Danski boltinn

Ísak sá rautt en Sævar skoraði í Íslendingaslag
Sævar Atli Magnússon og félagar hans í Lyngby undir stjórn Freys Alexandersonar unnu öruggan 3-0 útisigur gegn Ísaki Óla Ólafssyni og félögum hans í Lyngby í dönsku b-deildinni í fótbolta í kvöld. Sævar Atli skoraði fyrir Lyngby, en Ísak fékk að fara snemma af velli í liði Esbjerg.

Innkoma Guðmundar lykillinn að endurkomu Álaborgar
Guðmundur Þórarinsson lék sinn fyrsta leik fyrir AaB er liðið vann 3-2 endurkomusigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Aron Elís Þrándarson var ekki í leikmannahópi OB.

Orri Steinn með þrennu og nálgast tuttugu mörkin
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir nítján ára lið FC Kaupmannahafnar í dönsku unglingadeildinni.

Elías biðst afsökunar: „Heimskuleg mistök hjá mér“
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson gerði slæm mistök á ögurstundu í stórleik helgarinnar í danska fótboltanum.

Hrikaleg mistök Elíasar á ögurstundu færðu Ísaki og félögum sigur
Íslensku landsliðsmennirnir Elías Rafn Ólafsson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru sannarlega í sviðsljósinu í toppslag Midtjylland og FCK í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Mikael og félagar sóttu stig gegn Bröndby
Íslendingalið AGF gerði ágætis ferð til Kaupmannahafnar þar sem liðið heimsótti Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Svekkjandi tap Lyngby á heimavelli í kvöld
Íslendingalið Lyngby mátti þola svekkjandi tap gegn Nykobing í dönsku B-deildinni í kvöld, lokatölur 1-2 gestunum í vil.

SönderjyskE áfram á botninum
Íslendingalið SönderjyskE er áfram á botni dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-1 jafntefli við Nordsjælland í kvöld.

Hélt Ísaki utan hóps en fannst hann magnaður í gær
Ísak Bergmann Jóhannesson fékk hrós frá þjálfara FC Kaupmannahafnar eftir að hafa loksins í gær fengið að spila sinn fyrsta keppnisleik með liðinu á þessu ári.

86 Danir handteknir eftir markaveislu Ísaks Bergmanns og félaga í gær
Stuðningsmenn FC Kaupmannahafnar komu sér í vandræði eftir leik liðsins á móti PSV Eindhoven í Hollandi í gær.

Mikael skoraði er AGF glutraði niður forystu undir lok leiks
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson skoraði síðara marka AGF í 2-3 tapi liðsins gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Mikael lék allan leikinn og þá lék Jón Dagur Þorsteinsson 81 mínútu í liði AGF.

Sveindís Jane kom inn af bekknum í öruggum sigri | Kristín Dís og stöllur úr leik í bikarnum
Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af bekknum er Wolfsburg vann öruggan 4-1 sigur á Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Kristín Dís Árnadóttir lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Bröndby er liðið tapaði naumlega fyrir Fortuna Hjörring.

Tipsbladet: FCK borgaði tæpar 50 milljónir króna fyrir Ásgeir Galdur
Samkvæmt heimildum Tipsbladet í Danmörku þá borgaði danska stórliðið FC Kaupmannahöfn tæpar 50 milljónir íslenskra króna fyrir hinn 15 ára gamla Ásgeir Galdur Guðmundsson er félagið keypti hann frá Breiðabliki á dögunum.

Þrír Íslendingar komu við sögu er SönderjyskE bjargaði stigi
SönderjyskE og OB mættust í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en alls komu þrír Íslendingar við sögu.

Sævar Atli skoraði í stórsigri Lyngby
Sævar Atli Magnússon skoraði annað mark Lyngby er liðið vann góðan 3-0 útisigur gegn Amager í dönsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld.

