
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Sóttvarnarreglum hefur verið aflétt á Englandi
Flestum sóttvarnarreglum á Englandi hefur nú verið aflétt. Engar fjöldatakmarkanir eru við lýði lengur, næturklúbbar opnuðu aftur á miðnætti og reglur á veitingastöðum og börum hafa verið afnumdar.

Tvær verslanir í Kringlunni lokaðar vegna smits
Verslun Eymundssonar í Kringlunni var lokuð í dag eftir að starfsmaður hennar greindist með kórónuveiruna í gær. Stefnt er að því að verslunin verði opin á morgun.

Sjúklingur með Covid-19 lagður inn á Landspítala
Sjúklingur var lagður inn á Landspítala vegna Covid-19 í gær. Þetta er fyrsta innlögnin í nokkrar vikur, að sögn yfirmanns Covid-deildar. Hann telur að herða eigi aðgerðir á landamærum, til dæmis með skimun á Íslendingum.

Boris Johnson er hættur við að sleppa sóttkví
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak fjármálaráðherra voru útsettir fyrir smiti eftir að þeir funduðu með Sajid Javid heilbrigðisráðherra, sem reyndist smitaður af Covid-19. Upphaflega ætluðu ráðherrarnir tveir ekki að fara í sóttkví.

Keflavíkurflugvöllur að nálgast þolmörk
Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir flugvöllinn að nálgast þolmörk. Suma daga þurfi lögregla á flugvellinum að taka á móti þrjú þúsund farþegum á einum og hálfum klukkutíma.

Níu greindust innanlands, enginn í sóttkví
Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, enginn þeirra í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum.

Meirihluti falsfrétta um Covid-19 komi frá tólf einstaklingum
Mikill meirihluti falsfrétta og hræðsluáróðurs um bólusetningar á samfélagsmiðlum vestanhafs er runninn undan rifjum einungis tólf einstaklinga. Þetta segir í nýrri skýrslu Center for Countering Digital Hate, samtaka sem berjast gegn stafrænu hatri.

Tveir Ólympíufarar hafa greinst smitaðir
Tveir íþróttamenn í Ólympíuþorpinu hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni, aðeins fimm dögum áður en Ólympíuleikarnir hefjast. Íþróttamennirnir eru frá sama landinu og eru í sömu íþrótt og starfsmaðurinn sem greindist smitaður í gær.

Grunur um smit í leikmannahópi Bucks
Fimmti leikurinn í úrslitaeinvígi Milwaukee Bucks og Phoenix Suns um NBA meistaratitilinn fer fram í nótt.

Héldu að þau yrðu örugg á Íslandi en eiginmaðurinn smitaðist samt
Farþegi skemmtiferðaskipsins Viking Sky hefur ekki hugmynd um hvar eiginmaður hennar, einnig farþegi á skipinu, smitaðist af kórónuveirunni. Hún lætur vel af Íslandsdvölinni þrátt fyrir allt. Aðrir gestir farsóttarhússins taka í sama streng.

Reikna með yfir fjögur hundruð í sóttkví eftir daginn
Almannavarnir reikna með því að yfir fjögur hundruð manns verði komnir í sóttkví eftir daginn í dag. Þá hefur ekki tekist að tengja þá sem greindust með kórónuveiruna í gær við eldri smit, samkvæmt upplýsingum frá Hjördísi Guðmundsdóttur samskiptastjóra almannavarna. Það sé áhyggjuefni.

Heilbrigðisráðherra Bretlands smitaður af Covid
Sajid Javid, heilbrigðisráðherra, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Javid greinir frá þessu í myndbandi sem hann birti á Twitter, þar sem hann segist vera með væg einkenni Covid-19.

Tónlist bönnuð á Mykonos vegna Covid
Yfirvöld í Grikklandi tilkynntu í dag nýjar takmarkanir vagna kórónuveirufaraldursins. Takmarkanirnar eiga við grísku ferðamannaeyjuna Mykonos en þær fela í sér meðal annars bann við tónlist á veitingastöðum og krám.

