Íran

Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli
Utanríkisráðherra Ísraels segir að árásir Ísraelsmanna á kjarnorku- og hernaðarinnviði í Íran hafi tafið framleiðslu klerkastjórnarinnar í Íran á kjarnorkuvopnum í að minnsta kosti tvö ár.

Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf
Íranir og Ísraelar hafa haldið áfram loftárásum á víxl í dag. Björgunarsveitir í Ísrael segja einn látinn og tugi særða eftir árás Írana á borgina Haifa síðdegis í dag. Á meðan funduðu utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands með utanríkisráðherra Íran í Genf í von um að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran.

Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, fundar í dag í Genf með utanríkisráðherrum Bretlands, Frakklands og Þýskalands. Markmið fundarinst er að reyna að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. Donald Trump hefur tilkynnt að hann ætli að gefa sér tvær vikur til að ákveða hvort hann blandi sér í stríðið.

Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera kjarnorkurannsóknarstöð Írana í Fordo óvirka. Það þurfi til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum.

Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sé „nútíma Hitler“ og nauðsynlegt sé að bana honum. Þetta sé orðið eitt helsta markmið Ísraela í Íran.

Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala
Fjöldi er særður á spítala í suðurhluta Ísrael eftir að íranskri eldflaug var skotið á spítalann snemma í morgun. Í erlendum miðlum segir að haft sé eftir stjórnendum að miklar skemmdir séu á spítalanum og að myndefni frá Ísrael sýni glugga springa og svartan reyk leggja frá húsinu við sprenginguna.

Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“.

Fimmtán Íslendingar vilja komast heim
Hópur Íslendinga hefur óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að komast frá Íran og Ísrael. Bandaríkjaforseti gefur óljós svör um hvort hann blandi sér í deiluna.

Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“
Íranskur flóttamaður á Íslandi lýsir áhyggjum af fjölskyldu sinni sem er föst í Teheran, þar sem stríð hefur nú geisað í fimm daga. Hann segir að eiginkona sín og barn séu búin að fá dvalarleyfi hér á landi en fyrirtækið sem skaffar vegabréfsáritanir í Íran sé lokað vegna stríðsins.

Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar
Ráðamenn í Ísrael hafa um nokkuð skeið reynt að fá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, til að aðstoða við árásir á Íran. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, er sagður hafa tvisvar sinnum beðið Trump persónulega um að fá aðstoð í formi fjórtán tonna sprengju sem hönnuð er til að granda byrgjum sem grafin eru djúpt í jörðu.

„Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin kannski munu skerast í leikinn í átökum Írana og Ísraela, þrátt fyrir að Íranir hafi hótað „óbætanlegu tjóni“ ef þau gerðu það. Forsetinn segist hafa gefið Írönum úrslitakost, eða raunar „úrslita-úrslitakost“.

Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn
Æðstiklerkur Íran segir að landið ætli ekki að gefast upp og hótar Bandaríkjunum með „óbætanlegu tjóni“ ef þau hlutast til í átökum Ísraelsmanna og Írana. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins varar við því að „allsherjarstríð“ geti brotist út.

Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur
Árásir Ísraela á Íran hafa haldið áfram í nótt og aukist að umfangi ef eitthvað er. Enn er beðið eftir því hvort Bandaríkjamenn ákveði að taka beinan þátt í hernaðinum en Donald Trump forseti hefur sent frá sér nokkrar yfirlýsingar sem gefa slíkt til kynna.

Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael
Bandaríska sendiráðinu í Ísrael í Jerúsalem verður lokað frá og með miðvikudeginum að minnsta kosti fram að föstudegi. Bandarísk yfirvöld hafa sagt starfsfólki og fjölskyldum þeirr að leita skjóls.

Trump fundar með þjóðaröryggisráði
Donald Trump situr nú fund með þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna en þar eru málefni Ísraels og Írans á dagskrá.

Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax
Bandaríkjaforseti virðist ýja að því að Bandaríkjaher sé að blanda sér í átök milli Ísraels og Íran. Hann segir að „við“ vitum hvar æðstiklerkur Írana feli sig en vilji ekki drepa hann að svo stöddu. Hann krefst „skilyrðirslausrar uppgjafar“.

„Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“
Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst tryggja „alvöru endi“ á stríði Ísraelsmanna og Írana, ekki aðeins vopnahlé. Ríkin hafa skipst á eldflaugaárásum í rúmlega fjóra daga.

Vita ekki hvar leikmaður þeirra er
Forráðamenn ítalska stórliðsins Internazionale hafa miklar áhyggjur af einum leikmanni sínum.

Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta
Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda.

Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu
Aukin harka hefur færst í loftárásir Ísraela og Írana á víxl í dag. Ísraelsher hefur gert árás á höfuðstöðvar ríkisútvarpsins í Tehran, nokkrum klukkustundum eftir að varnarmálaráðherra Ísrael boðaði „hvarf“ ríkismiðilsins.

Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt
Íranir og Ísraelar hafa gert árásir á víxl í alla nótt en átök ríkjanna hafa nú staðið í fjóra daga eftir að Ísraelar létu til skarar skríða gegn Íran og kjarnorkuáætlun landsins.

Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað áætlun Ísraela um að ráða æðstaklerkinn í Íran af dögum. Sagt er að hann hafi sagt Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísrael að það væri ekki góð hugmynd.

Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma
Loftárásir Ísraela og Írana á víxl héldu áfram í nótt. Björgunarsveitir í Ísrael leita í rústum íbúðarhúss í borginni Bat Yam en minnst tíu eru taldir af, þar af börn, eftir að eldflaug var skotið á húsið. Óttast er að fleiri séu enn undir rústunum.

Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum
Minnst þrír eru látnir eftir eldflaugaárásir Írans á norðurhluta Ísraels. Ísraelsk yfirvöld segja að flaugar hafi hæft skotmörk í borginni Tamra, og minnst fjórtán hafi slasast. Ísraelar hafa gert árásir í Teheran þar sem fregnir berast af eldsvoða og sprengingum hjá olíubirgðarstöðvum.

Varnarmálaráðherra segir að Tehran muni brenna
Israel Katz varnarmálaráðherra Ísrael sagði í yfirlýsingu í morgun að Tehran, höfuðborg Íran, haldi áfram að brenna ef Ayatollah Ali Khamenei æðsti leiðtogi Íran heldur áfram að skjóta flugskeytum á heimavígstöðvar Ísrael.

Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran
Sextíu eru taldir af, þar af tuttugu börn, eftir að Ísraelsher skaut eldflaug á fjórtán hæða blokk í Tehran í morgun.

Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana
Íransher hefur brugðist við árásum Ísraelshers á kjarnorkuver Íran með því að láta eldflaugum rigna yfir Ísrael í nótt.

Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran
Þykkan reyk leggur nú frá Mehrabad flugvelli í Teheran þar sem eldur virðist loga. Íranskir miðlar segja frá því að sprengja hafi sprungið á flugvellinum.

Segir Íran hafa farið yfir strikið
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að írönsk yfirvöld hafi farið yfir „rauðu línuna“ með því að gera loftárásir á almenna borgara í Tel Aviv. Ríkisstjórn Írans muni gjalda þess dýrum dómi.

Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv
Íranir hafa skotið eldflaugum að Ísrael og loftvarnarflautur óma nú í Tel Aviv. Nokkrar eldflaugar hafa hæft byggingar í Tel Aviv en aðrar hafa verið skotnar niður af loftarnarkerfi Ísraela.