
Grindavík

Dregið hafi úr góðvild í garð björgunarsveitafólks
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir teikn á lofti um að dregið hafi úr góðvild vinnuveitenda og aðstandenda björgunarsveitafólks. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglustjórans til fjölmiðla.

Jól í Grindavík eftir allt saman
Frá og með Þorláksmessu mega Grindvíkingar fara inn í bæinn allan sólarhringinn og jafnvel sofa þar. Því verða jól í Grindavík eftir allt saman, allavega hjá þeim Grindvíkingum sem það vilja.

Sundhnúksgígar fyrir og eftir gos
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, eða RAX, náði myndunum hér fyrir neðan úr lofti í grennd við gosstöðvarnar við Sundhnúk. Önnur er tekin áður en gosið hófst og sú seinni eftir að því lauk í gær.

Almannavarnastig lækkað niður á hættustig
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig vegna eldgos á Reykjanesskaga.

Skýr merki um landris og kvikusöfnun við Svartsengi
Skýrt landris er við Svartsengi samkvæmt GPS mælum á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þrjár sviðsmyndir í boði en að erfitt sé að segja til um það hvað gerist næst. Enn sé nokkur hætta á svæðinu.

Funda um mögulega kvikusöfnun undir Svartsengi klukkan 9 og 13
Rólegt var á Reykjanesskaga í nótt og lítil jarðaskjálftavirkni á svæðinu.

Svona gætu eldgosin orðið ef þau líkjast Kröflueldum
Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda.

Nýjar myndir frá rjúkandi gosstöðvum
Eldgosinu við Sundhnúksgíga virðist lokið. Nýjar myndir frá gosstöðvunum sýna að enn er glóð í nýja hrauninu en virkni er alveg dottin niður. Bæjarstjóra Grindavíkur segir goslok góðar fréttir - en vill ekki fagna of fljótt.

Hvers eiga viðbragðsaðilar að gjalda?
Veðurstofa Íslands gefur út hættumatskort vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Á kortinu sem nú gildir segir m.a. að töluverð hætta sé á gosopnun án fyrirvara í Grindavík auk þess sem hætta sé á sprunguhreyfingum, jarðskjálftum ásamt fleiru. Á hluta Grindavíkurvegar og Bláalónsvegar metur Veðurstofan mjög miklar líkur á skyndilegri gosopnun ásamt öðrum hættum af völdum jarðhræringanna.

Undirbúa málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík
Fyrrverandi hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tekið að sér mál nokkurra Grindvíkinga sem hyggja á málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík. Jón telur stjórnvöldum ekki heimilt að banna Grindvíkingum að fara til sinna heima, en þeir hafa búið við strangar takmarkanir um hvort og hvenær þeir mega vera í bænum frá því snemma í nóvember.

Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin að nýju
Vísbendingar eru um að kvikusöfnun sé hafin að nýju undir Svartsengi. Náttúruvásérfræðingur segir sérfræðinga búa sig undir möguleikann á ítrekaðri virkni.

Svekkt að missa af eldgosinu
Guadalupe Megías, fréttamaður spænska ríkissjónvarpsins, kom til Íslands í gær til að flytja fréttir af eldgosinu við Grindavík. Innan við sólarhring síðar er gosinu lokið.

Telur mjög litlar líkur á að gjósi í sjálfri Grindavík
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir mjög litlar líkur á því að það gjósi í eða við Grindavík. Líklegt verði að telja að annað gos verði á svæðinu þar sem eldgos hófst á mánudagskvöld og lauk í morgun.

Náðu ekki samningum um áframhaldandi leikskólastarf í Grindavík
Heilsuleiksskólinn Krókur í Grindavík tilkynnti foreldrum barna í skólanum í gær að samningar um áframhaldandi rekstur skólans eftir áramót hefðu ekki tekist. Bærinn mun sjálfur taka við leikskólastarfinu, en það hefur verið í umsjón Skóla ehf.

Gosinu við Sundhnúksgíga lokið
Gosinu við Sundhnúksgíga er lokið. Slokknað er í öllum gígum, en glóð er enn sjáanleg. Erfitt er þó að segja til um framhaldið.

