Kína

Leiðtogi Kína heimsækir Norður-Kóreu í fyrsta skipti í 14 ár
Xi Jinping, forseti Kína, mun ferðast til Norður-Kóreu á fimmtudag og vera í tveggja daga opinberri heimsókn, samkvæmt ríkisfréttamiðli Kína.

Stúdent losnar úr fangelsi og kallar eftir afsögn ráðamanna í Hong Kong
Einn fremsti aðgerðarsinni stúdenta í Hong Kong, Joshua Wong, hefur kallað eftir afsögn æðsta embættismanns sjálfstjórnarhéraðsins, Carrie Lam.

Tugir þúsunda mótmæla enn í Hong Kong
Þúsundir manna mótmæla enn í Hong Kong vegna umdeildra laga um framsalsheimildir, sem heimila framsal fólks frá Hong Kong til kínverskra yfirvalda á meginlandinu.

Hong Kong hættir við framsal til Kína í bili
Ríkisstjórn Hong Kong, með Carrie Lam fremsta í fararbroddi, hefur hætt við umdeild áform sín um að leyfa framsal til meginlands Kína. BBC greinir frá

Stjórnvöld í Hong Kong fresti framsalsfrumvarpi
Stuðningur á þingi og í stjórnmálasamfélaginu við frumvarp stjórnvalda í Hong Kong um að heimila framsal til meginlands Kína minnkar og ráðgjafar Carrie Lam, leiðtoga sjálfstjórnarhéraðsins, ráðleggja henni að fresta atkvæðagreiðslu.

Umdeildu lagafrumvarpi mótmælt í Hong Kong
Þúsundir mótmælenda gengu fylktu liði að löggjafarþinginu í Hong Kong til að mótmæla umdeildu lagafrumvarpi sem heimilar framsal brotamanna frá sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong til meginlands Kína.

Brugðust við fjöldamótmælum með táragasi og háþrýstidælum
Til átaka kom á milli óeirðarlögreglu og mótmælenda í Hong Kong.

Segja bróður Kim Jong-un hafa verið uppljóstrara fyrir CIA
Bróðir einræðisherra Norður-Kóreu er einnig talinn hafa verið í samskiptum við leyniþjónustu Kínverja.

Risamótmæli í Hong Kong vegna nýs lagafrumvarps
Telja að Kínverjar geti nýtt frumvarpið til að herja á pólitíska andstæðinga sína.

Xi segir Pútín sinn albesta vin
Samband Rússlands og Kínverja er orðið stórgott samkvæmt forsetum ríkjanna tveggja. Stórveldin standa nú saman gegn Bandaríkjunum í fjölmörgum ágreiningsmálum. Til að mynda í Íranmálinu.

Þrjátíu ár frá blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar
Þrjátíu ár eru í dag liðin frá blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar í Beijing, þegar kínversk stjórnvöld létu til skarar skríða gegn mótmælendum.

Víetnam talið líklegasta skotmark kínverska hersins
Nauðsynlegt er að fylgjast náið með samskiptum Kína og Víetnam í náinni framtíð. Kínverski herinn talinn hafa augastað á stríði við grannríkið til þess að öðlast reynslu sem hann telur sig þurfa á að halda.

Viðamesti rannsóknarleiðangur sögunnar á norðurskautinu hefst í haust
Stærsti rannsóknarleiðangur sögunnar er fram undan á norðurskautinu með þátttöku sautján þjóða og um þrjátíu stofnana víðs vegar um heiminn. Talsmaður verkefnisins segir nauðsynlegt að auka á þekkingu manna á norðurskautinu til að skilja þær miklu breytinga sem þar eigi sér stað vegna loftslagsbreytinganna.

Gefast ekki upp á baráttu fyrir Tíbet
Enn er barist fyrir frelsi Tíbet þótt dregið hafi verulega úr sýnileika frelsishreyfingarinnar. Verkefnastjóri hjá Free Tibet ræðir við Fréttablaðið og segir aukinn mátt Kínverja hafa þaggað niður í frelsissinnum.

Risaáætlun Kínverja um tengingu við umheiminn
Sautján ríki hafa nú þegar lýst sig reiðubúin til að taka þátt í viðamiklu verkefni kínverskra stjórnvalda sem kallað er Belti og braut og er ætlað að tengja Kína við Evrópu, Asíu og Afríku á landi og á sjó.

Tæknirisinn Huawei fær að koma inn úr kuldanum
Þrjú stór samtök í tæknigeiranum sem skáru á tengsl við kínverska tæknifyrirtækið Huawei fyrr í mánuðinum hafa skipt um skoðun.

Kröfðust réttlætis vegna blóðbaðsins á Tiananmen torgi
Þúsundir manna gengu fylktu liði um götur Hong Kong í dag til að minnast atburðana á Tiananmen torgi í Beijing í Kína fyrir þrjátíu árum þegar stjórnvöld brutu mótmæli námsmanna á bak aftur sem endaði með miklu blóðbaði.

Íslenskar hitaveitur verma 500 milljónir fermetra húsnæðis í Kína
Hitaveitur sem íslenskt fyrirtæki kemur að því að byggja í tugum borga í Kína munu hita upp allt að fimm hundruð milljónir fermetra og draga stórlega úr mengun í borgunum.

Svört staða Huawei en ekki ómöguleg
Kínverski tæknirisinn getur ekki lengur stundað viðskipti við afar mikilvæga samstarfsaðila vegna banns Bandaríkjaforseta. Missir Android-stýrikerfið og mikilvæga örflöguhönnun. Forstjóri Huawei í Svíþjóð kveðst vongóður um að deilan verði leyst.

Jarðhitaskóli að íslenskri fyrirmynd stofnaður í Kína
Á næstu mánuðum hefur starfsemi sína jarðhitaskóli að íslenskri fyrirmynd í Kína í samstarfi við Orkustofnun. Menntamálaráðherra segir vísindasamstarf þjóða vera lykilinn að árangri í baráttunni gegn loftlagsbreytingunum.

Greitt fyrir útflutningi á íslenskum framleiðsluafurðum til Kína
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína, undirrituðu í dag þrjár nýjar bókanir við fríverslunarsamning Íslands og Kína.

Landa milljarða samningi í Kína
Kínverski efnaframleiðandinn Henan Shuncheng Group hefur samið við íslenska tækniþróunarfyrirtækið Carbon Recycling International um að hanna verksmiðju byggða á tækni CRI til að framleiða umhverfisvænt eldsneyti og efnavöru í Kína.

Stærsta verkefni Íslendinga í umhverfismálum er í Kína
Íslendingar koma að uppbyggingu og rekstri á stærsta hitaveitukerfi í heimi í tugum borga í Kína.

Google takmarkar aðgang Huawei að Android
Tæknirisinn Google hefur ákveðið að verða við skipun Bandaríkjaforseta um að stunda ekki viðskipti við Huaweinema með sérstöku leyfi frá Bandaríkjastjórn.

CIA útsendari fangelsaður fyrir njósnir í þágu Kína
Fyrrverandi útsendari bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) hefur verið dæmdur til 20 ára fangelsisvistar í Bandaríkjunum vegna njósna fyrir kínversk stjórnvöld.

Hlé á erjum Trump við Kanada en stigmögnun gagnvart Evrópu
Stál- og áltollum á milli Bandaríkjanna og Kanada verður aflétt á næstu dögum en framundan eru deilur Bandaríkjanna við önnur bandalagsríki um viðskipti með bíla.

Viðskiptastríðið getur komið niður á hagkerfi heimsins
Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við afleiðingum viðskiptastríðs Bandaríkjanna og Kína fyrir heimsbyggðina.

Hóta hefndum vegna Huawei-banns
Bandaríkjaforseti mun setja bann við viðskiptum við kínverska tæknirisann Huawei með nýrri forsetatilskipun. Utanríkisráðuneyti Kína kveðst undirbúa gagnaðgerðir.

Trump bannar fyrirtækjum að nota erlenda fjarskiptatækni
Tilskipun Trump virðist beint sérstaklega að Kínverjum og er nýjasta útspil hans í viðskiptastríði þeirra.

Gagnkvæm viðurkenning Kína og Íslands á háskólanámi mikið réttindamál
Ísland og Kína munu viðurkenna háskólamenntun hvors ríkis fyrir sig eftir að menntamálaráðherrar ríkjanna undirrituðu samning þar að lútandi í Beijing í dag.