Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. apríl 2026 10:57 Íslendingar eru sammála um að vera á móti þeim sem eru andstæðingar bóluefna. Vísir/Vilhelm Töluverð skautun er í íslensku samfélagi varðandi málefni Ísraels og Palestínu samkvæmt nýrri könnun Fjölmiðlanefndar. Á móti kemur eru flestir ósammála þeim sem eru á móti bólusetningum. Fjölmiðlanefnd rannsakaði skautun í íslensku samfélagi með því að leggja fyrir lista yfir ákveðna hópa, svo sem stuðningsfólk stjórnmálaflokka, og biðja þátttakendur um að merkja við þá hópa sem þeim mislíkar mjög. Í niðurstöðunum kemur fram að þrjátíu prósent þátttakenda mislíkar mjög við þá sem styðja Miðflokkinn og þar á eftir þá sem styðja Pírata, eða rétt rúm átján prósent. Flokkurinn sem fólki líkaði almennt best við er Framsóknarflokkurinn en einungis 7,5 prósent sögðust mislíka mjög stuðningsfólk hans. Um 65 prósent þátttakenda mislíkar mjög andstæðinga bólusetninga, rúm 59 prósent karla og tæp 72 prósent kvenna. Einnig var litið til þess hvort þátttakendur skilgreindu sig meira til hægri eða vinstri þegar kemur að stjórnmálum. Helmingur hægrimanna mislíkar mjög andstæðinga bólefna og 78,7 prósentum vinstrimanna. Hægrimenn völdu oftast andstæðinga bólusetninga, þar á eftir hóp talsmanna þess að kynin séu fleiri en tvö og síðan stuðningsfólk frjálsrar Palestínu. Tíu hópar sem hægrimönnum mislíkar mjög: Andstæðingar bólusetninga - 50,1% Talsmenn þess að kynin séu fleiri en tvö - 44,7% Stuðningsfólks frjálsrar Palestínu - 41,4% Stuðningsfólk Sósíalistaflokksins - 39,7% Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 39,6% Andstæðingar þungunarrofs - 39,4% Múslimar - 38,9% Stuðningsfólk Pírata - 37,9% Evrópusinnar - 27,9% Stuðningsfólk Vinstri grænna - 26,6% Þeir hópar sem vinstrimönnum mislíkar hvað mest eru stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa, þeir sem afneita loftslagsbreytingum og andstæðingar bólusetninga. Tíu hópar sem vinstrimönnum mislíkar mjög: Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 85,5% Þeir sem afneita loftslagsbreytingum - 80,6% Andstæðingar bólusetninga - 78,7% Andstæðingar þungunarrofs - 74,4% Þjóðernissinar - 68,0% Talsmenn þess að kynin séu aðeins tvö - 65,8% Stuðningsfólk Miðflokksins - 62,6% Talsmenn útgerðarinnar/sjávarútvegsfyrirtæki - 51,6% Milljarðamæringar - 51,1% Íhaldsmenn - 49,8% Miðað við niðurstöður könnunarinnar, sem Maskína framkvæmdi og 978 tóku þátt í, er töluverð skautun í málefnum Ísraels og Gasa sé litið til stjórnmálaskoðana. Vert er að taka fram að í svörum hægrimanna voru bæði stuðningsfólk frjálsrar Palestínu og stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa ofarlega á lista. Einungis 2,4 prósent vinstrimanna sögðust mislíka mjög stuðningsfólk frjálsrar Palestínu. Einnig var munur á andúð gagnvart þeim sem afneita loftslagsbreytingum. Tæpt 81 prósent vinstrimanna mislíkar mjög þann hóp en tæp 25 prósent hægrimanna. Ofarlega á lista hjá vinstrimönnum var hópur þeirra sem segja að kynin séu aðeins tvö en á móti kemur var næstefst hjá hægrimönnum hópur þeirra sem segja að kynin séu fleiri en tvö. Lesa má skýrsluna í heild sinni hér. Hóparnir sem fólki líkar best við eru gagnkynhneigðir, kjötætur, heilbrigðisstarfsfólk og Pólverjar. Tæpur helmingur hefur áhyggjur Fjölmiðlanefnd rannsakaði einnig viðhorf landsmanna gagnvart erlendum áróðursherferðum. 43,8 prósent sögðust hafa miklar áhyggjur af slíkum herferðum og áttatíu prósent segjast hafa orðið vör við áróðursherferðir. Langflestir urðu varir við slíkt á Facebook, eða 74,4 prósent, þar á eftir 31,8 prósent á Instagram og 29,8 á TikTok. Yngra fólk telur sig betur undirbúið til að sjá í gegnum slíkar áróðursherferðir, alls 68,9 prósent af þátttakendum á aldrinum 18 til 39 ára. Einungis rétt rúm 23 prósent sextíu ára og eldri telja sig undirbúin. Fjölmiðlar Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Þungunarrof Bólusetningar Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Fjölmiðlanefnd rannsakaði skautun í íslensku samfélagi með því að leggja fyrir lista yfir ákveðna hópa, svo sem stuðningsfólk stjórnmálaflokka, og biðja þátttakendur um að merkja við þá hópa sem þeim mislíkar mjög. Í niðurstöðunum kemur fram