Noregur
42 43 44 45 46 47 48 49 … 49 ›
Breivik áfram í varðhaldi í tólf vikur hið minnsta Dómari í Osló úrskurðaði í dag að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi í 12 vikur. Dómarinn segir ekki loku fyrir það skotið að Breivik gæti eyðilagt sönnunargögn fengi hann að ganga laus auk þess sem ekki sé útilokað að hann hafi fengið hjálp við að drýgja ódæðin í Osló og í Útey í júlí. Erlent 14.11.2011 12:59
Dómarinn þurfti ítrekað að biðja Breivik að halda kjafti Dómarinn í fyrsta opna réttarhaldinu yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik þurfti ítrekað að biðja Breivik að halda kjafti eftir að morðinginn var beðinn um að svara því hvort hann teldi sig sekan eða saklausann. Erlent 14.11.2011 10:49
Fyrsta opna réttarhaldið yfir fjöldamorðingjanum Breivik er í dag Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar við dómshúsið í Osló en þar mun fjöldamorðinginn Anders Breivik í fyrsta sinn kom fram opinberlega frá því hann framdi fjöldamorðin í miðborg Osló og á Útey sem kostuðu samtals 77 Norðmenn lífið. Erlent 14.11.2011 06:52
Réttarsalurinn opinn fjölmiðlum - Breivik vill útskýra ákvörðun sína Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik segist vilja útskýra fyrir dómara og aðstandendum fórnarlambanna í miðborg Oslóar og Úteyjar, hvers vegna hann framdi voðaverkin í sumar. Þetta segir verjandi hans við norska fjölmiðla í dag en Breivik verður leiddur fyrir héraðsdómara á morgun þar sem tekin verður ákvörðun um hvort að gæsluvarðhald yfir honum verði framlengt. Erlent 13.11.2011 16:38
Morðingi Heidi fékk fimmtán ár í fangelsi Morðingi Heidi Thisland-Jensen var dæmdur til fimmtán ára fangelsisvistar í Mandal í Noregi í gær. Erlent 11.11.2011 21:44
Höfðu afskipti af fjöldamorðingja þegar hann var fjögurra ára Lögregla og barnavernd í Noregi höfðu fyrst afskipti af Anders Behring Breivik, fjöldamorðingjanum í Útey, þegar hann var fjögurra ára gamall og aftur þegar hann var fimmtán ára gamall. Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir honum hjá lögreglu, eftir því sem norska Dagbladet greinir frá. Litlar upplýsingar eru um atvikið þegar hann var fjögurra ára aðrar en þær að barnavernd vildi að hann yrði tekinn af heimili sínu. Málið týndist í kerfinu og hann var aldrei tekinn af heimilinu. Erlent 10.11.2011 13:54
Fimmta morðið á einum mánuði Ungur maður var myrtur á heimili sínu í Ósló, höfuðborg Noregs, í fyrrinótt og annar komst illa særður á slysadeild. Meintur árásarmaður var handtekinn í bakgarði hússins þar sem morðið átti sér stað. Erlent 31.10.2011 00:17
Breivik losnar úr einangrun á mánudag Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik losnar úr einangrun á mánudaginn kemur en hann hefur verið í einangrunarklefa í 87 daga, eða frá því hann var handtekinn á Útey eftir að hafa myrt 69 manns. Erlent 13.10.2011 12:11
Nítján handteknir í Póllandi vegna Breivík-rannsóknar Pólska öryggislögreglan tilkynnti í dag að hún hefði handtekið nítján manns og framkvæmt um hundrað húsleitir í tengslum við rannsókn á máli Anders Breivík sem myrti 77 ungmenni í Útey í sumar. Erlent 12.10.2011 21:45
Blaðamenn heimsækja Útey Yfirvöld í Noregi hafa nú í fyrsta sinn gefið blaðamönnum leyfi til að heimsækja Útey. Eyjan hefur verið lokuð síðan Anders Behring Breivik myrti 69 manns þann 22. júlí síðastliðinn. Erlent 3.10.2011 20:47
Til stuðnings Breivik Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir hatursglæpi og morðtilraunir í Svíþjóð. Þeir eru taldir hafa reynt að myrða tvo innflytjendur í Västerås í Svíþjóð til stuðnings við aðgerðir hryðjuverkamansins Anders Behring Breivik í Noregi. Erlent 27.9.2011 22:09
Samtölum Breiviks við geðlækna lokið Eftir ellefu ítarleg viðtöl við Anders Behring Breivik er samtölum réttargeðlækna við hann nú lokið. Geir Lippestad, verjandi hans segir samtölin hafa tekið mun lengri tíma en áætlað var í fyrstu. Breivik hefur játað ábyrgð á hryðjuverkunum í Útey. Erlent 23.9.2011 19:57
Dómarinn þaggaði niður í Breivik Gæsluvarðhald yfir Anders Behring Breivik var framlengt um átta vikur í dag. Þar af verður hann í fjórar vikur í einangrun, samkvæmt ákvörðun dómara í Osló. Breivik hefur sem kunnugt er játað að hafa orðið 77 manns að bana í hryðjuverkunum í Osló og Útey þann 22. júlí síðastliðinn. Erlent 19.9.2011 20:59
Úrskurðaður í 8 vikna gæsluvarðhald Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var úrskurðaður í átta vikna langt gæsluvarðhald, þar af fjórar vikur í einangrun, í héraðsdómi Oslóar um klukkan hálf eitt í dag. Erlent 19.9.2011 13:42