Gosvirkni áfram sýnileg en minni en í gær
Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, en virðist heldur minni en í gær.

Vaktin: Engin gosvirkni sýnileg
Vísindamenn á flugi yfir gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun sáu enga gosvirkni. Virðist sem slokknað sé í gígum en glóð eru enn sjáanleg í hraunbreiðunni. Enn er þó of snemmt að lýsa yfir goslokum þar sem hraun gæti flætt í lokuðum rásum.

Bæjarstjórn tekur fyrir altjónslista í næstu viku
Altjónslisti frá Náttúrutryggingum Íslands (NTÍ) yfir hús í Grindavík verður tekinn fyrir af bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á milli jóla og ný árs. Íbúi segist hafa fengið þau svör að ekki verði hægt að bæta tjón fyrr en afstaða liggi fyrir í málinu.

„Ég var dofinn bæði andlega og líkamlega“
Grindvíkingur segir fregnir af eldgosinu hafa slegið íbúa afar illa. Hann segist hafa verið dofinn líkamlega og andlega fyrst um sinn og að það sé erfitt að lifa í svona óvissu.

„Það eina sem við getum gert er bara að fylgjast með“
Uppfært hættumat Veðurstofunnar gerir ráð fyrir töluverðri hættu á gosopnun í Grindavík. Áður var hættan talin mikil. Náttúruvársérfræðingur segir stöðuna geta breyst hratt, eins og hún hafi þegar gert. Því sé ómögulegt að segja til um framhaldið.

Grindvíkingar gisti ekki meðan hraunið flæði
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir að á meðan gosið sé í gangi sé ekki öruggt að gista í Grindavík. Áhersluna sé að tryggja öryggi og velferð þeirra en aðbúnaður fyrir ferðamenn og þá sem vilja bera gosið augum sé aftarlega á listanum. Því segir hann göngustíg að gosstöðvunum ekki í forgangi, en seinna meir gæti það verið sett í skoðun.

Húsnæðisstuðningur framlengdur út veturinn
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar.

Óttast að þjóðin fái leiða á Grindvíkingum og fjari undan hjálpseminni
Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári.

Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgoss
Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgossins við Sundhnúksgíga hefst klukkan 14.

„Sárt að horfa á fólk skemmta sér meðan maður sat með tárin í augunum“
Íbúi í Grindavík segir sárt að sjá landsmenn horfa á eldgosið við Sundhnúksgíga sem afþreyingu á meðan Grindvíkingar glíma við erfiðar tilfinningar. Grindvíkingar þurfi meiri vissu um hvað taki við á komandi mánuðum.

Öll umferð bönnuð í Grindavík
Eftir fund aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar nú í morgun hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að banna alla umferð og viðveru í Grindavíkurbæ á meðan nýtt hættumatskort er í gildi.

Haraldur telur enga ástæðu til halda Grindavík áfram lokaðri
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur stendur enn við þá skoðun sína að Grindavíkurbær sé ekki í hættu vegna eldgoss og að leyfa eigi bæjarbúum að snúa aftur heim til sín.

Skilja að fólk vilji berja gosið augum en hraunið sé hættulegt í myrkrinu
Nokkuð var um að vera hjá viðbragðsaðilum við gosstöðvarnar þó nóttin hafi verið tíðindalítil heilt yfir. Samskiptastjóri almannavarna segir viðbragðsaðila skilja vilja fólks til að berja eldgosið augum en aðstæður séu ekki hliðhollar til skoðunarferða.

Breytt landslag og viðbragðsaðilar komnir að þolmörkum
Aðgerðastjórn og vettvangsstjórn munu funda klukkan 9, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hann segir ekki fyrirsjáanlegt að opnað verði fyrir aðgengi að gosstöðvunum.

Vaktin: Uppfæra hættumat og telja töluverða hættu í Grindavík
Enn virðist draga úr eldvirkni við Sundhnúkagíga. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála á Reykjanesskaga í allan dag.