yfir jólin, langflestir með lítil eða engin einkenni. Umræðan 26.12.2021 09:00
Hjarta Geirs hætti að slá í hjólaferð í Hrunamannahreppi Ótrúleg elja Ingunnar Sigurbjörnsdóttur, eiginkonu Geirs Óskarssonar, og skyndihjálparnámskeið frá 1986 sem hún tók þátt í skiptu sköpum þegar hjarta Geirs hætti að slá á annars fallegum sumardegi í Hrunamannahreppi í sumar. Þau eru uppfull af þakklæti til allra þeirra sem komu að því að bjarga lífi hans. Innlent 25.12.2021 15:01
Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð. Innlent 25.12.2021 08:01
Stoðsending til velferðarmála Það var skemmtilegt að fylgjast með kosningabaráttunni haust fyrir okkur sem störfum innan vébanda Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV. Allir flokkar og framboð voru á því að styrkja þyrfti og styðja betur við hjúkrunarheimili, dagdvalir og fyrirtæki i velferðarþjónustu. Það var meiningarmunur á útfærslum en engan stjórnmálamann hittum við sem tók ekki undir þessi sjónarmið. Skoðun 23.12.2021 08:00
Skattlaust ár fyrir heilbrigðisstarfsfólk í bráðaþjónustu? „Hvernig væri að veita heilbrigðisstarfsfólki í bráðaþjónustu skattlaust ár?“ spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, í Facebook-færslu. Innlent 22.12.2021 08:12
Sammála um að skynsamlegt sé að létta álaginu af spítalanum með aðkomu fleiri en ríkisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spyr hvort til greina komi að ríkið leiti í auknum mæli til annarra þeirra sem geta létt álaginu af Landspítalanum um að veita heilbrigðisþjónustu í ljósi faraldursins og þess álags sem spítalinn er undir vegna hans. Innherji 21.12.2021 20:01
Sprenging í tíðni áunninnar sykursýki: Matvælaframleiðendur beri mikla ábyrgð Sprenging hefur orðið í fjölda fólks sem hefur greinst með áunna sykursýki hér á landi síðustu ellefu ár. Aukningin helst í hendur við fjölgun fólks í ofþyngd. Talið er að þrjátíu prósent þeirra sem hafa sjúkdóminn séu vangreind. Innlent 21.12.2021 18:30
Segir að hugsa þurfi um líðan hjúkrunarfræðinga í óvæginni umræðu um Læknavaktina Yfirlæknir á Læknavaktinni segir óvægna umræðu á samfélagmiðlum um þjónustu símahjúkrunarfræðinga dapurlega. Hugsa verði um líðan og trúverðugleika hjúkrunarfræðinganna í slíkri umræðu. Innlent 21.12.2021 16:00
Börn og lyfjatilraunir Undanfarnar vikur og mánuði hefur harður áróður verið rekinn fyrir bólusetningu ungra barna við Covid-19. Í síðustu viku var gefið verulega í. Skoðun 20.12.2021 09:30
Fjögur þúsund Íslendingar með forstig mergæxlis Um fjögur þúsund Íslendingar 40 ára og eldri greindust með forstig mergæxlis í skimunarátakinu „Blóðskimun til bjargar“. Niðurstöðurnar voru kynntar á stórri læknaráðstefnu í Bandaríkjunum í síðustu viku. Innlent 20.12.2021 06:54
Gamla fólkið á Höfn látið bíða inn á baðherbergi á meðan herbergisfélaginn deyr Íbúar á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði þurfa að deila herbergi og salerni með öðrum. Þá geta íbúarnir ekki tekið á móti aðstandendum í herbergin sín því þau eru svo lítil og vilji íbúarnir komast í sturtu þarf að panta það fyrir fram. „Þegar við liggjum svo banaleguna er herbergisfélagi okkar færður inn á baðherbergi svo við getum átt næði síðustu ævistundirnar með okkar ástvinum,“ segja íbúarnir meðal annars í opnu bréfi til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar. Innlent 19.12.2021 12:16
Sannarlega ekki slæmt að gera tilraunir á börnum Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, biðlar til foreldra að láta sér ekki niðurstöður úr tilraunum sem hafa verið gerðar á börnum með bóluefni sem vind um eyru þjóta. „Við erum svo heppin að hópur barna hefur nú þegar tekið að sér að taka þátt í tilraun og sýnt fram á gagnsemi,“ segir hann í færslu á Facebook. Innlent 18.12.2021 21:23
„Hann öskraði að hann vildi deyja út af verkjum“ Móðir átta ára gamals drengs segist hafa mætt hroka og skilningsleysi á Læknavaktinni þegar hún hringdi inn vegna átta ára sonar síns, sem var þjakaður úr verkjum. Í ljós kom þegar drengurinn var fluttur á spítala að hann væri með heilablæðingu. Innlent 18.12.2021 14:16
Umdeildu Alzheimer-lyfi hafnað í Evrópu Evrópska lyfjastofnunin hefur hafnað því að veita bandaríska lyfjafyrirtækinu Biogen markaðsleyfi fyrir nýju en umdeildu Alzheimer-lyfi sem kom á markaðinn í Bandaríkjunum í sumar. Erlent 17.12.2021 13:59
Fagna ákvörðun ráðherra en segja enga töfralausn í sjónarmáli Félag talmeinafræðinga á Íslandi fagnar vilja ráðherra um að fella á brott tveggja ára starfsreynsluákvæði úr rammasamningi við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. Formaður félagsins segir að um stórt skref sé að ræða og bindur vonir við að samningaviðræður gangi hratt og vel. Innlent 15.12.2021 13:00
Ljósabekkjanotkun aldrei mælst minni á Íslandi Ljósabekkjanotkun á Íslandi stendur í stað milli ára en 6% fullorðinna segjast hafa notað ljósabekki einu sinni eða oftar á síðustu tólf mánuðum. Hlutfallið var það sama í fyrra en mældist 11% árið 2019. Innlent 15.12.2021 11:50
Segir mögulegt að leysa vandamálin með „jákvæðum hugsunarhætti“ „Það eru vonbrigði að hafa staðið í niðurskurði og fá ekki tækifæri til að byggja upp að nýju. Ég var bjartsýnn,“ sagði Björn Zoëga, þáverandi forstjóri Landspítala, í samtali við Vísi í september árið 2013 eftir að hafa tilkynnt að hann hefði sagt starfinu lausu. Innlent 15.12.2021 11:18
Legslímuflakk: bráðnauðsynlegar umbætur Legslímuflakk (endometriosis) er sjúkdómur sem getur valdið sárum verkjum og ófrjósemi, en talið er að sjúkdómurinn hrjái allt að 10% kvenna. Einkenni sjúkdómsins eru mismunandi og geta verið óljós og breytileg milli tímabila hjá sama sjúklingi og því getur reynst erfitt að greina hann. Greiningartími er því oftar en ekki fleiri ár. Skoðun 15.12.2021 09:00
Eigandi dýrasta stólsins fundinn og stóllinn fer á uppboð Stóllinn sem gerði allt vitlaust í Góða hirðinum í síðustu viku fer á uppboð á morgun. Fyrrverandi eigandi stólsins fannst og bað um að ágóði sölunnar rynni allur til Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsveika. Innlent 14.12.2021 19:00