
Sjálfstæðisflokkurinn

Valgerður sækist eftir þriðja sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík
Borgarfulltrúinn Valgerður Sigurðardóttir sækist eftir þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni. Prófkjörið fer fram 18. og 19. mars næstkomandi.

Ómar Stefánsson vill fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Ómar Stefánsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem fer fram 12. mars.

Fjölskyldur í forgang – fram veginn í leikskólamálum
Tæplega 9% íbúa Kópavogsbæjar eru 6 ára og yngri. Það ætti því að koma fæstum á óvart að leikskólamál í bænum verði mikið til umræðu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Helgi ætlar sér sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Helgi Áss Grétarsson, lögfræðingur og stórmeistari í skák, gefur kost á sér í fimmta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Prófkjörið fer fram 12. eða 19. mars næstkomandi.

Geimferðaráætlun Reykjavíkur?
Geimferðaráætlun Bandaríkjanna komst á skrið á 7. áratug síðustu aldar. Fara skyldi til tunglsins og kanna óþekktar lendur alheimsins.

Birna sækist eftir 2.-3. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum, sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Prófkjörið verður haldið í mars.

Teitur Björn verður aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar
Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann tekur við af Hreini Loftssyni sem hætti sem aðstoðarmaður Jóns um miðjan desember eftir einungis tvær vikur í starfi.

Síminn segir framtíð RÚV betur borgið utan samkeppnismarkaðar
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins leggur aftur fram frumvarp um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Síminn fagnar framkomu málsins í umsögn og segir ánægjulega afleiðingu þess að hið opinbera fari af samkeppnismarkaði verði betra ríkisútvarp. „Ríkisútvarp þar sem dagskrárákvarðanir verða loks teknar af dagskrárstjóra en ekki auglýsingadeild.”

Eyjólfur sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ
Eyjólfur Gíslason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar.

Helga Jóhanna stefnir á þriðja sætið
Helga Jóhanna Oddsdóttir býður sig fram í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helgu Jóhönnu sem hefur undanfarin tvö ár starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs HS Veitna.

Gígja stefnir á 4. sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar næstkomandi.

Helga býður sig fram í 2.-3. sæti hjá Sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði
Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, hefur boðið sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 14. maí.

Guðbjörg Oddný vill 3. sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi og varaþingmaður, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer dagana 3.-5. mars næstkomandi.

Framfarir í Garðabær byggja á nýsköpun
Ég hef skýra framtíðarsýn fyrir Garðabæ. Hún byggir á traustum fjárhag og nýsköpun í þjónustu og rekstri – sem kristallast í framsækinni þjónustu, velsæld íbúa á öllum aldri og fjölbreyttum lífsgæðum í nærumhverfinu.

Steinþór Jón vill 5. sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ
Steinþór Jón Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fram fer þann 26. febrúar næstkomandi.

Birgitta Rún vill fimmta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ
Birgitta Rún Birgisdóttir býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjanesbæ í vor.

Hannes vill fjórða sæti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Hannes Steindórsson, fasteignasali og formaður félags fasteignasala, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor. Hann sækist eftir fjórða sæti.

Jórunn Pála vill fjórða sæti hjá Sjálfstæðiflokknum í borginni
Jórunn Pála Jónasdóttir sækist eftir fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem mun fara fram í mars.

Björn vill þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Björn Gíslason, borgarfulltrúi og formaður Fylkis, gefur kost á sér í þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í próofkjöri fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Ragnhildur Alda boðar oddvitaslag hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hún fer þar upp á móti Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa, sem var í öðru sæti listans í síðustu kosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn missir tvo borgarfulltrúa samkvæmt könnun Maskínu
Meirihlutaflokkarnir myndu bæta við sig tveimur borgarfulltrúum ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu fylgi frá síðustu kosningum, Píratar sækja í sig veðrið og Framsóknarflokkurinn næði inn manni.

Halda opið prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefur ákveðið að halda opið prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Prófkjörið mun fara fram annað hvort tólfta eða nítjánda mars.

Sigmar sakar Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gerði vaxtahækkanir og hækkandi afborganir almennings af húsnæðislánum sínum að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum í þinginu í dag og sakaði Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi.

Vaxtaverkir í leikskólamálum í Urriðaholti
Samkvæmt skilgreiningu orðabókar þýðir „vaxtaverkur“ meðal annars stundarörðuleikar tengdir örri þróun.

Marta fer ekki fram gegn Hildi en gefur kost á sér í annað sætið
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hyggst ekki fara fram gegn Hildi Björnsdóttur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þess í stað sækist hún eftir öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins.

Búist við hitafundi fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna á morgun
Ákvörðun Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaga í Reykjavík, um að loka kjörskrá tveimur vikum fyrir kjördag í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur reynst umdeild meðal flokksmanna.

Frestað!
Byggingarfulltrúi í Reykjavík tók til afgreiðslu á dögunum, 88 mál á fimm klukkustunda fundi. Það fór ekki betur en svo að 63 málanna var frestað. Torsótt er að kynna sér ástæður frestunar.

Saman að settu marki
Ég hef lengi tekið þátt íþrótta- og æskulýðsstarf, sem iðkandi, foreldri, stjórnarmaður og ekki síst stuðningsmaður. Ég brenn fyrir því að Garðabær haldi forystu á þessu sviði.

Hildur vill heimila íslenska netverslun með áfengi
Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður frumvarps um breytingu á lögum um netverslun með áfengi sem hún leggur fram í dag. Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda.

Loftslagsmálin hafa forgang
Ég bind miklar vonir við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við umhverfis- og loftslagsráðuneytinu. Víst er að loftslags- og umhverfismál munu verða efst á baugi hjá okkur Íslendingum á næstu árum og áratugum.