Bretland

Diljá spáð áfram í úrslitin
Íslenska framlaginu í Eurovision er nú spáð 24. sæti í keppninni. Afar líklegt er að Diljá komist í gegnum undankeppnina þar sem einungis sex löndum í okkar riðli er spáð betra gengi í keppninni.

Play mun fljúga til Glasgow
Flugfélagið Play hyggst hefja áætlunarflug til Glasgow í Skotlandi og verður fyrsta flugið föstudaginn 26. maí næstkomandi.

Segja Rússa dusta rykið af 60 ára gömlum skriðdrekum
Breska varnarmálaráðuneytið segir hermálayfirvöld í Rússlandi hafa dregið fram um það bil 800 T-62 skriðdreka úr geymslum sínum, sem eiga að koma í stað þeirra sem tapast hafa í Úkraínu.

Johnson vill riddaratign fyrir pabba
Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur skilað inn heiðurslista sínum þar sem hann óskar þess meðal annars að faðir hans, Stanley Johnson, fái riddaratign.

Stjörnurnar vilji ekki tengja sig við konunginn
Það virðist ekki ganga alveg nógu vel að finna tónlistarfólk til að koma fram á krýningarathöfn Karls III Bretlandskonungs. Stórstjörnur á borð við Elton John, Adele og Harry Styles eru til að mynda sagðar hafa afþakkað boð um að spila fyrir konunginn.

Steve Mackey, bassaleikari Pulp, er dáinn
Steve Mackey, bassaleikari bresku hljómsveitarinnar Pulp, er dáinn. Hann lést í morgun eftir að hafa varið síðustu þremur mánuðum á sjúkrahúsi.

Ódýrustu miðarnir á Eurovision kosta fimm þúsund krónur
Miðar á undanúrslitakvöld Eurovision í Liverpool kosta á bilinu þrjátíu til 290 pund, fimm þúsund til fimmtíu þúsund krónur. Miðar á úrslitin eru aðeins dýrari, fjórtán til 64 þúsund krónur.

Harry og Meghan beðin um að tæma Frogmore-bústaðinn
Breska hirðin hefur hefur gert hertogahjónunum af Sussex, þeim Harry og Meghan, að tæma Frogmore-bústaðinn (e. Frogmore Cottage), híbýli þeirra á lóð Windsor-kastala, vestur af Lundúnum. Ætlunin er að Andrés prins, yngri bróðir Karls konungs, fái húsið til afnota.

Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu
Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka.

Misheppnað bónorð á Íslandi fékk farsælan endi
Hinn 27 ára gamli Adam Groves hafði ráðgert að biðja unnustu sinnar undir norðurljósunum á Íslandi. Sú áætlun fór forgörðum en í fluginu á leiðinni heim fékk parið óvæntan glaðning.

Flugu í hringi til að sýna farþegum norðurljósin
Flugstjórar flugvélar Easy Jet sem verið var að fljúga frá Keflavík til Manchester í gær, flugu vélinni í hring yfir Norðursjó. Það gerðu þeir svo farþegarnir gætu notið norðurljósanna.

Bræður uppgötvuðu hvor annan á níræðisaldri
Röð tilviljana leiddi til þess að tveir bræður, sem höfðu ekki hugmynd um tilvist hvors annars, voru loksins sameinaðir á níræðisaldri.

Máluðu risastóran Úkraínufána við rússneska sendiráðið
Fjórir voru handteknir í Lundúnum í dag fyrir að hafa málað úkraínska fánann á götu fyrir framan sendiráð Rússa í borginni.

Faldar myndavélar og leynimakk þegar sá milljónasti flaug til Íslands
Þegar Ikechi Chima Apakama, 32 ára gamall breti, kom til Íslands í síðustu viku hafði hann ekki hugmynd um hann væri milljónasti farþegi flugfélagsins Play. Það vissu hins vegar vinir hans sem fylgdu honum til landsins og skemmtu sér vel.

John Motson er látinn
John Motson, fótboltalýsandi á breska ríkisútvarpinu til 50 ára, er látinn 77 ára að aldri.

ISIS-brúður tapar áfrýjun gegn sviptingu ríkisborgararéttar
Shamima Begum, ung kona sem fæddist í Bretlandi en gekk sem unglingur til liðs við Ríki íslams í Sýrlandi, tapaði áfrýjun gegn ákvörðun breskra stjórnvalda að svipta hana ríkisborgararétti í gær. Lögmaður hennar segir að baráttunni sé hvergi nærri lokið.

