
Eldri borgarar

Alvarlegt mál þegar TikTok-stjarna kyssti skjólstæðing
Stjórnendur heilsusetursins Sóltúns í Hafnarfirði líta mál sem kom upp síðustu helgi á setrinu þegar TikTok stjarna tók upp myndband af skjólstæðingi heimilisins alvarlegum augum. Forstjóri segir verkferla hafa verið virkjaða og að málinu sé lokið.

Snorri sakaður um að vera kynslóðavillingur
„Gunnar Smári beitti því fantabragði að ýta ritstjóranum út úr skápnum, að ég væri gamall karl í ungum líkama. Minn málflutningur væri eins og ég væri sjötugur en ekki 26 ára,“ segir Snorri Másson forviða. En hann fer reglulega yfir fréttir vikunnar á vef sínum Ritstjóri.is

Eldri borgarar fá lítið út úr kjarasamningunum
Nýlokið er gerð nýrra kjarasamninga fyrir stóran hluta félaga innan ASÍ sem kunnugt er. Þessir kjarasamningar eiga að marka tímamót að mati þeirra sem að þeim standa, einkum fyrir barnafjölskyldur, og svo bættist ræstingafólk reyndar í hópinn á síðustu metrunum.

Ráðherra sem fer þvert á vilja Alþingis
Síðastliðinn febrúar ásakaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra þingmenn Flokks fólksins um að beita aðferðum sem hann kallaði „popúlisma“.

Fær sekt fyrir að keyra réttindalaus 103 ára gömul
Ítalska lögreglan hefur sektað 103 ára gamla konu sem var nöppuð við að keyra að næturlagi með útrunnið ökuskírteini.

Fögnum Degi öldrunar
Dagur öldrunar er haldinn í dag í sjötta sinn. Heilbrigð öldrun er málefni sem við viljum öll láta okkur varða. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta.

Níræður skíðakappi fer á kostum í brekkunum
Pétur Kjartansson, fyrrverandi bólstrari í Reykjavík og hestamaður, kallar ekki allt ömmu sína. Hann skíðar eins og herforingi í brekkunum í Bláfjöllum 90 ára gamall. Sömuleiðis fer hann reglulega í skíðaferðir til útlanda

Ekki vera Vilhjálmur!
Á dögunum birti Vilhjálmur Bjarnason fyrrv. þingmaður, grein í Morgunblaðinu um lífeyrissjóði og eftirlaunakjör og var þar margt áhugavert frá greinarhöfundi en annað því miður ekki alveg rétt.

Fjárfest í stafrænni þjónustu fyrir eldra fólk - Reykjavíkurborg leiðandi á Norðurlöndunum
Reykjavíkurborg leiðir stafræna þjónustu við eldra fólk ekki bara á landsvísu heldur líka á Norðurlöndunum og hefur fjárfest tæplega 356 milljónum króna síðustu sex árin ásamt að hafa fengið um 141 milljón króna mótframlag frá ríkinu - samtals fjárfesting upp á hálfan milljarð króna sem varið hefur verið í stafræna þjónustu umbreytingu hjá velferðarsviði.

Bessí tekur við af Blöndal
Bessí Jóhannsdóttir, fyrrverandi kennari við Verzlunarskóla Íslands og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörin formaður Samtaka eldri Sjálfstæðismanna (SES) á fjölmennum aðalfundi félagsins, sem fram fór í Valhöll í dag.

Lögskipaður gamlingjaaldur kylfinga er 73 ára
Talsverð umræða hefur farið fram um það í þjóðfélaginu hvort færa eigi ellilífeyrisaldurinn upp í 70 ára, úr 67. Nú er spurt er hvort golfklúbbar landsins hafi tekið fram úr hinu opinbera með að hækka rána. Því þar teljast þeir gömlu vera 73 ára og eldri.

Gáfu stjórnvöldum langt nef og samþykktu að hækka ellilífeyrinn
Svisslendingar samþykktu um helgina að hækka ellilífeyrinn í landinu sem nemur einum mánuði á ári og höfnuðu því að hækka eftirlaunaldurinn í 66 ár.

Er eldra fólk auðlind peningaaflanna?
Málaflokkur öldrunarmála og öll sú margvíslega þjónusta sem veitt er af fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum hefur vafalaust alla burði til þess að vera gróðavænlegur bransi þar sem hægt væri að græða á tá og fingri.

Er eldra fólk óþarfi?
Kona ein var sauðfjárbóndi til margra ára. Hún var út slitin og þreytt fór til læknis því hún fann svo til í hnjánum. „Ég skal bara segja þér góða mín að ef þú værir rolla væri löngu búið að slátra þér“.

Uppbygging á Gunnarshólma og hlutverk bæjarfulltrúa
Undanfarið hafa birst líflegar umræður í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum um viljayfirlýsingu bæjarstjóra Kópavogs og Aflvaka þróunarfélags um samstarf vegna uppbyggingar á Gunnarshólma á allt að 5.000 íbúðum fyrir 60 ára og eldri, öldrunarþjónustu og allt að 1.200 hjúkrunarrýmum.

Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara
Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist.