Breivik leiddur fyrir dómara í Osló Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var leiddur fyrir dómara í Ósló í morgun en þar verður farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds hans. Erlent 19.9.2011 12:10
Breivik fær enga sérmeðferð Líklegt er talið að Anders Behring Breivik muni afplána dóm sinn í Skien fangelsinu sem er annað tveggja norskra fangelsa með hæsta mögulegan öryggisstuðul. Erlent 29.8.2011 18:46
Tekur stökk í skoðanakönnun Verkamannaflokkurinn bætir við sig talsverðu fylgi í nýrri skoðanakönnun sem birt var í norskum fjölmiðlum í gær. Spurt var um hvaða flokk fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. Erlent 25.8.2011 21:40
Kæra umfjöllun fjölmiðla um hryðjuverk Ungmenni sem komust lífs af úr Útey hinn 22. júlí hafa kært umfjöllun norska blaðsins Verdens gang til siðanefndar fjölmiðla þar í landi. Kvörtunin snýr að myndbirtingum af hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik þegar hann fór í vettvangsferð með lögreglunni í eyjuna. Erlent 25.8.2011 21:40
Flaug til Noregs í yfirheyrslur Breski þjóðernissinninn Paul Ray kom til Óslóar í gær til að fara í yfirheyrslur hjá lögreglu vegna hryðjuverkanna í Noregi 22. júlí. Ray kom sjálfviljugur til landsins til að ræða við lögreglu. Erlent 24.8.2011 22:46
Breivik áfram í einangrun Héraðsdómstóll í Osló komst í dag að þeirri niðurstöðu að Anders Behring Breivik skuli áfram dúsa í einangrun. Rétturinn tók undir með löggreglunni að raunveruleg hætta væri á að sönnunargögn töpuðust væri einangrunin rofin. Erlent 19.8.2011 13:53
Breivik mættur í réttinn Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kom í dómshúsið í Osló rétt fyrir klukkan níu í morgun. Réttarhöld yfir honum eiga að hefjast klukkan ellefu. Hann mun nú staddur í biðherbergi dómstólsins. Erlent 19.8.2011 10:23
Breivik hringdi til að gefa sig fram - samtölin í heild sinni Norska lögreglan birti í dag símtal Anders Behring Breivik við neyðarlínuna í Noregi þann 22. júlí síðastliðinn. Breivik hringdi með það í huga að gefa sig fram, en rúmum hálftíma áður hafði lögreglan í Noregi fengið tilkynningu um skotárás í Útey. Breivik reyndi tíu sinnum að hringja en náði aðeins sambandi tvisvar. Erlent 18.8.2011 16:22
Má ekki mæta í kjólfötunum Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað. Erlent 17.8.2011 22:32
Breivik í kjólföt Nú á föstudaginn kemur Héraðsdómur í Osló saman til að fjalla um þá kröfu lögreglunnar að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik verði áfram í einangrun. Breivik hefur óskað eftir því að fá að klæðast kjólfötum við réttarhöldin. Erlent 17.8.2011 09:39
Breivik skoðaði Útey í gallabuxum og bol - Myndband Lögreglan í Osló fór með fjöldamorðingjann Anders Breivik til Úteyjar í gær dag en hann hefur játað að hafa framið fjöldamorð á eyjunni og sprengt sprengju í miðborg Oslóar tuttugasta og annan júlí síðastliðinn. Erlent 14.8.2011 14:59
Breivik kurteis við yfirheyrslur Lögreglumaðurinn sem yfirheyrir fjöldamorðingjann Anders Breivik segir að þeir tali saman á þægilegum nótum og engin tilraun sé gerð til þess að brjóta Breivik niður. Erlent 11.8.2011 13:25
Fór þriggja kílómetra lengri leið til Úteyjar Lögreglan í Noregi hefur vísað á bug fréttum þess efnis að hægt hefði verið að komast frá Ósló í Útey á mun styttri tíma þegar hryðjuverk voru framin á stöðunum tveimur. Erlent 10.8.2011 22:44
Nokkuð vissir um að Breivik hafi ekki átt vitorðsmenn Með hverjum deginum sem líður verður norska lögreglan æ vissari um að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi verið einn að verki þegar hann lét til skarar skríða með skotárás í Utöya og sprengitilræði í miðborg Oslóar í síðasta mánuði. Þetta sagði lögmaður norsku lögreglunnar, Christian Hatlo, á blaðamannafundi í dag. Að hans sögn eru engir aðrir grunaðir um að hafa verið í vitorði með Breivik. Erlent 10.8.2011 13:30
Breivik vill tala við fangelsisprest Fjöldamorðinginn Anders Breivik hefur óskað eftir að ræða við fangelsisprestinn í Ila fangelsinu þar sem hann situr í einangrun. Fyrstu dagana í fangelsinu var Breivik kotroskinn og gerði hinar og þessar kröfur sem ekki var sinnt. Erlent 8.8.2011 14:51
Grunar að Breivik eigi vitorðsmenn Vitni segjast hafa séð Anders Breivik í matvöruverslun í miðbæ í smábæjarins Krakö utan við Osló nokkrum dögum fyrir árásina. Hann hafi verið þar ásamt tveim mönnum Breivik hafi verið íklæddur hermannapeysu með lögreglumerkjum á. Breivik var einmitt dulbúinn sem lögregluþjónn þegar hann lét til skarar skríða í Útey. Erlent 5.8.2011 11:37