Play „
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 15 ›
„Viðbjóðslegt“ hótel sem Play bauð strandaglópum í París Það var engin lúxussvíta sem beið farþega sem þáðu hótelgistingu frá Play í París í dag. „Algjör horbjóður“ raunar, samkvæmt einum þeirra farþega sem Vísir náði tali af. Flugfélagið aflýsti ferð sinni frá París til Íslands og bauð farþegum sínum þrjá kosti í kjölfarið; hótelgistingu og fyrsta far heim, seinkun heimferðar eða endurgreiðslu. Innlent 13.6.2022 21:49
Eiga rétt á fullri endurgreiðslu og bótum Tugir kvartana hafa borist Neytendasamtökunum síðustu daga eftir óvenjumikið af aflýsingum á flugferðum. Formaður samtakanna segir flugfélögin oft sleppa því að upplýsa fólk um fullan rétt sinn á skaðabótum sem sé mun meiri en flestir átti sig á. Neytendur 13.6.2022 20:30
Telja fullvíst að viðvörunin hafi verið villuskilaboð Í nótt var rauðu neyðarstigi lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna farþegaþotu PLAY sem var að koma inn til lendingar. Kerfi vélarinnar sendi viðvörun um að vandamál væri með varaeldsneyti en forsvarsmenn telja fullvíst að um villu hafi verið að ræða. Til stóð að sama vél færi til Parísar í dag en fluginu hefur verið frestað til morguns því verið er að ganga úr skugga um að ekkert sé að vélinni. Innlent 13.6.2022 14:25
Aflýstu flugi tuttugu mínútum fyrir áætlaða brottför Flugi flugfélagsins Play frá Keflavík til Gautaborgar var aflýst í morgun, tuttugu mínútum fyrir brottför. Innlent 13.6.2022 08:30
Rautt neyðarstig á Keflavíkurflugvelli í nótt Lýst var yfir rauðu neyðarstigi á Keflavíkurflugvelli í nótt þegar farþegaþota á leið frá Malaga til Keflavíkur lenti í vandræðum. Vélin lenti í Keflavík klukkan rúmlega hálf tvö í nótt og neyðarstigi aflétt í kjölfarið. Innlent 13.6.2022 06:16
Tengiflugskerfið til Bandaríkjanna umbreytir rekstri Play Flugfélagið Play flutti rúmlega 56.600 farþega í maí sem er 58% aukning frá aprílmánuði. Farþegafjöldinn í maí var jafnmikill og á öllum fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Play segir tengiflugskerfi til Bandaríkjanna umbreyta rekstrinum og að það gangi vel að koma sér fyrir á flugmarkaðnum. Viðskipti innlent 7.6.2022 13:09
Engin áform uppi um hlutafjáraukningu, segir forstjóri Play Þrátt fyrir miklar hækkanir á olíuverði eftir innrás Rússa í Úkraínu þá segir forstjóri Play að engar breytingar séu á fyrri rekstraráætlunum flugfélagsins fyrir þetta ár. Enn sé búist við því að einingakostnaður Play, að frátöldum eldsneytiskostnaði, muni minnka jafnt og þétt undir fjögur sent í sumar og að félagið verði farið að skila rekstrarhagnaði á seinni hluta ársins. Innherji 25.5.2022 14:01
Bein útsending: Play skýrir 1,4 milljarða tap Tap flugfélagsins Play nam 11,2 milljónum bandaríkjadala, eða rúmlega 1,4 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem kynnt var í gær en Play mun gera nánar grein fyrir því á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 08:30. Viðskipti innlent 25.5.2022 08:00
Tap upp á 1,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Tap flugfélagsins Play nam 11,2 milljónum Bandaríkjadala, eða rúmlega 1,4 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Viðskipti innlent 24.5.2022 18:03
Sandra Dís flýgur frítt með PLAY í heilt ár Sandra Dís Sigurðardóttir mun fljúga frítt með flugfélaginu PLAY í heilt ár en hún vann í samfélagsmiðlaleik flugfélagsins. Lífið 19.5.2022 14:21
„Krefjandi tímar framundan hjá Play“ þótt ferðaviljinn virðist mikill Með olíuverð í hæstu hæðum og gengi krónunnar gagnvart evru að nálgast það gildi sem það var í fyrir upphaf farsóttarinnar þá er „ljóst að það eru krefjandi tímar framundan hjá Play,“ að mati greinenda Jakobsson Capital. Innherji 25.4.2022 17:01
Segir tenginguna marka þáttaskil í rekstri Play Fyrsta ferð Play vestur um haf var flogin frá Keflavíkurflugvelli í dag. Að sögn forstjóra félagsins markar tenging á milli Bandaríkja og Evrópu í gegnum Ísland þáttaskil í rekstrinum. Viðskipti innlent 20.4.2022 21:28
Ekki lengur grímuskylda í flugi til Bandaríkjanna Grímuskylda verður valkvæð í flugferðum á vegum Icelandair og Play til Bandaríkjanna. Play og Icelandair slökuðu á sínum reglum varðandi grímuskyldu í ákveðnum ferðum í Evrópu í síðasta mánuði en hafa nú stigið skrefinu lengra í samræmi við úrskurð alríkisdómara í Bandaríkjunum. Innlent 19.4.2022 18:06
Umsækjendur látnir byggja flugvél með legókubbum undir dúndrandi tónlist Hátt í fimm þúsund manns sóttust eftir því að verða flugmenn og flugliðar hjá flugfélaginu Play, þegar auglýst var eftir umsóknum fyrr á þessu ári. Umsækjendur voru látnir byggja flugvél með legókubbum með háværa tónlist í eyrunum og spurðir í hvaða hljómsveit forstjórinn hefði spilað á trommur. Innlent 5.4.2022 20:01