Óttast hallarbyltingu í Félagi eldri borgara
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík fer fram nú klukkan 14. Ábendingar hafa borist um að deild úr Sjálfstæðisflokknum hyggist yfirtaka félagið.

Heyrnartæki óheyrilega dýr á Íslandi
Kristján E. Guðmundsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari, hefur gert samanburði á verði heyrnartækja á Norðurlöndum og svo á Íslandi. Munurinn er sláandi. Hvað veldur er svo rannsóknarefni út af fyrir sig.

Fjármálaráðuneytið hefur áfram rangt við niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndunum
Það er ótrúlega lélegur málflutningur sem Fjármálaráðuneytið hefur við í þeirri vörn sem þeir reyna að setja upp til þess að réttlæta niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndum. Vegna þess að þessi niðurfelling hefur ekki áhrif á neinn annan hóp öryrkja. Þeir öryrkja og ellilífeyrisþegar sem eru búsettir innan Evrópusambandsins en utan Norðurlandanna borga ekki neinn skatt á Íslandi samkvæmt tvísköttunarsamningum þar um. Á móti borgar þetta fólk fullan skatt í því ríki sem það á heima og nýtur þar að leiðandi persónuafsláttar í því ríki eftir þeim lögum sem þar gilda.

Eldri borgarar þurfa að bíða til mánudags eftir þjónustu vegna leka
„Það gjörsamlega míglekur, fossaði bara úr loftinu,“ segir Ingheiður Brá Laxdal sem brá í brún við heimsókn sína í þjónustuíbúð við Grænumörk 1 á Selfossi. Eldri borgarar sem þar búa eru ósáttir við þjónustuna enda þurfa þeir að bíða fram yfir helgi eftir aðstoð við lekann.

Útfararstofa gagnrýnd fyrir að senda eldri borgurum Valentínusarkort
Útfararstofa á Bretlandseyjum hefur beðist afsökunar eftir að hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að senda íbúum hjúkrunarheimilis í Surrey Valentínusarkort.

Margir upplifi kvíða áður en þeir fara á eftirlaun
Theodór Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi hvetur fólk sem er að nálgast eftirlaunaaldur til þess að hugsa um það hvað það vill gera á þessum árum. Mikilvægt sé að skipuleggja sig en eðlilegt er að upplifa kvíða í aðdraganda tímamótanna.

Vill verða formaður FEB
Sigurður Ágúst Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri DAS, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns í Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB). Aðalfundur félagsins sem fram fer hinn 21. febrúar.

Segir ummæli Helga Pé um fangabúðir í besta falli ósmekkleg
Bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir gagnrýni formanns Landssambands eldri borgara og minnihlutans í bæjarstjórn, um áform um uppbyggingu í Gunnarshólma, ómálefnalega og ósmekklega.

Spyr hvort eigi ekki líka að girða gamla fólkið af
Formaður Landssambands eldri borgara segir uppbyggingu húsnæðis fyrir eldra fólk í Gunnarshólma vera vonda hugmynd sem gangi þvert gegn öllum ríkjandi áherslum í málaflokknum. Hann efast um að velferð eldra fólks hafi ráðið för við ákvörðunina.

Gríptu mig, kæra Kerfi
Hér í upphafi vil ég láta þess getið, til að forðast allan miskilning, að bréf þau sem hér eru skrifuð til Kerfisins í þessari grein eru til að vekja athygli á Alzheimer sjúkdómnum og þeim áskorunum sem nýgreindir einstaklingar standa frammi fyrir sem og þeir sem lengra eru komnir í framvindu sjúkdómsins.

Hvers eiga aldraðir að gjalda?
Ríkisstjórnin hefur boðað byggingu 394 hjúkrunarrýma á næstu 5 árum. Það þarf að byggja 700 hjúkrunarrými til þess að taka á biðlistanum sem þegar hefur myndast. Ef litið er til næstu fimm ára er ljóst að þörfin eftir hjúkrunarrýmum mun aðeins aukast.

Sérhagsmunagæsla verði til þess að afa sé komið fyrir uppi í sveit
Bæjarfulltrúi í Kópavogi fer hörðum orðum um meirihluta bæjarstjórnar og áform hans um að „lífsgæðakjarni“ fyrir eldra fólk verði reistur utan vaxtamörk höfuðborgarsvæðisins. Bæjarfulltrúinn segir málið afhjúpa ófaglegheit, skammsýni og sérhagsmunagæslu meirihlutans.

Hvað á að gera við afa?
Undanfarið hefur Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, rekið kynningarherferð á tillögum fjárfesta um nýtt hverfi langt fyrir utan þéttbýlismörk með þeirri aðskilnaðarstefnu að þar eigi eingöngu að hýsa eldra fólk. Tillagan er kynnt undir því yfirskini að vera uppbygging á lífsgæðakjarna en um það bil allt við tillöguna er á skjön við þá hugmyndafræði.

Ingveldur kveður Hæstarétt
Ingveldur Einarsdóttir hæstaréttardómari og varaforseti réttarins lætur af störfum sökum aldurs í ágúst. Staða dómara við réttinn verður auglýst.