Utanríkismál

Fréttamynd

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu”

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Hún spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra út í stöðu mála hvað þau varðar og svörin sem Diljá Mist fékk voru ekki til þess fallin að minnka áhyggjur hennar, síður en svo.

Innlent
Fréttamynd

Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Krist­rúnar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki orðið við beiðni Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um fund. Hún segir að frá því að kjörtímabil Trumps hófst hafi samskipti aukist við Bandaríkin innan stjórnsýslunnar. Hún vænir þingmann Sjálfstæðisflokksins um að gera samskipti milli ríkjanna tortryggileg.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri hlynntir en and­vígir sam­kvæmt nýrri könnun

Fleiri eru hlynntir en and­vígir því að Ís­land hefji aðildar­viðræður við Evrópu­sam­bandið sam­kvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 pró­sent svar­enda vera hlynntir viðræðum en 39,4 pró­sent and­vígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 pró­sent veit ekki og 1,5 pró­sent vildu ekki svara.

Innlent
Fréttamynd

Sam­komu­lag um landaheitið Ís­land undir­ritað

Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði.

Innlent
Fréttamynd

Þrír mánuðir til stefnu

Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já. 

Innlent
Fréttamynd

Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð

Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað hafa þau að fela?“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings.

Innlent
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Aðildar­við­ræður gætu kostað tæpa tvo milljarða

Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs.

Innlent
Fréttamynd

Breyttu spurningunni í þjóðar­at­kvæða­greiðslunni

Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli.

Innlent
Fréttamynd

Ó­væntur ríkis­stjórnar­fundur í dag

Nokkrir ráðherrar úr ríkisstjórninni komu saman á fund í dag, sunnudag, til þess að samþykkja afléttingu á trúnaði yfir gögnum sem utanríkismálanefnd hafði óskað eftir í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013.

Innlent
Fréttamynd

Hvernig Rúss­land tapaði vinum sínum og á­hrifum á heims­vísu

Frá því að Vladimir Pútín hóf allsherjarinnrás sína í Úkraínu fyrir meira en fjórum árum hefur honum ekki aðeins mistekist að ná þeim hernaðarlega sigri sem hann þráði. Hann hefur einnig grafið undan fjölmörgum samböndum og tengslum sem hann eyddi áratugum í að byggja upp, með þeim afleiðingum að Rússland er nú einangraðra en á nokkrum tíma síðan á fyrstu árum bolsévikabyltingarinnar.

Umræðan
Fréttamynd

Skák og mát í Íran

Bandaríkin geta hvorki snúið við né stjórnað afleiðingunum af því að tapa þessu stríði við Íran.

Umræðan
Fréttamynd

Lands­kjör­stjórn fellst á til­lögur um nýtt orða­lag

Landskjörstjórn telur tvær nýjar tillögur að spurningu sem lögð verði undir landsmenn í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Tillögurnar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis eru taldar samræmast meginsjóðanarmiðum um að spurningin eigi að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus.

Innlent
Fréttamynd

„Komið þá með allt það sem gerðist síðast“

Forsætisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Þingflokksformaður Viðreisnar sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður.

Innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Stál í stál og sam­mála um fátt á fundi um ESB

Mikill hitafundur fór fram í Smiðju Alþingis á föstudag þegar utanríkisráðherra mætti fyrir utanríkismálanefnd að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Stjórnarandstaðan segir fundinn vonbrigði en ráðherra segir hörkuna í umræðunni koma á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Lægri húsnæðis­vextir með evru (stað­fest)

Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru.

Skoðun
Fréttamynd

For­seti klökknaði þegar Þór­dís Kol­brún kvaddi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki.

Innlent
Fréttamynd

Þór­dís Kol­brún skipuð sendi­herra í London

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi.

Innlent