Segir samfélagsmiðla eiga þátt í „faraldri óbólusettra“
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að eini faraldurinn sem nú geisar í Bandaríkjunum sé faraldur kórónuveirunnar meðal samlanda hans sem ekki vilji láta bólusetja sig fyrir veirunni. Hann segir athæfi samfélagsmiðlarisa á borð við Facebook spila þar stórt hlutverk.

Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu
Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu.

Afléttingar á Bretlandi eiga ekki við ferðalanga frá Frakklandi
Frá og með næsta mánudegi munu fullbólusettir ferðamenn sem eru á leiðinni til Englands og Wales frá Frakklandi þurfa að fara í tíu daga sóttkví við komuna til landsins. Þetta gildir ekki um ferðalanga frá öðrum ríkjum en stjórnvöld hræðast að Beta-afbrigði veirunnar sé ónæmt fyrir bóluefninu.

Tólf greindust með veiruna innanlands í gær
Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fimm í sóttkví en sjö utan sóttkvíar.

Alvarlegt ástand í Afríku: „Sökin er alfarið ríku landanna“
Ástandið vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar versnar sífellt í Afríku en í síðustu viku fjölgaði dauðsföllum um 43 prósent í heimsálfunni. Heilbrigðiskerfi margra ríkja eru að þrotum komin en ekkert útlit er fyrir að lát verði þar á.

Eiffel-turninn opnaður á ný
Einn allra vinsælasti ferðamannastaður Frakklands, Eiffel turninn í París, var opnaður að nýju í dag eftir níu mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Turninn var opnaður þrátt fyrir að sóttvarnaraðgerðir hafi verið hertar nokkuð í vikunni vegna Delta-afbrigðisins.

Segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum
Yfirlæknir ónæmisfræðideildar á Landspítalanum segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum vegna nýrrar stöðu í faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann telur sterkar líkur á að fólk þurfi endurbólusetningu gegn nýjum afbrigðum á borð við hið bráðsmitandi delta afbrigði.

„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“
Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram.

Smit um borð í Viking Jupiter og engum hleypt í land
Eitt smit hefur verið staðfest um borð í skemmtiferðaskipinu Viking Jupiter sem liggur við höfn á Akureyri.

„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert.

Starfsmaður á Jómfrúnni greindist með smit
Starfsmaður Jómfrúarinnar greindist með kórónuveirusmit í gær og voru 24 starfsmenn veitingastaðsins sendir í skimun vegna smitsins. Þeir hafa allir verið bólusettir líkt og sá smitaði sem mætti síðast í vinnuna á mánudag. Einn starfsmaður hefur verið sendur í sóttkví.

Leggur til að aðgerðir verði hertar á landamærum á ný
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja til breytingar á sóttvarnaaðgerðum á landamærum í ljósi fjölgunar tilfella síðustu daga. Hann vinnur nú að minnisblaði til ráðherra en vill ekki gefa upp hverjar tillögur hans verða.

Forsetinn þakkar heilsugæslunni en segir verk að vinna í baráttu við veiruna
„Kæru vinir. Bólusetningu vegna heimsfaraldurs er núna lokið í bili. Sú aðgerð tókst með eindæmum vel, meðal annars vegna þess að landsmenn áttuðu sig vel á nauðsyn þess að grípa til varna af því tagi.“

Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær
Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fjórir utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

„Þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin virkar“
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð.

Segir virkni bóluefna ekki eins góða og vonast var til
Sóttvarnalæknir segir virkni bóluefna gegn kórónuveirunni ekki eins góða og vonast var til. Þá hafi heilsufar áhrif á virkni bólusetninga. Hann íhugar nú að leggja það til að allir sem koma til landsins verði krafðir um neikvætt PCR próf. Tíu fullbólusettir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar.

Nýjar aðgerðir kynntar á Kanaríeyjum
Nýjar aðgerðir voru kynntar á Kanaríeyjum rétt í þessu og má ætla að hópur Íslendinga hafi fylgst stressaður með, þar sem margir hafa bókað sér ferð í sólina í sumar.