Reykjavík

DNA konu fannst á typpi karlmanns en dugði ekki til
Karlmaður hefur verið sýknaður af nauðgun með því að hafa á árshátíð stungið lim sínum í munn samstarfskonu eiginkonu sinnar á klósettinu. DNA úr konunni fannst á typpi mannsins, sáðfrumur í munni hennar en engar í nærbuxum mannsins. Of mikill vafi þótti á því hvort maðurinn hefði verið að verki.

Eltu kærustupar grunað um græsku um miðbæinn á kvennafrídaginn
Karl og kona hafa hvort um sig fengið árslangan fangelsisdóm fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Parinu var gefið að sök að gera tilraun til að taka við tæplega 1,1 kílói af kókaíni sem kom með póstsendingu til landsins sem barst þann átjánda október í fyrra.

Grætur ekki gamla heimilið í Elliðaárdalnum
Lengi hefur staðið til að rífa húsið Skálará í Elliðaárdalnum sem varð eldi að bráð í gærkvöldi. Fyrrverandi íbúi segir húsið hafa verið handónýtt og tilefni til að rífa það fyrir löngu síðan. Hann sér ekki á eftir heimili sínu um árabil.

Ekki talinn hæfur til að vera meðal almennings
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð til vegna einstaklings í annarlegu ástandi í miðborginni. Var viðkomandi metinn óhæfur til að vera á meðal almennings og vistaður í fangageymslu.

Eldur logar í Elliðaárdalnum
Eldur kviknaði nú í kvöld í gömlu húsi við Stekkjarbakka í Elliðaárdalnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að ráða niðurlögum eldsins.

35 fermetrar á 220 þúsund krónur
Dæmi eru um það að leiguverð á litlum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sé komið yfir sex þúsund krónur á fermetrann. Leiguverðið er langt yfir meðalfermetraverði á höfuðborgarsvæðinu.

Leita að listaverkum Erró í einkaeigu fyrir listasýningu
Listasafn Reykjavíkur leitar nú að listaverkum eftir Erró til að sýna á sýningu sem á að opna í september á þessu ári.

Dýrasta spilið kostar 140 þúsund krónur
Eina Pokémon-verslun landsins hefur stækkað við sig vegna mikillar velgengni. Stök spil geta kostað tugi þúsunda króna en eigendurnir segja viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum.

Blendnar tilfinningar til breytinga hjá sundlaugunum
Blendnar tilfinningar eru meðal sundlaugargesta vegna breytinga á opnunartímum sundlauga í borginni. Dögum þar sem laugarnar standa opnar fjölgar svo um munar á árinu - en kvöldsund skerðist hins vegar talsvert.

Piltar taldir hafa verið að verki
Ekki er vitað hversu margir gerendur voru að verki þegar pilti var ógnað með hnífi við Laugardalslaug í gær. Tilkynnt var um atvikið um hálftíma eftir að það átti sér stað og talið er að aðrir piltar hafi verið að verki.

Atlaga með hníf í sundlaug til rannsóknar
Lögreglunni var í gær tilkynnt um einstaklinga sem veittust að öðrum manni með hníf í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu. Enginn slasaðist vegna málsins sem er nú í rannsókn hjá lögreglu.

Vinna hafin við göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár
Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist á þessum kafla í Víðidal. Brúarsmíðin er einn verkþátta Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, sem Suðurverk og Loftorka annast.

Bílstjórinn tekinn úr umferð hjá Pant
Bílstjóri Hreyfils sem skildi fatlaðan dreng eftir við Víkingsheimilið á fimmtudag í stað þess að aka honum heim ekur ekki lengur fyrir Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Það staðfestir Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils.

Fatlaður drengur fannst illa haldinn fjarri heimili sínu
Móðir fatlaðs drengs sem skilaði sér ekki heim úr akstursþjónustu segir heppni að ekki fór verr. Sonur hennar fannst í Víkingsheimilinu um hálftíma eftir að hann fór úr leigubíl frá Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Bílstjórinn keyrir ekki lengur fyrir Pant.

Kalli í Pelsinum látinn
Athafnamaðurinn Karl J. Steingrímsson er látinn. Karl, sem var gjarnan kenndur við verslunina Pelsinn, lést síðastliðinn fimmtudag, 22. febrúar, 76 ára að aldri.

