Enn lítið um svör í Englandi Yfirvöld í Bretlandi hafa enn litlu svarað um handtöku fimm manna nærri mikilvægri herstöð í Englandi á sunnudaginn. Mönnunum var sleppt í gær og hefur það vakið mikla furðu, þar sem þeir voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi var lýst yfir við herstöðina, þar sem enn má sjá mikinn viðbúnað. Erlent 29.9.2026 14:08
Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra. Erlent 28.9.2026 15:23
Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í fótbolta, er genginn út. Hann er í sambandi með enska pílateskennaranum Madi Woodruff. Andri hefur byrjað nýtt tímabil gríðarlega vel. Lífið 28.9.2026 13:46
„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ „Þetta er auðvitað ofboðslega erfitt og þetta er nú langur vegur. Þetta er ekki eitthvað sem er að fara að gerast hér á næstunni. Það sem þeir eru að gera núna er að krefjast réttarins til þess að halda atkvæðagreiðsluna því að þeir geta ekki gert það upp á eigin spýtur samkvæmt bresku stjórnarskránni og í rauninni þarf forsætisráðherra að fallast á þetta.“ Erlent 14. september 2026 08:39
Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Malcom Potier, 75 ára, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að taka konu hálstaki sem byrjaði að syngja með á söngleik fyrir þremur árum. Erlent 11. september 2026 07:43
Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Miklar truflanir urðu á hafnarstarfsemi í bænum Dover í Kent-sýslu í Englandi í dag er svartklæddur hópur fólks hélt mótmæli að því er virðist gegn straumi flóttamanna til landsins. Erlent 5. september 2026 23:43
Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Jordon Ibe, fyrrverandi leikmaður Liverpool, var í gær dæmdur fyrir að rífa fléttu af höfði þáverandi kærustu sinnar. Ibe þótti einkar efnilegur fótboltamaður en hefur farið rækilega af sporinu. Enski boltinn 5. september 2026 13:01
Hvað veistu um… London? London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum. Lífið 3. september 2026 20:01
Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Tólf hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á aðdraganda banaslyss nærri Middlesbrough í Bretlandi, þar sem Volkswagen Passat-bíll og lögreglubíll skullu saman. Sjö létu lífið í árekstrinum á laugardagsmorgun. Erlent 24. ágúst 2026 16:44
Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Boltinn úr einu sögufrægasta atviki Heimsmeistaramótsins í fótbolta frá upphafi hefur verið seldur á uppboði en var seldur fyrir töluvert minni upphæð en uppboðshaldarar vonuðust til. Fótbolti 24. ágúst 2026 11:00
Tveir hinna látnu lögreglumenn Sjö létust í bílslysi nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt þegar lögreglubíll og Volkswagen Passat-bifreið skullu saman. Tveir hinna látnu voru lögreglumenn. Erlent 22. ágúst 2026 15:39
Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Nokkrir eru látnir eftir árekstur sem varð milli lögreglubíls og eins til tveggja annarra bíla nálægt borginni Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Erlent 22. ágúst 2026 09:44
Fannst hann ekki geta haldið áfram Forsætisráðherra Bretlands segir fráfall fræðimannsins Jason Arday kalla á umhugsun. Arday sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla vegna ásakana um ritstuld sem hann sagði sprottnar af kynþáttafordómum. Erlent 15. ágúst 2026 13:41
Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag. Erlent 14. ágúst 2026 21:59
Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Miklar tafir urðu á lestarsamgöngum í Essex á Englandi eftir að lest fór út af sporinu í dag, önnur á jafnmörgum dögum. Um borð voru tæplega 45 farþegar en enginn þeirra slasaðist og lestin hélst upprétt í hamaganginum. Erlent 14. ágúst 2026 20:00
Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Nigel Farage, leiðtogi breska Umbótaflokksins, fór með sigur af hólmi í aukakosningum í Clacton í gær. Hann hlaut 63,34 prósent atkvæða en næstur á eftir honum var grínistinn Jonathan David Harvey, undir dulnefninu Ruslatunnufés greifi. Greifinn, sem er með ruslatunnuhöfuð, hlaut 26,93 prósent atkvæða. Erlent 14. ágúst 2026 06:29
Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu í lágstemmdri leynilegri athöfn og héldu svo annað brúðkaup með stórri veislu á sveitasetrinu Beaverbrook í Surrey í vikunni. Um 250 gestir voru í veislunni sem kostaði víst hálfa milljón sterlingspunda (jafnvirði um 83 milljóna króna) og var strangt símabann á staðnum. Lífið 7. ágúst 2026 13:52
Kona stakk fjóra í Lundúnum Kona er grunuð um að hafa stungið fjóra karlmenn í Lundúnum í dag. Umrædd kona, sem mun vera 47 ára gömul, hefur verið handtekin. Erlent 5. ágúst 2026 14:14
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28. júlí 2026 16:55
Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Bandaríski söngvarinn Chris Brown hefur játað sök fyrir ofbeldisfulla háttsemi á næturklúbbi í Lundúnum árið 2023. BBC greinir frá. Lífið 24. júlí 2026 12:59
Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Maður sem myrti þrjár ungar stúlkur og stakk mörg önnur börn í hnífaárás í Southport Á Englandi árið 2024 hefur verið fluttur úr fangelsi og vistaður á geðdeild. Flutningarnir eiga engin áhrif að hafa á 52 ára dóm hans. Erlent 24. júlí 2026 07:44
Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform). Erlent 21. júlí 2026 14:50
Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið ákærður fyrir morðið á Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmanni Íhaldsflokksins. Kerry var fyrst handtekinn þann 11. júlí í tengslum við málið en fer fyrir Westminster-héraðsdóm í Bretlandi á þriðjudaginn. Erlent 20. júlí 2026 23:23
Vill færa Bretum von á nýjan leik Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik. Erlent 20. júlí 2026 13:18