Kjaramál

Bæjarstjóri hækkað um hálfa milljón
Grunnlaun bæjarstjóra Garðabæjar hækkuðu um 27 prósent á kjörtímabilinu. Laun og hlunnindi námu rúmum 2,5 milljónum á mánuði í fyrra. Launahærri en borgarstjóri og forsætisráðherra. Bæjarfulltrúi vildi auka gagnsæi um laun stjórnenda bæjarins.

Forstjóri OR fær þrjár milljónir eftir hækkun
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á dögunum tillögu starfskjaranefndar um að rétt væri að hækka mánaðarlaun Bjarna Bjarnasonar um 6,9 prósent. Fær tæpa hálfa milljón á mánuði fyrir stjórnarsetu í tveimur dótturfélögum OR.

Útvarpsstjóri fékk 250 þúsund króna launahækkun
Árslaun og þóknanir til Magnúsar Geirs Þórðarssonar, útvarpstjóra, hækkuðu um 5,7 milljónir á síðasta ári.

Segir reynt að koma á sig höggi með villandi fréttaflutningi
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að laun séu ekki neitt leyndarmál.

Bónusgreiðslur hífðu upp forstjóralaun
Bónusgreiðslur vegna afkomu ársins 2016 útskýra hækkun launa Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips. Árslaunin námu tæpum 103 milljónum í fyrra. Forstjóralaunin hækkað um 40 prósent frá 2014. Sex framkvæmdastjórar hækkuðu um alls 53,5 milljónir milli ára.

Ólga á meðal grunnskólakennara
Kjarasamningur felldur í gær. Ný samninganefnd tekur við eftir 57 daga.

Næsti fundur í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins eftir páska
Samninganefndir Ljósmæðrafélags Íslands og ríkisins hittust á fundi hjá Ríkissáttasemjara í dag vegna kjaradeilu ljósmæðra.


Ljósmæður í tvenns konar kjarabaráttu
Ljósmæður telja sig hafa dregist verulega aftur úr í almennri launaþróun og krefjast leiðréttingar. Í baráttu sinni hafa þær minnkað heimaþjónustu umtalsvert sem er farið að hafa áhrif á fæðingardeild Landspítalans.

Grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning
Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara hefur fellt nýgerðan kjarasamning FG og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nei sögðu 68,52 prósent en já sögðu 29,74 prósent.

Segir hluthafa N1 senda skýr skilaboð um að almennir starfsmenn muni ekki njóta góðs af velgengni fyrirtækisins
Tillaga stjórnar VR á aðalfundi N1 sem fram fór síðdegis í dag um að almennir starfsmenn fyrirtækisins myndu fá sambærilegar launahækkanir og forstjóri fyrirtækisins, Eggert Þór Kristófersson, var felld.

Leggja til að starfsmenn N1 fái sömu hækkun og forstjórinn
Stjórn VR hefur samþykkt að leggja fram tillögu á aðalfundi N1 um að öllum starfsmönnum fyrirtækisins skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk á liðnu ári.

Frétti af launahækkun forstjórans í fjölmiðlum
Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs, segir sjóðinn ekki hafa náð að líta á launahækkun forstjóra N1. Gildi er einn stærsti hluthafi olíufélagsins.

Stál í stál í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins
Ljósmæður hafa verið samningslausar frá því í lok ágúst er úrskurður gerðardóms um kjör þeirra rann út. Kom úrskurðurinn í kjölfar verkfalls sem ljósmæður fóru í vorið 2015.

