Stjórnsýsla

Öll leikhúsgögnin komin á borð Lilju sem leggst undir feld
Mennta- og menningarmálaráðherra mun á næstu dögum skipa Þjóðleikhússtjóra. Þjóðleikhúsráð, Capacent og valnefnd hafa lokið störfum í málinu og skilað gögnum til ráðherra.

Skipar samráðsnefnd um fiskeldi
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin mun meðal annars hafa það hlutverk að meta forsendur og úrvinnslu gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á.

„Við hefðum viljað ganga lengra“
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að stjórnvöld hafi mátt ganga enn lengra við gerð frumvarps um breytingu á samkeppnislögum.

Stofnanir dragi lærdóm af málinu
Umsjónarmaður meistaranáms í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands segir upplýsingaleynd of ríkjandi í stjórnsýslunni. Lærdóm þurfi að draga af máli Seðlabankans gegn blaðamanni.

Sameining gæti þýtt nýtt 5.000 manna sveitarfélag
Nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi yrði það stærsta að flatarmáli hér á landi með tæplega fimm þúsund íbúa. Sameinað sveitarfélag fengi frá hinu opinbera rúman milljarð króna í meðgjöf.

Samið við fimm félög háskólamenntaðra
Kjarasamningur á milli fimm aðildarfélaga Bandalags háskólamanna og Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, var undirritaður aðfaranótt mánudags.

Óþarfa ótti
Merkilegur dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn föstudag.

Tímabundinn forstjóri UMST
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hefur sett Sigrúnu Ágústsdóttur, sviðstjóra hjá Umhverfisstofnun, til að gegna tímabundið embætti forstjóra stofnunarinnar til 1. mars 2020, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Staðfestu synjun
Ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að synja ferðaþjónusturisanum Arctic Adventure um leyfi til siglinga á Jökulsárlóni árið 2018 var staðfest af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á dögunum.

Ummæli sæma ekki formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins furðar sig á viðbrögðum Gylfa Magnússonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, varðandi nýtt frumvarp sem ætlað er að einfalda samkeppnisl

Eru fyrst og fremst að taka til
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boða aðgerðir til að einfalda regluverk. Binda vonir við að önnur ráðuneyti og sveitarfélög grípi til sömu aðgerða.

Nema á brott 1090 reglugerðir og 16 lagabálka
Aðgerðirnar eru liður í stóru verkefni um einföldun regluverksins.

Rúmlega 1000 reglugerðir felldar brott með einu pennastriki
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, felldi 1090 reglugerðir úr gildi með einu pennastriki í morgun

Bein útsending: Ráðherrar boða einfaldara regluverk
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra kynna aðgerðaráætlun um einföldun regluverks.

Vilja öflugra eftirlit með lögreglu
Þetta kemur fram í umsögn nefndarinnar til allsherjar- og menntamálanefndar um þingsályktunartillögu Helga Hrafns Gunnarssonar um sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu.

Áslaug Arna var ósátt við viðtal ríkislögreglustjóra
Áslaug tekur undir að fjölmiðlafárið sé að miklu leyti komið til vegna þess að Haraldur sjálfur fór í umrætt viðtal og segist hún hafa verið ósátt við framgöngu hans í viðtalinu.

Undrast tómlæti um Landsrétt
Dómsmálaráðherra hefur enn ekki brugðist við tillögum Dómstólasýslunnar um fjölgun dómara við Landsrétt. Þó að tillagan gæti leyst vanda Landsréttar og sparað ríkissjóði kostnað er hún ekki óumdeild.

Minnisvarði í djammsögunni deyr drottni sínum
Búið að loka Boston. Erfið rekstrarskilyrði riðu staðnum á slig.

Sakar ráðherra um trúnaðarbrest vegna NPA fyrir börn
Karl segir sambandið krefjast þess að ráðuneytið dragi þessar ráðagerðir til baka tafarlaust.

Umboðsmaður glímir við vangetu til að sinna frumkvæðismálum
Embætti umboðsmanns Alþingis glímir við vangetu til að sinna frumkvæðismálum sökum anna í öðrum verkefnum. Eftirlitsheimsóknir embættisins á geðdeild hafa þó leitt í ljós að lagaheimild skortir til að beita þeim úrræðum sem þar er stundum beitt.

Grunsemdir knýi á um fund með ráðherra
Samstarfshópur land- og sumarhúsaeigenda í Landsveit hefur farið fram á fund með Sigurði Inga Jóhannssyni, sveitarstjórnarráðherra, vegna uppbyggingarinnar ferðaþjónustufyrirtækisins Eternal Resorts á landi Leynis.

„Óþolandi og lítilsvirðing við þingheim“
Þingmenn Miðflokksins segja óþolandi hve langan tíma og hve erfitt það getur verið að fá upplýsingar frá ráðuneytum.

Þurfi að yfirvinna tregðu stjórnsýslunnar til að veita upplýsingar
Of algengt er að almenningur fái upplýsingar sem hann á rétt á bæði seint og illa að sögn umboðsmanns Alþingis.

Bein útsending: Umboðsmaður Alþingis kemur fyrir stjórnskipunar og eftirlitsnefnd
Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2018 verður til umfjöllunar á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem hefst klukkan níu.

Vonar að frumvarp um bætur til sakborninga leiði til sátta
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að verði frumvarp hennar um sanngirnisbætur til sýknaðra í Guðmundar- og Geirfinnsmálum að lögum sé til marks um skýran vilja Alþingis til að stjórnvöld sýni yfirbót vegna þeirrar meðferðar sem umrætt fólk sætti.

Fimmtíu fyrirspurnir á málaskrá úrskurðarnefndar
Erfitt að losa um upplýsingar úr iðrum kerfisins.

Enginn hefur beðið Ólínu afsökunar
Þingvallanefnd hefur beðið ríkislögmann að semja um bætur við Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur sem sótti um starf þjóðgarðsvarðar, vegna þess að jafnréttislög voru brotin. Spurt er um ábyrgð formanns nefndarinnar.

Rafræn ökuskírteini: Jákvæð fyrir öllu sem auðveldar stjórnsýsluna
Lögfræðingur hjá samgönguráðuneytinu segir ekki hafa verið tekna ákvörðun um að gefa út rafræn ökuskírteini hér á landi. Fylgst sé með gangi mála í Noregi.

Nýjar stofnanir verði á landsbyggðinni
Forsætisráðherra hefur brýnt fyrir ráðherrum að hugsa til landsbyggðarinnar þegar nýjar stofnanir eru settar á laggirnar. Minnisblað um málið lagt fram í ríkisstjórn. Fjórar nýjar stofnanir eru í farvatninu á yfirstandandi þingvetri.

Nauðsynlegt að geta treyst gögnunum
Villur í hagtölum Hagstofunnar hafa verið óvenjutíðar á árinu. Hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir hagtölur þurfa að endurspegla þróun hagkerfisins. Fyrirtæki og stofnanir þurfi að geta treyst þeim. Hagstofustjóri segir að ekki hafi verið slakað á í gæðum.