

Kínversk og nepölsk yfirvöld hafa náð samkomulagi um opinbera hæð Everest, hæsta fjalls í heimi. Opinber hæð fjallsins er nú 8.848,86 metrar.
Stjórnvöld í Kína og Nepal hafa lengi verið ósammála um hæð Everest-fjalls, hæsta fjalls heims, sem er að finna á landamærum ríkjanna. Samkomulag hefur hins vegar nú náðst milli ríkjanna um opinbera hæð fjallsins.
Átján kolanámuverkamenn í Kína létust og fimm er saknað eftir að koltvíoxíð gas lak inn í kolanámu í suðvesturhluta landsins í gær. Einum hefur verið bjargað úr Diaoshuidong námunni í Chongqing héraði í Kína að sögn ríkisútvarps Kína.
John Ratcliffe, æðsti yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, segir að ráðamenn í Kína séu að undirbúa sig fyrir átök við Bandaríkin. Hann segir að Bandaríkjamenn og lýðræðið hafi ekki staðið frammi fyrir jafn mikilli ógn síðan í seinni heimsstyrjöldinni.
Ríkismiðlar Kína segja að geimfarið Chang'e 5 sé nú á leið aftur til jarðarinnar eftir að hafa lent á tunglinu og tekið þaðan sýni. Geimfarið lenti á tunglinu fyrr í vikunni.
Yfirvöld í Kína segja að lending kínversks geimfars á tunglinu hafi heppnast. Geimfarið, sem kallast Chang'e 5, á að safna mánasteinum og flytja þá aftur til jarðarinnar.
Yfirvöld í Ástralíu hafa krafist afsökunarbeiðni frá ráðamönnum í Kína eftir að talsmaður utanríkisráðuneytis Kína deildi samsettri mynd sem sýna átti ástralskan hermann myrða stúlku í Afganistan.
Um ári eftir að nýja kórónuveiran stakk fyrst upp kollinum í Wuhan í Kína er útlit fyrir að ráðamenn í Kína séu að reyna að endurskrifa sögu veirunnar og Covid-19, sjúkdómsins sem hún veldur. Ríkismiðlar Í Kína hafa fjallað ítarlega um það að veiran hafi fundist utan landamæra Kína fyrir desember í fyrra.
Kínverjar hafa hafnað ásökunum Frans páfa um að þeir fari illa með minnihlutahópinn Úígúra, sem búa í Xinjiang héraði í Kína.
Kínverjar skutu í nótt geimfari á loft sem ætlað er að fara til tunglsins og koma til baka með tunglgrjót.
Yfirvöld í Kína hafa gripið til hertra sóttvarnaraðgerða eftir að á tuttugu manns greindust með Covid-19 í þremur borgum á síðustu viku.
Könnunargeimfar sem Kínverjar ætla að skjóta á loft í vikunni á að safna grjóti á tunglinu og koma með aftur til jarðar.
Íbúar aðildarríkja RCEP nemur hátt í þriðjungi heimsbyggðarinnar og hagkerfin bera samanlagt uppi um 29% af þjóðarframleiðslu í heiminum og er hin nýja viðskiptablokk þar með stærri en bæði fríverslunarsamningur Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó og Evrópusambandið.
Kínverjar hafa hótað Bandaríkjunum aðgerðum eftir að Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Taívan tilheyrði ekki Kína.
„Það má í raun segja að þetta hafi byrjað í Kína. Ég lenti í öðru sæti í keppni í Kína og það hljómar svo sem ekkert rosalega merkilegt þangað til að maður hugsar að það eru 6 milljón skráðir flúrarar.“
Allir nítján stjórnarandstöðuþingmenn sem eftir eru í Hong Kong ætla að segja af sér í kjölfar þess að yfirvöld eyjunnar ráku fjóra aðra þingmenn af þingi.
Þó að hamingjuóskum hvaðanæva að úr heiminum rigni nú yfir Joe Biden, nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, og Kamölu Harris, nýkjörinn varaforseta, hafa leiðtogar nokkurra valdamestu ríkja heims ekki óskað sigurvegurum kosninganna til hamingju.
Hvernig sem forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fara annað kvöld þá er augljóst að úrslitin munu eiga mikinn þátt í að móta það tímabil sem tekur við af þessu viðburðarríka ári.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin og Indland þurfi að vinna saman til að sporna gegn þeirri „ógn“ sem stafi af Kína.
Kínversk stjórnvöld ætla enn og aftur að skima heila borg eftir að kórónuveirusmit kom upp.
Ólafur Ragnar Grímsson á um fjörtíu ára feril að baki á sviði alþjóðastjórnmála og hefur komið ótrúlega víða við. Hann fer yfir þennan litríka feril sem og samskipti sín við erlenda ráðamenn og áhrifafólk sem og einstaka ráðamenn á Íslandi í forsetatíð hans í Víglínunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er enn með bankareikning í Kína þar sem hann hefur reynt að landa viðskiptasamningum í gegnum tíðina. Forsetinn hefur ekki gefið upp bankareikninginn í opinberri hagsmunaskráningu sinni en upplýsingar um hann er að finna í skattskýrslum hans.
Sænsk fjarskiptayfirvöld ætla ekki að leyfa búnað frá kínversku tæknifyrirtækjunum Huawei og ZTE við uppbyggingu á 5G-farneti og vísa í áhættumat hersins og leyniþjónustunnar. Útboð á tíðnisviðum vegna 5G fer fram í Svíþjóð í næsta mánuði.
Kínversk yfirvöld hafa varað yfirvöld í Washington við því að Bandaríkjamönnum í Kína verði meinað að fara úr landi.
Um þessar mundir æðir Kórónuveirufaraldurinn um heimsbyggðina, einangrunarhyggja og eineltismenning færist í aukana og alþjóðleg kerfi samvinnu búa við stöðugar árásir.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur samþykkt að selja ýmiss háþróuð vopn til Taívan. Málið hefur þó ekki enn verið formlega sent til þingsins til staðfestingar en það hefur þegar reitt ráðmenn í Peking til reiði.
Yfirvöld í kínversku borginni Qingdao ætla að prófa hvern einasta borgarbúa fyrir kórónuveirunni á næstu fimm dögum, en í Qingdao búa níu milljónir manna.
Kínverjar hafa nú ákveðið að ganga til liðs við COVAX-verkefnið, sem er samstarf þjóða heims um að dreifa væntanlegu bóluefni jafnt á meðal ríkja, óháð efnahag.
Öryggismyndavélar á vegum kínverska sendiráðsins virðast vakta svæði sem fer verulega út fyrir lóðamörk þess. Vöktunin kunni þar með að brjóta gegn persónuverndarlögum, að mati Persónuverndar.
Utanríkisráðuneytið hefur sett sig í samband við kínversk stjórnvöld vegna lista yfir Íslendinga sem koma fyrir í gagnasafni kínverska fyrirtækisins Zhenhua.