að þrjátíu prósent þátttakenda mislíkar mjög við þá sem styðja Miðflokkinn og þar á eftir þá sem styðja Pírata, eða rétt rúm átján prósent. Flokkurinn sem fólki líkaði almennt best við er Framsóknarflokkurinn en einungis 7,5 prósent sögðust mislíka mjög stuðningsfólk hans. Um 65 prósent þátttakenda mislíkar mjög andstæðinga bólusetninga, rúm 59 prósent karla og tæp 72 prósent kvenna. Einnig var litið til þess hvort þátttakendur skilgreindu sig meira til hægri eða vinstri þegar kemur að stjórnmálum. Helmingur hægrimanna mislíkar mjög andstæðinga bólefna og 78,7 prósentum vinstrimanna. Hægrimenn völdu oftast andstæðinga bólusetninga, þar á eftir hóp talsmanna þess að kynin séu fleiri en tvö og síðan stuðningsfólk frjálsrar Palestínu. Tíu hópar sem hægrimönnum mislíkar mjög: Andstæðingar bólusetninga - 50,1% Talsmenn þess að kynin séu fleiri en tvö - 44,7% Stuðningsfólks frjálsrar Palestínu - 41,4% Stuðningsfólk Sósíalistaflokksins - 39,7% Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 39,6% Andstæðingar þungunarrofs - 39,4% Múslimar - 38,9% Stuðningsfólk Pírata - 37,9% Evrópusinnar - 27,9% Stuðningsfólk Vinstri grænna - 26,6% Þeir hópar sem vinstrimönnum mislíkar hvað mest eru stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa, þeir sem afneita loftslagsbreytingum og andstæðingar bólusetninga. Tíu hópar sem vinstrimönnum mislíkar mjög: Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 85,5% Þeir sem afneita loftslagsbreytingum - 80,6% Andstæðingar bólusetninga - 78,7% Andstæðingar þungunarrofs - 74,4% Þjóðernissinar - 68,0% Talsmenn þess að kynin séu aðeins tvö - 65,8% Stuðningsfólk Miðflokksins - 62,6% Talsmenn útgerðarinnar/sjávarútvegsfyrirtæki - 51,6% Milljarðamæringar - 51,1% Íhaldsmenn - 49,8% Miðað við niðurstöður könnunarinnar, sem Maskína framkvæmdi og 978 tóku þátt í, er töluverð skautun í málefnum Ísraels og Gasa sé litið til stjórnmálaskoðana. Vert er að taka fram að í svörum hægrimanna voru bæði stuðningsfólk frjálsrar Palestínu og stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa ofarlega á lista. Einungis 2,4 prósent vinstrimanna sögðust mislíka mjög stuðningsfólk frjálsrar Palestínu. Einnig var munur á andúð gagnvart þeim sem afneita loftslagsbreytingum. Tæpt 81 prósent vinstrimanna mislíkar mjög þann hóp en tæp 25 prósent hægrimanna. Ofarlega á lista hjá vinstrimönnum var hópur þeirra sem segja að kynin séu aðeins tvö en á móti kemur var næstefst hjá hægrimönnum hópur þeirra sem segja að kynin séu fleiri en tvö. Lesa má skýrsluna í heild sinni hér. Hóparnir sem fólki líkar best við eru gagnkynhneigðir, kjötætur, heilbrigðisstarfsfólk og Pólverjar. Tæpur helmingur hefur áhyggjur Fjölmiðlanefnd rannsakaði einnig viðhorf landsmanna gagnvart erlendum áróðursherferðum. 43,8 prósent sögðust hafa miklar áhyggjur af slíkum herferðum og áttatíu prósent segjast hafa orðið vör við áróðursherferðir. Langflestir urðu varir við slíkt á Facebook, eða 74,4 prósent, þar á eftir 31,8 prósent á Instagram og 29,8 á TikTok. Yngra fólk telur sig betur undirbúið til að sjá í gegnum slíkar áróðursherferðir, alls 68,9 prósent af þátttakendum á aldrinum 18 til 39 ára. Einungis rétt rúm 23 prósent sextíu ára og eldri telja sig undirbúin.
Tíu hópar sem hægrimönnum mislíkar mjög: Andstæðingar bólusetninga - 50,1% Talsmenn þess að kynin séu fleiri en tvö - 44,7% Stuðningsfólks frjálsrar Palestínu - 41,4% Stuðningsfólk Sósíalistaflokksins - 39,7% Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 39,6% Andstæðingar þungunarrofs - 39,4% Múslimar - 38,9% Stuðningsfólk Pírata - 37,9% Evrópusinnar - 27,9% Stuðningsfólk Vinstri grænna - 26,6%
Tíu hópar sem vinstrimönnum mislíkar mjög: Stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa - 85,5% Þeir sem afneita loftslagsbreytingum - 80,6% Andstæðingar bólusetninga - 78,7% Andstæðingar þungunarrofs - 74,4% Þjóðernissinar - 68,0% Talsmenn þess að kynin séu aðeins tvö - 65,8% Stuðningsfólk Miðflokksins - 62,6% Talsmenn útgerðarinnar/sjávarútvegsfyrirtæki - 51,6% Milljarðamæringar - 51,1% Íhaldsmenn - 49,8%
Fjölmiðlar Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Þungunarrof Bólusetningar Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira