
Verslun

Coco Puffs þá pantað og staðgreitt mánuðum fyrirfram
„Þau sigldu um heimsins höf á norsku fraktskipi. Kynntust matarmörkuðum og ferskvörum á Ítalíu, í Afríku, Japan, Panama og fleiri stöðum í Ameríku og víðar. Ég held að áhrifin frá siglingunum hafi smitast inn í Melabúðina og þau eru hér enn hluti af sjarmanum,“ segir Snorri Guðmundsson. „Já, pabbi lagði mikla áherslu á úrval og gæði og lengi vel vissu Íslendingar oft ekki hvernig ferskvara átti að líta út,“ segir Pétur bróðir Snorra og bætir við: „Ég man til dæmis eftir manni sem vildi ekki hvítkálshausinn hjá pabba því hann var of hvítur. Hann bað því um þann brúna sem hann var vanur að fá, en auðvitað er hvítkál aldrei brúnt á lit nema það sé gamalt,“ segir Pétur og hlær.


Starfsmenn Krónunnar í Austurveri í sóttkví eftir smit
Starfsmaður sem er í hlutastarfi hjá Krónunni í Austurveri hefur greinst með kórónuveiruna. Allir starfsmenn verslunarinnar sem voru í samskiptum við starfsmanninn hafa verið sendir í sóttkví í samráði við sóttvarnarlækni og rakningateymi almannavarna.

Aukning í heildarkortaveltu í fyrsta skipti frá upphafi faraldursins
Neysla Íslendinga jókst verulega milli ára í mars, en 24% aukning var í kortaveltu innanlands tengd verslun og þjónustu miðað við fast verðlag. Samanlagt jókst kortavelta um 20% milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag en 2% samdráttur var í kortaveltu Íslendinga erlendis.

Fólk sem á heitan pott kann að skemmta sér
Fiskikóngurinn selur víst ekki bara fisk. Kristján Berg og Sólveig Lilja hafa opnað glæsilega sérverslun með heita potta.

Sakar Ingó og félaga um að hafa bolað sér út úr X-mist með bellibrögðum
Jónas Eiríkur Nordquist heldur því fram að Ingólfur Þórarinsson, tónlistar- og athafnamaður, hafi ásamt þeim Davíð Þór Rúnarssyni og Sævari Eyvinds Helgasyni haft af sér fyrirtækið X-Mist með bolabrögðum. Ingólfur segir málið allt sorgarsögu.

Alibaba sektað um 350 milljarða
Kínversk stjórnvöld hafa sektað Alibaba, eitt stærsta netverslunarfyrirtæki heims, um 2,75 milljarða Bandaríkjadala fyrir brot á einokunarlögum. Eftirlitsaðilar í landinu segja fyrirtækið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína um árabil.

Kaupa verslanir Krónunnar á Hellu og í Nóatúni
Kaupsamningur hefur verið undirritaður um kaup Samkaupa á tveimur verslunum Krónunnar, annars vegar Kjarval á Hellu en hins vegar Krónunni Nóatúni 17, Reykjavík.

Kaupa Útilíf af Högum
Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson hafa í sameiningu keypt Útilíf af Högum. Eftir kaupin er Íslensk fjárfesting 60 prósent hluthafi en J.S. Gunnarsson heldur á 40 prósent hlut í félaginu.

Matvöruverð lækkað síðustu mánuði
Vörukarfa ASÍ hefur lækkað í sex verslunum af átta frá því í byrjun nóvember á síðasta ári. Mest lækkaði hún í Heimkaup um 11,2% en hækkaði mest í Nettó um 0,8%.

Opna Geysi á ný og hefja þróun snyrtivörulínu
Hótel Geysir hefur fest kaup á öllum vörubirgðum úr þrotabúi Geysis verslananna og hyggst endurvekja verslunina í Haukadal. Er stefnt að því að opna hana aftur með vorinu og um leið færa vöruþróun merkisins á nýjar slóðir.

Tekur við og heldur Fjällräven í Geysisfjölskyldunni
Athafnakonan Rakel Þórhallsdóttir stefnir nú á opnun fataverslunarinnar Mt. Heklu við Skólavörðustíg 16 og Hafnarstræti á Akureyri. Stendur til að hefja reksturinn á næstu vikum en bæði rýmin hýstu áður verslanir Geysis.

Páskaeggin við það að klárast
Það fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaup og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld.

Andri og Gerður til liðs við aha.is
Aha.is hefur ráðið þau Gerði Guðnadóttur og Andra Davíð Pétursson til starfa. Gerður hefur verið ráðin markaðsstjóri og mun bera ábyrgð á markaðsmálum félagsins. Andri hefur verið ráðinn í stöðu tengiliðar við veitingastaði.

Lindex hyggst opna á Selfossi
Lindex mun opna verslun á Selfossi í ágúst og verður hún til húsa í því rými sem nú hýsir sérverslun Hagkaupa. Hagkaup lokar sinni verslun í júní.

Ísmar festir kaup á Fálkanum
Gengið hefur verið frá kaupum sölu- og þjónustufyrirtækisins Ísmars á Fálkanum. Alls starfa 32 starfsmenn hjá félögunum en ekki er gert ráð fyrir að starfsfólki fækki í tengslum við kaupin.

SE svarar Festi sem bendir á bresti og segir Lúðvík of dýran í rekstri
Samkeppniseftirlitið segir Lúðvík Bergvinsson, sem var skipaður óháður kunnáttumaður vegna sáttar við Festi, hafa gegnt mikilvægu hlutverki og gert grein fyrir mögulegum brotum á sáttinni sem séu nú til rannsóknar.

Tvöfalda leyfðan hámarksfjölda viðskiptavina
Matvöru- og lyfjaverslunum verður heimilt að taka á móti að hámarki hundrað viðskiptavinum að uppfylltum öllum skilyrðum í stað fimmtíu áður. Óbreyttar reglur gilda í öðrum verslunum.

Í rekstur „með mömmu sem er alltaf til í allt“
„Aldursmunur dætranna hefur gert það að verkum að þær hafa ekki gert allt of mikið saman um ævina og þegar þessi hugmynd kom upp í huga okkar ákváðum við að með þessu væri hægt að eiga sameiginlegt markmið til að stefna að með mömmu sem er alltaf til í allt,“ segir Vilborg Norðdahl sem skömmu fyrir síðustu jól hóf rekstur með tveimur dætrum sínum undir nafninu Verzlanahöllin að Laugavegi 26.

Rekstrinum kippt undan Pink Iceland sem hefur opnað CBD verslun
Í tíu ár hefur Pink Iceland látið drauma ferðafólks rætast sem kemur til Íslands til að gifta sig. Brúðkaupin eru orðin fleiri en sex hundruð, hvert öðru litríkara og ævintýralegra og hægt væri að gera heilan raunveruleikaþátt út frá ótrúlegum sögum brúðkaupsskipuleggjanda.

Koma ný inn í stjórn SVÞ
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands, var í morgun endurkjörinn sem stjórnarformaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, til næstu tveggja ára. Þá var kosið um fjögur sæti meðstjórnenda, en alls buðu tólf sig fram og hafa aldrei verið fleiri.

Uppfærum Ísland: Stafræn umbreyting eða dauði
Í tilefni af aðalfundi SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu frumsýna samtökin þátt undir yfirskriftinni Uppfærum Ísland – stafræn umbreyting eða dauði. Þátturinn verður frumsýndur á Vísi klukkan tíu í dag.

Vörur hrundu úr hillum þegar jarðskjálftinn reið yfir
Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli.

Hafa sýnt vörulager Geysis áhuga í kjölfar gjaldþrotsins
Rekstrarfélög Geysis og tengdra verslana hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta en verslununum var lokað í byrjun febrúar og öllu starfsfólki sagt upp.

Um þrjátíu starfsmenn Hagkaups í sóttkví
Um þrjátíu starfsmenn Hagkaups í Garðabæ eru nú í sóttkví eftir að starfsmaður þar greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi.

Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ smitaður
Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi.

Selur allar vörur á 100 krónur og hefur ekki þurft að sækja í reynslubanka pabba síns
„Þú sérð ekki oft þetta verð, hundrað krónur fyrir allt. Og það er búið að vera mjög mikið að gera,“ segir Stefán Franz Jónsson, stofnandi verslunarinnar 100kr.is í samtali við Vísi. Verslunin ber nafn með rentu – allar vörur sem þar eru til sölu kosta 100 krónur.

Costco ekki orðið við kröfu MAST um innköllun á hundanammi
Matvælastofnun (MAST) varar við tiltekinni lotu af hundanamminu Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin frá Irish Dog Food vegna málmflísa sem kaupandi fann í vörunni. Costco flytur vöruna inn og selur í verslun sinni í Kauptúni.

Erla Wigelund er látin
Erla Wigelund, kaupmaður í Verðlistanum í Reykjavík, er látin 92 ára að aldri. Hún lést á Hrafnistu Laugarási í Reykjavík 22. febrúar síðastliðinn.

Bein útsending: Bestu íslensku vörumerkin 2020
Vörumerkjastofan brandr mun í dag útnefna bestu íslensku vörumerkin árið 2020 í beinu streymi sem hefst klukkan 16. Kynnir verðlaunanna er Þorsteinn Bachmann og mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flytja stutt ávarp áður en sigurvegarar verða kynntir.