Stjórnsýsla

Umboðsmaður sendir Ásmundi bréf vegna sameiningar
Umboðsmaður barna hefur sent Ásmundi Einari Daðasyni, mennta-og barnamálaráðherra bréf vegna sameiningar Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna og hvort nemendur hafi fengið að koma sjónarmiðum á framfæri.

Ófremdarástand í skilum ársreikninga
Ríkisendurskoðun segir að ófremdarástand ríki í skilum ársreikninga sjóða og stofnana fyrir árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Einungis 148 aðilar hafa uppfyllt skilaskyldu sína, eða um 22 prósent sjóða og stofnana. Þetta er litið alvarlegum augum.

„Stjórnsýsla Íslands er lítil“
Fjallað var um umfang stjórnarráðsins á Íslandi í fjölmiðlum á dögunum og ekki sízt þá staðreynd að samanlagt störfuðu rúmlega 700 manns í ráðuneytum landsins.

Sjokkeraðir nemendur MA boða til mótmæla á Ráðhústorgi
Nemendafélag Menntaskólans á Akureyri hefur boðað til mótmæla á Ráðhústorgi bæjarins í dag vegna mögulegrar sameiningar skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Forseti nemendafélags MA segir nemendur í sjokki eftir fund með ráðherra í gær og óttast að rótgrónar hefðir innans skólans glatist með sameiningu.

Nefnd sem hefur „eftirlit með eftirlitinu“ ekki starfrækt frá árinu 2020
Ráðgjafarnefnd um eftirlitsreglur hefur ekki verið starfandi frá árinu 2020. „Samkvæmt lögum um opinberar eftirlitsreglur, sem sett voru árið 1999, á þessi nefnd að hafa eftirlit með eftirlitinu,“ segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Áfram forstjóri á meðan framtíðarfyrirkomulag innkaupamála er skoðað
Setningartími Söru Lindar Guðbergsdóttur sem settur forstjóri Ríkiskaupa hefur verið framlengdur til áramóta. Vinna fer nú fram innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins um framtíðarskipulag umgjarðar innkaupamála hjá ríkinu.

Mútumálið á Selfossi komið á borð héraðssaksóknara
Héraðssaksóknari hefur boðað Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúa í Árborg í skýrslutöku vegna frétta af mögulegu mútubroti Leós Árnasonar fjárfestis. Tómas Ellert greindi frá því að Leó hafi boðið honum fjáhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann stuðlaði að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi.

Sakar eiganda fasteignafélags um að reyna að kaupa greiða
Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg sakar forsvarsmann fasteignafélagsins Sigtúns um að hafa boðist til þess að greiða fyrir kosningabaráttu flokksins gegn því að hann legðist gegn því að sveitarfélagið keypti hús Landsbankans á Selfossi.

Svara ekki hvort starfsfólki ráðuneyta fækki
Óvíst er hvort að starfsfólki ráðuneyta fækki í niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Rúmlega 700 manns starfa nú í ráðuneytunum, sem hafa aldrei verið fleiri og allir ráðherrar komnir með tvo aðstoðarmenn.

Má ekki heita Annamaría
Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri.

Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi
Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum.

Leggja til auðlindaákvæði í stjórnarskrá og fínpússun á veiðigjaldi
Kvótakerfinu verður viðhaldið og veiðigjald verður að miklu leyti óbreytt fari stjórnvöld að tillögum starfshóps sem matvælaráðherra fól að gaumgæfa stöðu sjávarútvegarins. Hópurinn leggur til að sameign þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni verði lögfest í stjórnarskrá.

DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið
Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag.

Tvær sóttu um forstjórastöðuna hjá Geislavörnum
Tvær sóttu um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun ágúst síðastliðinn.

Bæjarstjóri mætti ekki til að rökstyðja úthlutun án útboðs
Bæjarfulltrúi minnihlutans í Kópavogi segir skýringar bæjarstjóra, á því hvers vegna lóðinni Reit þrettán var úthlutað án útboðs, ekki halda neinu vatni.

Settur forstjóri skipaður forstjóri Skipulagsstofnunar
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Ólaf Árnason í embætti forstjóra Skipulagsstofnunar frá 1. september næstkomandi. Ólafur hefur verið settur forstjóri stofnunarinnar síðasta árið.