Verkalýðsleiðtogi um milljóna launahækkun forstjóra N1: „Þetta var kornið sem stútfyllti mælinn“
Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi, vandar forstjóra og eigendum N1 ekki kveðjurnar í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Forstjóri N1 hækkaði um milljón á mánuði
Laun og hlunnindi fimm helstu stjórnenda N1 hf. námu rúmum 210 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um nærri 30 milljónir milli ára. Laun og hlunnindi forstjórans hækkuð um 20,7 prósent, eða sem nemur rúmri milljón á mánuði

Vill að öflug kona taki við sem forseti ASÍ
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, kveðst hafa fulla trú á að ný stjórn VR vinni vel saman. Úrsögn úr ASÍ er í ferli en breytingar í Eflingu glæða vonir um sameiningu verkalýðshreyfingarinnar. Ragnar vill forseta yfir ASÍ sem leitt gæti slíka sameiningu.

Kennarar skrifa undir samning
Félag grunnskólakennara skrifaði undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í gær. Samningurinn gildir frá 1. apríl til 31. mars á næsta ári.

Sigríður Lovísa efst í stjórnarkjöri VR
Kosningaþátttaka í allsherjaratkvæðagreiðslu tæp tíu prósent.

Gylfi hringdi í Sólveigu en framtíð hans óráðin
Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, ræddi við nýjan formann Eflingar í gær eftir utanferð. Tekur ekki ábyrgð á túlkun á þögn hans eftir kjörið. Niðurstaðan sé flott fyrir Sólveigu Önnu. Enn sé óákveðið hvort hann sækist eftir endurkjöri.

Ragnar Þór um ASÍ: Hallarbyltingin hefur þegar átt sér stað
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að ekki sé þörf á hallarbyltingu innan ASÍ, hún hafi nú þegar átt sér stað.

Fá sextán þúsund á tímann í kjararáði
Þóknun til þeirra sem sitja í kjararáði er nú 16.290 krónur á tímann og hafa launin hækkað um 62,9 prósent á tíu árum. Allar þrjár óskir formanns kjararáðs um launahækkun til ráðsmanna á undanförnum sex árum hafa verið samþykktar.

Nýkjörinn formaður boðar breytta tíma
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, hefur ekki kynnt sér eigin launakjör sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni. Hún boðar breytingar í verkalýðsbaráttunni. Segir yfirburði framboðs síns hafa komið á óvart.

Sólveig Anna nýr formaður Eflingar
Sólveig Anna Jónsdóttir er nýr formaður Eflingar stéttarfélags eftir að B-listinn hafði betur gegn A-listanum í kosningum til stjórnar félagsins.

Streita og álag hrekur konur af vinnumarkaði
Konum sem eru frá vinnu vegna veikinda fjölgaði um 1.700 á árinu 2017. Á sama tíma fjölgaði körlum um 900. Umfang starfsemi VIRK hefur aukist verulega. Tveir af þremur sem þangað leita eru konur.

Stjakaði við formanni FÍL eftir kjaraviðræður
Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri stjakaði við formanni Félags íslenskra leikara (FÍL) eftir harðar samningaviðræður um kaup og kjör leikara við leikhúsið. Leikhússtjórinn þrætir ekki fyrir atvikið, en segir samskipti sín við formanninn góð

Segjast vilja breytingar fyrir verkafólk á Íslandi
Jöfn kosningaþátttaka hefur verið í formanns- og stjórnarkjöri í Eflingu sem stendur til kl. 20 í kvöld. Kjósendur sem Fréttablaðið ræddi við vilja breytingar.

Kosningar í Eflingu: Segjast ekki kannast við áróður á kjörstað
Magnús M. Norðdahl, formaður kjörstjórnar verkalýðsfélagsins Eflingar, segir að þeir starfsmenn félagsins sem rætt hafi verið við vegna meints áróðurs á kjörstað utan kjörfundar kannist ekki við atvikið.

Dæmi um að viðhalds- og umsýslugjöld séu dregin af launum erlendra starfsmanna
60 prósent þeirra mála sem komu inn á borð Eflingar á síðasta ári varðandi launakröfur og brot á réttindum launafólks tendust launafólki af erlendum uppruna.

„Það eina sem þetta B-listafólk vill er verkfall, verkfall og aftur verkfall“
B-listi hyggst kæra kosningar í Eflingu vegna áróðurs á kjörstað.