Þungunarrof

Fréttamynd

Litlar breytingar þrátt fyrir laga­breytinguna

Fjöldi kvenna sem fóru í þungunarrof jókst ekki þrátt fyrir lagabreytingu árið 2019 sem gerði þeim kleift að fara í þungurrof fram að lokum 22. viku meðgöngunnar. Áfram voru flest þungunarrofin framkvæmd fyrir lok tólftu viku.

Innlent
Fréttamynd

Ný þungunar­rofslög taka gildi í Fær­eyjum

Ný lög um þungunarrof tóku gildi á miðvikudaginn síðastliðinn í Færeyjum. Fyrri lög voru ein þau ströngustu í Evrópu en nýju lögin eru afar umdeild og naumt var á milli þegar lögin voru samþykkt í desember síðasta árs. 

Erlent
Fréttamynd

Þungunarrof megi vera auð­velt val

Sænska poppstjarnan Zara Larson komst í klandur hjá samstarfsaðilum sínum á samfélagsmiðlum þegar hún sagði þungunarrofsbrandara á TikTok. Hún stendur föst á sínum skoðunum og gagnrýnir þá hugmyndafræði að konur þurfi alltaf að þjást við það að fara í þungunarrof.

Lífið
Fréttamynd

Fær­eyingar rýmka veru­lega lög um þungunarrof

Þingmenn í Færeyjum hafa samþykkt að rýmka lög um þungunarrof, þannig að það verði nú heimilt fram að þrettándu viku meðgöngu. Það hefur hingað til verið bannað, nema þegar um er að ræða þungun í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells, eða þegar líf móðurinnar eða heilbrigði fóstursins hefur verið talið í hættu.

Erlent
Fréttamynd

Bæta meðgönguvernd við hefð­bundna sjúk­dóma­tryggingu

Vörður tryggingar hefur bætt meðgöngu-, fæðingar- og foreldravernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar án þess að hækka kostnað vegna tryggingarinnar. Í tilkynningu kemur fram að þessi nýja trygging hafi það markmið að styðja við foreldra. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni milljón. Verndin gildir á meðan meðgöngu stendur, í fæðingu og þar til barn nær eins árs aldri.

Neytendur
Fréttamynd

Sendur til Ís­lands eftir þrætu um per­sónu­upp­lýsingar inn­flytj­enda

Fyrrverandi skattstjórinn sem á að verða sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi er íhaldssamur repúblikani sem er sagður mannblendinn og vinalegur. Hann notaði reynslu af uppboðshaldi eitt sinn til þess að þagga niður í vandræðagemsa á þingi. Svo virðist sem hann hafi verið rekinn fyrir að þýðast ekki Hvíta húsið þegar það krafðist persónuupplýsinga um skattgreiðendur.

Erlent
Fréttamynd

Konur geta tryggt sig á með­göngu í fyrsta sinn

Sjóvá kynnir í dag, á kvenréttindadeginum, nýja tegund tryggingarverndar sem sérstaklega er hönnuð fyrir barnshafandi konur. Meðgöngutrygging er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en er að norrænni fyrirmynd. Tryggingin kostar 30 þúsund krónur. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni og hálfri milljón.

Neytendur
Fréttamynd

Færðu barn heila­dauðrar konu í heiminn

Læknar á sjúkrahúsi í Georgíu í Bandaríkjunum færðu barn heiladauðrar konu sem hefur verið haldið í öndunarvél frá því febrúar í heiminn með keisaraskurði fyrir helgi. Sjúkrahúsið hafði sagt fjölskyldu konunnar að læknar mættu ekki taka hana úr öndunarvél vegna strangra laga um þungunarrof í ríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Kven­réttindi varða okkur öll - ó­háð kyni

Saman getum við staðið vörð um kvenréttindi, þau varða okkur öll. Undanfarið hefur verið grafið undan kvenréttindum víðvegar í heiminum, þar á meðal í hinum vestræna heimi, svo sem Bandaríkjunum og Póllandi. Dauðsföll þungaðra kvenna eru að færast í aukana vegna ómannúðlegra lagasetninga sem koma í veg fyrir lífsbjargandi læknisinngrip. 

Skoðun
Fréttamynd

Treystir þú konum?

Orðatiltækið „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ á sjaldan jafn vel við og þegar eitthvað sem við lítum á sem sjálfsögð réttindi er hrifsað af okkur. Á þessum tímum finna konur um allan heim fyrir ótta við að missa réttindi yfir eigin líkama, af ærinni ástæðu.

Skoðun
Fréttamynd

And­stæðingar þungunarrofs unnu í Flórída

Samhliða forsetakosningum í Bandaríkjunum í gær voru atkvæði greidd um rétt kvenna til þungunarrofs í nokkrum ríkjum. Íbúar Flórída urðu fyrstir til þess að fella tillögu um stjórnarskrárbreytingu sem festir réttinn í sessi.

Erlent
Fréttamynd

Vits­muna­leg van­stilling í boði ungra Sjálfstæðiskvenna

Ég veit ekki hvort beri alvarlegri vott um vitsmunalega vanstillingu: að halda því fram að „sorgleg þróun í Bandaríkjunum eigi ekkert skylt við Ísland“, eða að standa í þeirri barnslegu trú að kvenréttindi séu óafturkræfur hlutur sem þurfi ekki að varðveita til að viðhalda.

Skoðun
Fréttamynd

Skyggnst inn í hugar­heim stuðnings­manna Trump

„Takk fyrir að bjarga lífi mínu!“ segir vinalegur maður á sextugsaldri um leið og hann skýst inn í hótel-lyftuna á leið niður í móttökuna. Hetjudáðin sem ég afrekaði var að troða fætinum á milli hurðanna þegar þær voru í þann mund að lokast svo maðurinn kæmist með.

Erlent
Fréttamynd

Segir um­mæli Trump um konur móðgun við alla

Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrata segir ummæli Donald Trump um að hann ætli að vernda konur „sama þótt þær vilji það eða ekki“ móðgun við alla. Harris segir þessi ummæli sýna að hann skilji ekki umboð kvenna, yfirráð þeirra eða rétt þeirra og getu til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf, þar á meðal líkama sína.

Erlent
Fréttamynd

Sól­veig keppti ó­létt og á leið í þungunar­rof

Sólveig Sigurðardóttir, sem var ein fremsta Crossfit-kona Íslands, hefur nú útskýrt hvað hún gekk í gegnum á sínum fyrstu og einu heimsleikum, árið 2022. Hún keppti á leikunum ólétt og búin að ákveða að fara í þungunarrof.

Sport