Play komið í eignasafn Icelandair Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. Viðskipti innlent 19.10.2026 09:57
Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Andri Már Mortenssen Birgisson var talinn hafa stýrt atburðarásinni og átt stærstan þátt í frelsissviptingu og stórfelldri líkamsárás á maltneskan leigjanda tengdaföður hans í Reykholti. Hann var eini af sex sakborningum í málinu sem var sakfelldur fyrir að beita manninn ofbeldi. Innlent 14.10.2026 14:01
Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag og stóð til að taka skýrslu af læknum á Möltu sem eiga að hafa séð um meðferð brotaþola ytra. Innlent 24.8.2026 10:45
Nefnd SÞ gegn pyndingum skráir erindi hælisleitenda sem vísað var frá Íslandi Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum hefur skráð kvörtun karlmanns á þrítugsaldri, frá Kamerún, sem vísað var frá Íslandi í upphafi þessa árs á grundvelli Dyflinnarreglugerðar. Manninum var vísað til Möltu þar sem stjórnvöld áttu að taka umsókn hans um vernd til meðferðar. Manninum var vísað aftur til heimalands síns þremur dögum eftir komu til Möltu og sætti þar, samkvæmt lögmanni hans, pyntingum og ómannúðlegri meðferð. Maðurinn fer nú huldu höfði í Kamerún. Innlent 27. október 2025 14:01
Fleiri hundruð kröfur og líklegt að óeðlilegum greiðslum verði rift Hundruðum krafna hefur verið lýst í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í lok september. Launakröfur starfsfólks liggja enn ekki fyrir. Skiptastjóri telur líklegt að þrotabúið sæki með riftun óeðlilegar greiðslur félagsins skömmu fyrir gjaldþrot. Viðskipti innlent 22. október 2025 11:22
Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Skuldabréfaeigendur í Play keppast nú við að bjarga dótturfélagi flugfélagsins á Möltu með því að ná samningum á ný við flugvélaleigusala svo starfsemin geti haldið þar áfram. Í upptöku af starfsmannafundi dótturfélagsins á Möltu sem fréttastofu hefur undir höndum kemur fram að leigusalarnir hafi kippt að sér höndum við fall Play á Íslandi og staðan sé flókin. Viðskipti innlent 1. október 2025 12:11
Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð. Viðskipti innlent 1. október 2025 11:20
Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Unnið er að því að færa átta þotur Play yfir til maltneska dótturfélagsins Fly Play Europe, og stefnt er að því að hefja starfsemi á ný í síðasta lagi eftir tíu vikur. Kröfuhafar sem tóku þátt í skuldabréfaútboði Play í ágúst geta óskað eftir því að fá maltneska félagið leyst til sín. Boðað hefur verið til kröfuhafafundar mánudaginn 6. október. Viðskipti innlent 30. september 2025 21:45
Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirritaði í dag yfirlýsingu með leiðtogum sex annarra ríkja þar sem þeir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa. Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman. Innlent 16. maí 2025 16:00
Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Aðgerðasinnar um borð í skipi sem er á leið til Gaza strandarinnar með hjálpargögn segja að drónaárás hafi verið gerð á skipið þar sem það var statt á alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Möltu í nótt. Erlent 2. maí 2025 07:51
Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Maltnesk stjórnvöld þurfa að hætta að falbjóða erlendum auðmönnum ríkisborgararétt samkvæmt dómi sem féll í Evrópudómstólnum í dag. Auðmenn gátu í reynd keypt sér rétt til að búa og starfa í Evrópu með því að kaupa vegabréf af Möltu. Erlent 29. apríl 2025 11:29
Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Play hefur náð samkomulagi um rekstur fjögurra véla úr flota flugfélagsins til ársloka 2027 fyrir erlendan flugrekanda með svonefndri ACMI leigu. Flugreksturinn mun fara fram í gegnum Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Til þess að anna eftirspurn yfir sumarmánuðina verður ein flugvél tekin á leigu. Viðskipti innlent 8. apríl 2025 16:45
Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., fékk í morgun afhent flugrekstrarleyfi frá flugmálayfirvöldum á Möltu. Félagið mun leigja út þrjár vélar til austur-evrópsks flugfélags. Viðskipti innlent 28. mars 2025 11:53
Bjóða fyrstu freyju 217 þúsund á mánuði og fimm veikindadaga á ári Maltneskt dótturfélag flugfélagsins Play hefur auglýst í lausar stöður flugliða, svokallaðra fyrstu freyja. Launin sem boðið er upp á eru 217 þúsund krónur á mánuði og veikindadagar eru fimm á ári. Ekki er um að ræða flugliða sem fljúga til og frá Íslandi. Viðskipti innlent 21. mars 2025 17:03
Sækja um leyfi á Möltu Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis. Viðskipti innlent 16. október 2024 16:57
Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja. Innlent 24. maí 2024 08:09
Maðurinn ríkisborgari Möltu Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 12:32
Bræður dæmdir fyrir morðið á Galizia George og Alfred Degiorgio voru í gær dæmdir í fjörutíu ára fangelsi hvor um sig fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017. Þriðji maðurinn, Vince Muscat, hafði þegar játað á sig aðild að morðinu. Erlent 15. október 2022 08:21
Landsliðsþjálfari Möltu grunaður um að hafa áreitt landsliðsmann kynferðislega Landsliðsþjálfari Möltu í fótbolta hefur verið settur til hliðar vegna ásakana um að hann hafi áreitt leikmann landsliðsins kynferðislega. Fótbolti 28. september 2022 10:02
Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu. Viðskipti innlent 14. september 2022 16:54
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24. júní 2022 07:46
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23. júní 2022 07:49
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2. mars 2022 15:14
Maltverji nýr forseti Evrópuþingsins Hin maltneska Roberta Metsola var í morgun kjörin nýr forseti Evrópuþingsins. Hún tekur við stöðunni af hinum ítalska David Sassoli sem lést á dögunum. Erlent 18. janúar 2022 10:51