Andri Heiðar í eigendahóp Frumtaks Ventures
Andri Heiðar Kristinsson kemur inn í hóp eigenda Frumtak Ventures og verður fjárfestingastjóri. Undanfarið hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri Stafræns Íslands í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Hvers eiga bændur að gjalda?
Nú hefur Matvælastofnun boðað nýja gjaldskrá fyrir eftirlit og önnur gjaldskyld verkefni. Sauðfjárbúskapur á í vök að verjast og ef að gjaldskrárhækkun gengur í gegn er víst að horft sé fram á mikinn kostnaðarauka fyrir atvinnugreinina í heild sinni og eftirlitskostnað í kjölfarið.

Dýralæknir með einkaleyfi á skutlum ráðgjafi stjórnvalda
Norskur dýralæknir, Egil Ole Øen, ráðlagði íslensku ríkisstjórninni varðandi hvalveiðar á sama tíma og hann hagnaðist á einkaleyfi sprengiskutuls. Dýraverndarsamtök gagnrýna aðkomu læknisins.

Höfða mál á hendur ríkinu vegna útburðarins
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið ákvörðun um að stefna ríkinu vegna útburðar Jakubs Polkowski, 23 ára gamals öryrkja í Reykjanesbæ. Formaður ÖBÍ segir málið fordæmisgefandi og vonast til þess að það verði víti til varnaðar fyrir sýslumenn.

Ráðning heilsugæsluforstjóra enn í ferli
Ráðning í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiðsins, sem auglýst var laust til umsóknar í maí, er enn í ferli.

Kuba borinn út og ÖBÍ undirbýr skaðabótamál
Jakub Polkowski, 23 ára gamall öryrki í Reykjanesbæ, var í síðustu viku borinn út úr húsi sínu ásamt fjölskyldu af sýslumanninum á Suðurnesjum. Jakub og fjölskylda hans fluttu í félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins. Lögmaður Öryrkjabandalags Íslands kannar nú skaðabótarétt fjölskyldunnar vegna vinnubragða sýslumanns sem seldi húsið á nauðungaruppboði á þrjár milljónir króna.

Krefur ráðherra svara um hvalveiðibann
Umboðsmaður Alþingis hefur sent Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, bréf þar sem hann óskar eftir svörum um það hvort reglugerð sem bannar hvalveiðar tímabundið hafi verið gefin út og send til birtingar í Stjórnartíðindum áður en ríkisstjórnin var upplýst um setningu hennar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið flytur í Norðurhús
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið flytur í haust í framtíðarhúsnæði ráðuneytisins í Norðurhúsi við Austurbakka. Ráðuneytið mun þar deila húsnæðinu með utanríkisráðuneytinu og Landsbankanum.

Segir greinargerð Sigurðar marklaust plagg
Ríkisendurskoðandi segir greinargerð setts ríkisendurskoðanda í Lindarhvolsmálinu óklárað plagg sem aldrei hefði átt að líta dagsins ljós og sakar hann um dylgjur.

Litabreytingin fór öfugt ofan í íbúa
Verulegt ósætti er með þá litabreytingu sem gerð verður á hverfum Hellu á bæjarhátíðinni Töðugjöldum. Sveitarfélagið leggur til nokkurra ára aðlögunarferli.

Katrín Jakobsdóttir kynnir stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðunum
Staða Íslands og vinna í þágu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður kynnt á árlegum ráðherrafundi um sjálfbæra þróun í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Fundurinn hefst klukkan 19:00.

Keldan setur fjórtán ára barn varaþingmanns á áhættulista: „Mér finnst þetta svívirða“
Keldan hefur sett fjórtán ára gamalt barn á lista yfir í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla á grunni laga um peningaþvott og fjármögnun hryðjuverka. Varaþingmaður og faðir barnsins segir málið svívirðu.

Óheppilegt að fyrrverandi og núverandi ríkisendurskoðandi deili um Lindarhvolsmálið opinberlega
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir umfjöllun um Lindarhvolsmálið ekki lokið af hálfu nefndarinnar og að báðar skýrslur málsins liggi á borðinu. Hún telur óheppilegt að fyrrverandi og núverandi ríkisendurskoðandi deili um málið opinberlega.

Settur ríkisendurskoðandi segir Alþingi ekki ráða við Lindarhvolsmálið
Fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi segir dómstóla verða að skera úr um Lindarhvolsmálið. Alþingi virðist vera ófært um að klára málið.