Sagði nei við Bond eftir afarkost frá eiginkonunni
Liam Neeson var boðið að leika breska njósnarann James Bond áður en Pierce Brosnan fékk hlutverkið. Hann hætti við að taka við því eftir að eiginkona hans, þáverandi kærasta, sagðist ekki ætla að giftast honum ef hann tæki við hlutverkinu.

Veðmálafyrirtæki hverfi framan af treyjunum
Bresk stjórnvöld eru langt komin með frumvarp sem mun banna veðmálafyrirtækjum að auglýsa framan á treyjum liða í ensku úrvalsdeildinni. Viðræður eru sagðar eiga sér stað milli stjórnvalda og forráðamanna félaga í deildinni.

Kynnarnir á Eurovision í Liverpool kynntir til leiks
Breska söng- og leikkonan Hannah Waddingham verður kynnir Eurovision-söngvakeppninnar sem fram fer í Liverpool í Bretlandi í maí, ásamt söngkonunum Alesha Dixon og Juliu Sanina. Sú síðastnefnda er frá Úkraínu, sigurvegara Eurovision í fyrra.

Sameinaðar á Íslandi eftir tveggja ára aðskilnað
Tvær konur, önnur frá Bandaríkjunum og hin frá Bretlandi, hittust í Þýskalandi árið 2019 og urðu yfir sig ástfangnar. Ferðatakmarkanir vegna kórónuveirunnar settu hins vegar stórt strik í reikninginn og komu í veg fyrir að þær gátu hist. Eftir tæpan tveggja ára aðskilnað voru þær loksins sameinaðar á ný, á Íslandi.

Staðfesta að hin látna er Bulley
Lík sem fannst í ánni Wyre í Lancashire á Englandi í gær er lík Nicola Bulley, tveggja barna móður sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn.

Fjármálaráðherrann vill taka við af Sturgeon
Kate Forbes, fjármálaráðherra Skotlands, hefur tilkynnt að hún sækist eftir að taka við af Nicolu Sturgeon sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og þar með verða næsti fyrsti ráðherra landsins.

Fundu lík þar sem Bulley hvarf
Í kringum hádegi í dag fann lögreglan í Lancashire lík í ánni Wyre. Áin er í nágrenni við síðustu þekktu staðsetningu Nicola Bulley, tveggja barna móður á fimmtugsaldri, sem hvarf sporlaust þann 27. janúar síðastliðinn.

Fá ekki að mæta á verðlaunaafhendingu vegna ógnar við almenning
Rússneskum fréttamanni og fjölskyldu hans hefur verið meina að mæta á afhendingarathöfn Bafta verðlaunanna. Lögregluyfirvöld í Bretlandi telja að almenningi myndi stafa ógn af mætingu hans þar sem hann er eftirlýstur af yfirvöldum í Rússlandi. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir umfjöllun sína um Alexei Navalní.

Öryggisvörður sem njósnaði fyrir Rússa leiddur í gildru
Breskur öryggisvörður í sendiráði Breta í Berlín hefur verið dæmdur í rúmlega þrettán ára fangelsi fyrir að njósna fyrir Rússa. David Ballantyne Smith er 58 ára gamall en sagðist ekki hafa ætlað að valda skaða.

Áður óséð myndefni af Titanic
Woods Hole Oceanographic Institution (WHOI) birti í gær rúmlega 80 mínútna langt myndband af skipsflaki Titanic. Myndefnið var tekið upp árið 1986, einungis ári eftir að staðsetning skipsflaksins fannst. Meirihluti myndefnisins hefur aldrei áður komið fyrir sjónir almennings.

Sturgeon segir af sér
Nicola Sturgeon hyggst segja af sér sem fyrsti ráðherra Skotlands. Hún hefur gegnt embættinu síðan árið 2014 en enginn hefur verið ráðherra landsins svo lengi.

Tvö fimmtán ára grunuð um að hafa myrt sextán ára stúlku
Stelpa og strákur, bæði fimmtán ára gömul, hafa verið handtekin af lögreglu grunuð um að hafa stungið sextán ára gamla stúlku til bana í almenningsgarði í Culcheth.

Hvarf sporlaust en síminn og hundataumurinn urðu eftir
Lögreglan í Bretlandi leitar enn lifandi ljósi að tveggja barna móður á fimmtugsaldri sem hvarf sporlaust fyrir rúmum tveimur vikum. Síðast sást til hennar þegar hún fór út að ganga með hundinn sinn við Wyre ána 27. janúar.

Sjálfsblekking Arsenal-manna
Nokkur hópur stuðningsmanna Arsenal virðist lifa í ákveðinni sjálfsblekkingu varðandi ímynd félagsins. Það endurspeglaðist vel á leik liðsins við Brentford um helgina en þar tapaði liðið stigum aðra helgina í röð.