Munu fljúga til Liverpool og Genfar næsta vetur Flugfélagið Play hyggst fljúga til Liverpool í Englandi og Genf í Sviss næsta vetur. Flogið verður tvisvar í viku til beggja áfangastaðanna. Viðskipti innlent 5.4.2022 08:04
Óábyrgt að bregðast ekki við hækkandi olíuverði, segir forstjóri PLAY Forstjóri PLAY segir óhjákvæmilegt að sérstakt eldsneytisálag sé greitt ofan á farmiða félagsins, líkt og tilkynnt var um í síðustu viku. Innherji 28.3.2022 07:01
Icelandair hækkar farmiðaverð 1. apríl Sérstakt eldsneytisálag, sem er hluti af farmiðaverði Icelandair, verður hækkað frá og með 1. apríl. Hækkar það úr 5.100 krónum í 6.900 krónur þegar flogið er til Evrópu og úr 8.900 í 12.300 krónur fyrir þegar flogið er til áfangastaða í Norður-Ameríku. Neytendur 25.3.2022 14:49
Play tekur upp olíugjald á miðaverð vegna hækkana Flugfélagið Play mun taka upp sérstakt olíugjald á miðaverð eftir helgi til þess að mæta miklum hækkunum á eldsneytisverði. Félagið skilaði nærri þriggja milljarða króna tapi á síðasta ári - sem forstjórinn segir engan veginn til marks um skipsbrot. Viðskipti innlent 17.3.2022 11:37
Bein útsending: Kynning á uppgjöri fjórða ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 17.3.2022 08:01
2,9 milljarða tap en gera ráð fyrir hagnaði á síðari hluta ársins Tekjur flugfélagsins Play námu 16,4 milljónum Bandaríkjadala á árinu 2021 en tap ársins nam 22,5 milljónum dala, eða um 2,9 milljörðum íslenskra króna. Tekjur voru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 en kostnaður var samkvæmt áætlunum. Viðskipti innlent 16.3.2022 18:29
Fimmtán flugfélög með reglulegt flug til Íslands í ár og 25 í sumar Fimmtán flugfélög hyggjast fljúga hingað til lands reglulega í ár og alls munu 25 bjóða upp á flug til Íslands í sumar. Árið 2019, fyrir heimsfaraldur, voru það fjórtán flugfélög sem flugu allan ársins hring til Íslands, en líkt og í ár voru það 25 flugfélög sem flugu til Íslands sumarið 2019. Viðskipti innlent 10.3.2022 07:15
Sætanýting hjá Play jókst milli mánaða Flugfélagið Play flutti 19.686 farþega nýliðnum febrúarmánuði og var sætanýting 67,1 prósent, samanborið við 55,7 prósent í janúar. Viðskipti innlent 7.3.2022 13:53
Flugfélögin leiða lækkanir á eldrauðum markaði Það hefur verið rautt að litast um í kauphöllinni í morgun. Flugfélögin tvö, Icelandair og Play hafa lækkað mest. Viðskipti innlent 7.3.2022 10:21
Hættir sem framkvæmdastjóri hjá Play og einbeitir sér að fluginu Guðni Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play. Guðni tekur við sem framkvæmdastjóri af Arnari Má Magnússyni, einum af stofnendum Play. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 4.3.2022 16:14
Glæný flugvél bætist í flota Play Flugfélagið PLAY hefur fengið glænýja Airbus A320neo flugvél afhenta. Vélin kemur beint úr verksmiðju flugvélaframleiðandans í Frakklandi og sú fyrsta af þessari tegund í flota flugfélagsins. Viðskipti innlent 2.3.2022 19:49
Kóngsbakki tvöfaldar hlut sinn í Play, félag Andra selur í fyrsta sinn Eignarhaldsfélagið Kóngsbakki, sem er í eigu hjónanna Gunnars Örlygssonar og Guðrúnar Hildar Jóhannsdóttur, bætti umtalsvert við hlut sinn í Play í síðasta mánuði og er núna tólfti stærsti eigandi flugfélagsins með rúmlega tveggja prósenta hlut. Innherji 2.3.2022 18:13
Play bætir við áfangastað í Norður-Ameríku Íslenska flugfélagið Play hefur opnað fyrir miðasölu á flugi til Orlando í Bandaríkjunum. Fyrsta flug félagsins til Orlando verður 30. september næstkomandi en þangað verður flogið þrisvar í viku. Viðskipti innlent 23.2.2022 08:10
PLAY ræsir miðasölu til Orlando, sjá mikið svigrúm til verðlækkana PLAY hefur hafið miðasölu á flugi til Orlando í Flórída sem verður fjórði áfangastaður flugfélagsins í Bandaríkjunum. Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir flugfélagið geta boðið mun hagstæðari fargjöld til Orlando en tíðkast hafa hingað til. Innherji 23.2.2022 08:00
Öllu flugi í fyrramálið frestað eða aflýst Öllu flugi íslensku flugfélaganna til og frá Keflavíkurflugvelli í nótt og í fyrramálið hefur verið frestað eða aflýst vegna óveðursins. Allar flugferðir Icelandair frá Bandaríkjunum til landsins í kvöld hefur einnig verið frestað um sólarhring. Innlent 21.2.2022 16:23
Sagt upp hjá PLAY vegna gruns um ofbeldi Millistjórnanda hjá flugfélaginu PLAY hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviks á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. Millistjórnandinn er samkvæmt heimildum fréttastofu grunaður um ofbeldi gagnvart samstarfsmanni, flugliða hjá félaginu. Innlent 18.2.2022 15:34