Almannavarnir

Heimilt að fara inn í Grindavík með flutningabíla
Íbúar í Grindavík hafa í dag heimild til að fara inn í bæinn með flutningabíla. Heimildin gildir frá klukkan níu til fjögur. Í næstu viku verður boðið upp á aðstoð við flutninga.

Boða til blaðamannafundar um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar þar sem fjallað verður um húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga síðustu vikurnar. Fundurinn hefst klukkan 11:30.

Eldgos nú líklegast milli Hagafells og Sýlingarfells
Veðurstofa Íslands segir að reikna megi með því að kvikan í kvikuganginum undir Grindavík sé að hluta til storknuð. Dregið hafi úr líkum á að kvika nái að brjóta sér leið út innan bæjarmarka og er líklegasta svæðið fyrir upptök eldgoss milli Hagafells og Sýlingarfells.

Almannavarnastig í Grindavík af neyðarstigi niður á hættustig
Almannavarnastigi vegna jarðhræringa við Grindavík hefur verið breytt af neyðarstigi og niður á hættustig frá og með klukkan 11:00 á morgun, fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Veðurstofa segir litlar hreyfingar mælast innan sigdalsins í og við bæinn.

Varar við sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvar
Sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvarinnar liggur upp í Heiðmörk og í kringum Rauðavatn, segir eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson. Hann hvetur til þess að áhættumat verði gert á höfuðborgarsvæðinu gagnvart jarðskorpuhreyfingum.

Eldgos líkt Surtsey gæti lokað Keflavíkurflugvelli
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli.

Kærir takmörkun aðgengis: Ótækt að fjölmiðlar þurfi að eiga í stríði við lögreglustjóra
Blaðamannafélag Íslands hefur kært til dómsmálaráðuneytisins fyrirmæli lögreglustjórans á Suðurnesjum um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði á Reykjanesskaganum. Félagið krefst þess að fyrirmælin verði felld úr gildi eða þeim breytt á þann hátt að aðgangur fjölmiðla að hættusvæðinu verði rýmkaður.

Svona var upplýsingafundur Almannavarna
Farið verður yfir stöðuna við Grindavík og fjallað um líðan á óvissutímum á upplýsingafundi Almannavarna. Fundurinn hefst klukkan 11 og verður í beinu streymi hér á Vísi.

Telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé hálfstorknaður
Eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og að líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól.

Eldfjallafræðingurinn færi heim fyrir jól ef hann byggi í Grindavík
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól.

Hættusvæðið í kringum Grindavík stækkað
Hættusvæðið í kringum Grindavík vegna jarðhræringa hefur verið verið stækkað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Vonar að vinnuveitendur sýni björgunarsveitafólki skilning
Almannavarnir hafa sent út fjöldaboð til allra björgunarsveita á landinu. Meiri mannskap þarf í verkefnið. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist vonast til þess að vinnuveitendur taki tillit til þess þegar fólk með kunnáttu þurfi að hverfa frá vinnu.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu.

Greina landris og áhættu við vinnu varnargarða betur í dag
Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir það koma í ljós í dag hvort landris hafi áhrif á vinnu við varnargarða við virkjun HS Orku í Svartsengi.

Úrræði fyrir grindvísk skólabörn tekin í gagnið í næstu viku
Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að fyrstu formlegu úrræði grindvískra skólabarna verði tekin í gagnið í skólum í Reykjavík á miðvikudaginn. Þetta segir hann á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var í Skógarhlíð í dag.

Allt bendi til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, segir að Grindvíkingar þurfi að búa sig undir það að búa annars staðar en heima hjá sér næstu mánuðina. „Því miður bendir allt til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík.“

Þurfi ekki mikil átök til að kvikan nái til yfirborðs
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands, segir að staðan á Reykjanesi í dag sé svipuð og hún hefur verið. Það dragi úr aflögun og skjálftavirkni með hverjum degi sem líður.

Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna
Upplýsingafundur almannavarna vegna ástandsins á Reykjanesskaga verður haldinn í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Upplýsingafundur Almannavarna á morgun
Klukkan 13:00 á morgun, laugardaginn 18. nóvember verður haldinn upplýsingafundur almannavarna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Stofnun viðbragðsteymis við vá
Samkvæmt almannavarnalögum er það Ríkislögreglustjóri sem fer með málefni almannavarna í umboði ráðherra og lögreglan ber ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum á landi en óumdeilt er að Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) gegnir lykilhlutverki í öllum vegameiri leitar- og björgunarstörfum hérlendis.

Haraldur telur flekahreyfingar en ekki kviku orsaka umbrotin
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur flekahreyfingar orsök umbrotanna á Reykjanesskaga. Hann segir kviku, sem kunni að vera að gutla á um eins kílómetra dýpi í kvikuganginum, sennilega ekki nægjanlega til að valda eldgosi.

Tilbúin með áætlanir fyrir daginn
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, segir nóttina hafa verið nokkuð rólega og tíðindalausa. Dagurinn byrji núna með mati vísindamanna á nýjum gögnum.

Segir það verða erfiðari ákvörðun að hleypa fólki aftur til Grindavíkur
Jarðvísindamennirnir Freysteinn Sigmundsson og Kristín Jónsdóttir telja nokkrar vikur að lágmarki í að Grindvíkingar komist aftur heim til sín. Kristín segir það kannski auðvelda ákvörðun að rýma en það verði alltaf erfiðari ákvörðun að hleypa fólki til baka.

Rýmdu bæinn á 95 sekúndum
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir að vonandi verði hægt að hleypa Grindvíkingum aftur tímabundið inn í bæinn á morgun. Bærinn var rýmdur í dag þegar tugir íbúa voru þar, en rýmingin tók 95 sekúndur.

„Þetta skotgekk en þetta er óheppilegt“
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að Grindavík hafi verið rýmd vegna þess að lögreglu barst boð þess efnis frá samhæfingarstöð almannavarna.

Rýma bæinn og bíða svo og sjá
Verið er að rýma Grindavík í þessum töluðu orðum af öryggisástæðum. Samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum mældist SO2 gas í gasmælum Veðurstofunnar. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi áréttar að ekki sé um neyðarrýmingu að ræða. Rýming verði gerð skipulega.

Vinna hafin við varnargarðana
Vinnan er hafin við að reisa varnargarða til varnar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu.

Kristín og Freysteinn ræddu náttúruhamfarir í Grindavík
Hin hrikalega ógn sem vofir yfir Grindavík verður rædd í þættinum Pallborðið í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag. Umræðunni stýrir Kristján Már Unnarsson fréttamaður.

Um þrjátíu vörubílar notaðir til að sækja efni úr Stapafelli
Rúmlega þrjátíu vörubílar voru notaðir við að flytja efni úr Stapafelli við Grindavíkurveg í gær og aftur í morgun að svæðinu þar sem til stendur að reisa varnargarða til verndar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu. Um fimmtán flutningabílar voru notaðir við flutningana í nótt.

Samþykkja frumvarp um vernd innviða
Alþingi samþykkti skömmu fyrir miðnætti frumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Greiddu 57 þingmenn atkvæði með frumvarpinu.