Bretland

Vilhjálmur prins rak upp stór augu: „Er þetta virkilega þú?“
Vilhjálmur, prinsinn af Wales, rak upp stór augu í heimsókn sinni í gær á kaffihús í Bournemouth þegar að í mannfjöldanum, sem var samakominn til þess að bera prinsinn augum og heilsa upp á hann, birtist Paul Gascoigne, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður Englands í fótbolta.

Frumsýndu lag og boðuðu fyrstu nýju plötuna í tæpa tvo áratugi
Rokkgoðsagnirnar í The Rolling Stones frumsýndu í dag nýtt lag og tónlistarmyndband og boðuðu útgáfu nýrrar plötu, þeirrar fyrstu frá árinu 2005.

Batt sig undir sendiferðabíl og strauk úr fangelsi
Lögreglan í Bretlandi leitar nú 21 árs gamals fanga sem tókst að strjúka úr fangelsi í suðvesturhluta Lundúna í morgun. Mannsins er nú leitað um allt landið.

Vilja flokka „rjómasprautugas“ sem fíkniefni
Breska ríkisstjórnin vill skrá nituroxíðgas sem ávana- og fíkniefni og banna notkun þess fyrir árslok. Gasið er sérstaklega vinsælt á meðal ungs fólks sem sniffar það meðal annars úr rjómasprautuhylkjum.

Egypski auðkýfingurinn Al Fayed látinn
Egypski auðkýfingurinn Mohamed Al Fayed, sem var meðal annars eigandi Harrods verslunarinnar og enska knattspyrnuliðslins Fulham FC, er látinn 94 ára að aldri. Al Fayed lætur lífið rétt rúmlega 26 árum eftir að sonur hans Dodi Fayed og Díana prinsessa fórust í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997. Fayed hélt því fram að dauði þeirra hafi verið skipulagður af bresku leyniþjónustunni.

Fyrrverandi ritari Verkamannaflokksins lést á Íslandi í gær
Lávarðurinn Alan Haworth, fyrrverandi ritari breska Verkamannaflokksins, lést á ferðalagi til Íslands í gær. Hann var 75 ára.

Áfram einhverjar tafir vegna bilunar á Heathrow
Flugmálayfirvöld í Bretlandi vara við því að enn kunni að verða einhverjar tafir á flugi til og frá Heathrow flugvelli í Lundúnum í dag en flugáætlanir fóru verulega úr skorðum í gær vegna bilunar í tölvukerfi.

„Ekki ljóst að svo stöddu hvenær þetta kemst í lag“
Íslenskar flugvélar sitja nú fastar í Bretlandi vegna bilunar í flugstjórn. Play og Icelandair hafa bæði fundið fyrir þessu vandamáli, sem nú er unnið að því að leysa.

Schofield sagður stefna á endurkomu á skjáinn og útgáfu ævisögu
Phillip Schofield, sem hætti hjá ITV í maí eftir skandal sem tengdist sambandi hans við yngri samstarfsmann, virðist ætla að endurreisa feril sinn með útgáfu ævisögu og endurkomu á sjónvarpsskjáinn á TalkTV.

Umfangsmesta leitin að Loch Ness-skrímslinu í fimmtíu ár
Umfangsmesta leitin að Loch Ness-skrímslinu í fimmtíu ár fer fram um helgina en nokkur hundruð sjálfboðaliðar hafa boðið fram aðstoð sína við að finna vatnaskrímslið fræga.

Leitast við að endurheimta tvö þúsund stolna safnmuni
Um tvö þúsund safnmunum hefur verið stolið af Þjóðminjasafni Bretlands síðustu áratugi. Aðgerðum til þess að endurheimta munina hefur verið hleypt af stokkunum. Meðal þeirra safnmuna sem horfið hafa eru gullskartgripir og demantar.

Gítarleikari Whitesnake látinn
Bernie Marsden, gítarleikari og einn stofnenda bresku rokksveitarinnar Whitesnake, er látinn.

Mun aldrei sleppa úr fangelsi
Dómari í Bretlandi dæmdi í morgun hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa banað sjö börnum og reynt að bana sex til viðbótar á barnadeild sjúkahúss í Chester á árunum 2015 og 2016.

Lucy Letby sakfelld fyrir að hafa banað sjö ungbörnum
Dómstóll í Manchester í Bretlandi hefur sakfellt hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby fyrir að hafa banað sjö ungbörnum – fimm drengjum og tveimur stúlkum – og gert tilraun til að bana sex til viðbótar.

Spjallþáttastjórnandinn Parkinson látinn
Breski spjallþáttastjórnandinn Michael Parkinson er látinn, 88 ára að aldri. Ferill Parkinson í sjónvarpi spannaði sjö áratugi og ræddi hann við flestar skærustu stjörnur síns tíma.