Rangfærslur um innflytjendur á Norðurlöndum hraktar
Í vaxandi umræðu um málefni innflytjenda á Íslandi draga sumir upp mynd af innflytjendum sem byrði á samfélaginu og ræða um áhyggjur af efnahagslegu álagi, menningarátökum og öryggisógnum.

Meira sund!
Ný tillaga um opnunartíma sundlauganna í borginni á hátíðisdögum var samþykkt einróma á síðasta fundi menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Þjónusta sundlauganna verður stóraukin á þessum frídögum einkum á stórhátíðum um jól og páska en almennt fjölgar opnum stundum í sundlaugunum á rauðum dögum um helming eða 64%, en ennþá meira um jól og áramót þegar opnunartíminn yfir hátíðardagana meira en tvöfaldast frá því í fyrra.

Maður vopnaður skotvopni reyndist vera að þrífa bílinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í gærkvöldi tilkynningu um einstakling vopnaðan skotvopni í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn reyndist ekki vera með skotvopn heldur ryksugu og er sagður hafa verið að gera helgarþrifin á bílnum sínum.

Blæs á áhyggjur borgarfulltrúa af brúnni
Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir ekkert til í því að Fossvogsbrú muni nýtast illa. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir allt of mikla fjármuni fara í framkvæmdina, sem myndu nýtast betur annars staðar.

Sérsveitin sprengdi úti á Granda
Sérsveit ríkislögreglustjóra efndi til reglubundinnar æfingar við hafnarsvæðið á Granda í Reykjavík í dag. Viðfangsefni æfingarinnar var yfirtaka á skipum og öðrum sjóförum. Tökumaður Stöðvar 2 myndaði æfinguna í dag, þar sem notast var við sprengiefni og sprengjuvélmenni.

Breyta fyrirkomulagi sundlauga á rauðum dögum
Opnunartími sundlauga borgarinnar verður lengdur á hátíðisdögum samkvæmt tillögu sem samþykkt var í dag í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar. Breytingin tekur gildi frá og með páskum á þessu ári.

Tveir milljarðar í leiðtogafundinn
Heildarkostnaður stjórnvalda vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fór í Reykjavík í maí á síðasta ári nam alls tveimur milljörðum króna samkvæmt uppgjöri utanríkisráðuneytisins og upplýsingum frá ríkislögreglustjóra og innviðaráðuneyti.

Unglingum vísað af veitingastað og maður með vesen á slysadeild
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða. Þá bárust einnig tilkynningar um líkamsárás og innbrot og þjófnað í heimahús.

Leggur til ellefu króna hækkun frekar en skerðingu opnunartíma
Ólafur Egilsson, leikhúsmaður með meiru, er ekki ánægður með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að skerða opnunartíma sundlauga borgarinnar um helgar. Hann leggur til að hætt verði að hleypa erlendum eldri borgurum frítt ofan í eða aðgangsverð verði hækkað um 11,2 krónur.

Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara
Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist.

Einkunnir, launamál og heilsufarsupplýsingar undir í árásinni á HR
Upplýsingar um einkunnir, agamál, launamál og fleiri viðkvæmar persónuupplýsingar voru á drifum Háskóla Reykjavíkur sem gögnum var stolið af í upphafi þessa mánaðar.

Missti aldrei stjórn á aðstæðum í baðstofunni
Björn Leifsson, eigandi World Class, segir ekki rétt að hann hafi ekki ráðið við aðstæður sem upp komu í baðstofu Lauga Spa á laugardaginn. Greint var frá því á Vísi á mánudag að lögreglan hefði haft afskipti af góðkunningjum lögreglunnar í baðstofunni. Sérsveitarmenn hefðu mætt á svæðið.

Leika listir sínar við Viðey
Hnúfubakar hafa leikið listir sínar örskammt frá landi í Reykjavík undanfarna daga. Þeir virðast njóta athygli vegfarenda í botn.

Ekki tilbúin að sleppa taki af Kolaportinu
Unnið er að því að finna nýja staðsetningu fyrir starfsemi Kolaportsins. Listaháskólinn flytur brátt í núverandi húsnæði þess en borgin er ekki tilbúin að sleppa taki af eina markaðstorgi miðbæjarins.

Draumur marxista um fría lóð endanlega úti
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni DíaMat – félags um díalektíska efnishyggju um áfrýjunarleyfi í máli félagsins á hendur Reykjavíkurborg. Félagið höfðaði málið eftir að borgin neitaði að úthluta félaginu ókeypis lóð fyrir starfsemi þess.