Elías stóð vaktina er Midtjylland lyfti sér upp að hlið toppliðsins
Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland er liðið vann góðan 3-1 heimasigur gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Frey gert að undirbúa leik við „súrrealískar“ aðstæður: Hugur okkar allra hjá Marcel og börnunum
Fótboltaþjálfarinn Freyr Alexandersson segir að síðustu dagar hafi verið súrrealískir og enginn í liði hans Lyngby verið með hugann við fótbolta, eftir að eiginkona fyrirliðans lést á mánudaginn.

Fyrirliði Freys missti eiginkonu sína
Marcel Römer, fyrirliði danska knattspyrnufélagsins Lyngby, er kominn í leyfi um óákveðinn tíma eftir að eiginkona hans, Cecilie, lést á mánudaginn.

Atli og Kristófer Ingi fastir við botninn í Danmörku
Íslendingalið SönderjyskE tapaði naumlega 1-0 fyrir Danmerkurmeisturum Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Atli Barkarson og Kristófer Ingi Kristinsson voru báðir í byrjunarliði SönderjyskE.

Galdur samdi við danska stórveldið fyrir grunnskólalok
Danska knattspyrnuveldið FC Kaupmannahöfn heldur áfram að sækja sér efnilega Íslendinga og hefur nú tryggt sér krafta hins 15 ára gamla Ásgeirs Galdurs Guðmundssonar.

Vagner Love bjargaði stigi fyrir Midtjylland á lokasekúndunum
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson stóð allan tímann á milli stanganna hjá Midtjylland þegar liðið heimsótti OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Enginn Íslendinganna með í sigri FCK
Annan leikinn í röð var enginn Íslendinganna í leikmannahópi danska stórliðsins FCK þegar liðið heimsótti Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Aron hjálpar Freysa
Aron Sigurðarson skoraði í 2-1 sigri Horsens á Hvidovre í dönsku 1. deildinni í dag.

Lyngby misstígur sig í toppbaráttunni
Danska liðið Lyngby, undir stjórn Freys Alexanderssonar, gerði 1-1 jafntefli við FC Fredericia á heimavelli í dönsku fyrstu deildinni í dag.

Jón Dagur lagði upp og nældi sér í spjald í grátlegu tapi
Jón Dagur Þorsteinson lagði upp fyrra mark AGF í grátlegu tapi gegn Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 3-2 Vejle í vil. Jón Dagur og Mikael Anderson voru báðir í byrjunarliði AGF í kvöld.

Ísak Bergmann einfaldlega skilinn eftir utan hóps | Lék með varaliðinu í dag
Það vakti mikla athygli er Ísak Bergmann Jóhannesson var ekki í leikmannahóp FC Kaupmannahafnar er danska úrvalsdeildin í knattspyrnu fór aftur af stað eftir vetrarfrí um helgina. Þjálfari liðsins sagði Ísak Bergmann einfaldlega hafa verið skilinn eftir utan hóps að þessu sinni.

Hildigunnur Ýr æfði með Danmerkurmeisturum HB Köge
Stjörnustúlkan Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir var við æfingar hjá Danmerkurmeisturum HB Köge í síðustu viku. Lék hún meðal annars tvo æfingaleiki með liðinu sem stefnir á að verja titil sinn.

Guðmundur á leiðinni til Álaborgar
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson er lentur í Álaborg og mun skrifa undir samning við knattspyrnufélagið þar í bæ á næstu dögum. Frá þessu greindi fjölmiðlamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason á Twitter-síðu sinni í dag.

Wilshere ekki launahæstur hjá AGF
Þrátt fyrir að vera langfrægasti leikmaður AGF er Jack Wilshere ekki launahæsti leikmaður félagsins.

Wilshere heillaðist af leikstíl AGF
Það vakti heimsathygli í gær þegar tilkynnt var um samning enska knattspyrnumannsins Jack Wilshere við danska úrvalsdeildarliðið AGF í Árósum.