Rekinn eftir að safnmunir hurfu
Starfsmaður British museum hefur verið rekinn og sætir lögreglurannsókn eftir að dýrmætir safnmunir hurfu og fundust síðar í kompu á safninu.

Game of Thrones-leikarinn Darren Kent látinn 36 ára að aldri
Leikarinn Darren Kent, þekktastur fyrir leik sinn í Game of Thrones, er látinn 36 ára að aldri. Ekki kemur fram hvernig hann lést en hann hafði glímt við sjaldgæfan húðsjúkdóm, beinþynningu og liðagigt í mörg ár.

Meintir njósnarar Rússa handteknir í Bretlandi
Þrír búlgarskir ríkisborgarar hafa verið handteknir í Bretlandi vegna gruns um að vera njósnarar fyrir Rússa. Þau eru öll tengd íbúð sem er skammt frá herflugvelli í Lundúnum sem konungsfjölskyldan notar.

Greinahöfundur Guardian sleppti Íslandsför og ofgreiddi bjórinn heima
Ferð í heitan pott, kaup á dýrum bjór og selaskoðun er meðal þess sem greinahöfundur The Guardian tók sér fyrir hendur þegar hún reyndi að upplifa langþráða ferð til Íslands án þess að yfirgefa bresku sjávarsíðuna.

Minnst sex flóttamenn létust í Ermarsundi
Sex manns létust þegar bátur með nærri sjötíu flóttamenn innanborðs sökk nærri borginni Calais í Frakklandi við Ermarsund í dag.

Stjórnendur Love Island hafi meinað sér að tala
Mitch Taylor, einn af keppendum í tíundu seríunni af Love Island, segir að sér hafi verið meinað að tjá sig af stjórnendum þáttanna í sérstökum endurfundaþætti sem sýndur var síðastliðinn mánudag.

Wilko tekið til gjaldþrotaskipta
Breska heimilisvörukeðjan Wilko hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Allt að tólf þúsund manns gætu misst vinnuna vegna þessa.

Tölvuþrjótar komust í kerfi breskrar kjörstjórnar
Yfirkjörstjórn Bretlands segir að hún hafi orðið fyrir barðinu á „óvinveittum aðilum“ sem brutust inn í tölvukerfi hennar síðasta haust. Þrjótarnir fengu meðal annars aðgang að tölvupóstum, stjórnkerfum og kjörskrám.

Íslandsvinurinn William Morris á nýjum fótboltatreyjum
Fótboltafélagið Walthamstow FC tilkynnti um treyjur félagsins fyrir næsta tímabil í síðustu viku. Treyjurnar eru skreyttar mynstri eftir textílhönnuðinn og íslandsvininn William Morris.

Opnar sig um líkamsskynjunarröskun og lýtaaðgerðir
Söngvarinn Robbie Williams opnaði sig í síðasta mánuði um glímu sína við líkamsskynjunarröskun og sjálfshatur vegna slæmrar líkamsímyndar. Í gær greindi hann frá því að hann hygðist fara í lýtaaðgerðir til að laga sokkin augu sín.

Heimsfrægur barnaníðingur í lífshættu eftir stunguárás
Ian Watkins, fyrrverandi söngvari velsku rokkhljómsveitarinnar Lostprophets, berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir að þrír samfangar hans réðust á hann vopnaðir eggvopni í klefa hans í fangelsi. Hann afplánar 29 ára langan fangelsisdóm fyrir gróft barnaníð.

Veikindi sextíu sjósundskappa mögulega vegna skólps
Að minnsta kosti 57 manns veiktust af bæði ælupest og niðurgangi eftir að hafa keppt í sjósundi á heimsmótaröðinni í þríþraut í borginni Sunderland í Bretlandi síðustu helgi.

Bókasafnsbók skilað 53 árum of seint
Eintaki af klassísku vísindaskáldsögunni 2001: A Space Odyssey birtist á bókasafni í Scunthorpe 53 árum eftir að hún var tekin að láni.

Sögð hafa látið illa á Love Island settinu
Keppendur í núverandi seríu af Love Island eru sagðir hafa látið afar illa á setti seríunnar í ár og meðal annars stolið áfengi.

Youtube-stjarna eldaði örbylgjurétt á glóandi hrauninu
Breska YouTube-stjarnan Max Fosh kom til landsins á dögunum í þeim tilgangi að sjá eldgosið við Litla-Hrút. Á meðan flestir hefðu látið sjónarspilið við hraunið nægja sér gerði Fosh sér lítið fyrir og eldaði sér örbylgjurétt á hrauninu.