Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Óttast að alvarlega vannærðum börnum fjölgi um tíu milljónir
Kórónaveiran gæti leitt til þess að alvarlega vannærðum börnum fjölgi um tíu milljónir eða um fimmtung frá því sem nú er.

Ísland fær mikið fyrir peninginn þegar borskipið kemur að bora
Tveir alþjóðaleiðangrar á borskipi, sem nú eru í undirbúningi, gætu orðið einhverjir dýrustu vísindaleiðangrar í sögu rannsókna við Ísland. Til stóð að borskipið kæmi í næsta mánuði en núna er ljóst að kórónufaraldurinn raskar tímaáætlun skipsins.

Sendingin frá Kína sem reyndist allt annað en hættulaus
Kórónuveiran sem veldur sjúkdómnum Covid-19 hefur haft ótrúlega mikil áhrif á daglegt líf okkar allra. Þá hefur hún sett efnahag þjóðarinnar í algjört uppnám en þessi nýja veira sem á uppruna sinn í Kína lét ekki mikið yfir sér í fyrstu.

Trump enn og aftur grímulaus þrátt fyrir grímuskyldu
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti grímulaus til fundar við fréttamenn í verksmiðju bílaframleiðandans Ford í Michigan í gær, þrátt fyrir að grímuskylda gildi í ríkinu vegna faraldurs kórónuveiru.

Faraldurinn náttúruhamfarir og viðbrögð miðist við það
Horfa ætti til fyrri viðbragða við náttúruhamförum á borð við eldgos til að mæta efnahagslegum afleiðingum kórónuveirunnar, að mati hagfræðings. Faraldurinn megi flokka sem hamfarir sem bitni nú misjafnlega á fyrirtækjum með ósanngjörnum hætti.

Fyrrverandi lögmanni Trump sleppt úr fangelsi vegna Covid-19
Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trump sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi í desember 2018, hefur verið sleppt úr fangelsi og færður í stofufangelsi.

Tekjumissir Manchester United í kringum fimm milljarða króna
Manchester United hefur orðið af fimm milljörðum íslenskra króna vegna kórónufaraldursins.

Rúmlega sjö prósent íbúa Stokkhólms höfðu myndað mótefni í lok apríl
Aðeins 7,3 prósent íbúa Stokkhólms, höfuðborgar Svíþjóðar, höfðu í lok síðasta mánaðar myndað mótefni við kórónuveirunni sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19. Sóttvarnalæknir landsins gerði ráð fyrir hærra hlutfalli.

Vopn skila arði í stríði með landvinningum
Nú hefur heimurinn verið í stríði við „óvæntan“ andstæðing eða veiru sem berst í lofti á milli manna. Barist er við SARS-Cov2 í öllum löndum heims og vopnin eru lokanir ákveðinna þjónustustaða, tveggja metra reglan, sóttkví, einangrun og sjúkrahúslega.

Fari Ólympíuleikarnir ekki fram næsta sumar þá verður þeim aflýst
Ólympíuleikarnir sem fram áttu að fara í sumar hefur verið frestað til sumarsins 2021. Verði þeir ekki haldnir þá verður þeim einfaldlega aflýst.

Mikilvægt að samningar náist við flugfreyjur fyrir hlutafjárútboð
Afar mikilvægt er að Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands nái samningum fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð félagsins að mati greinenda

Seinagangur stjórnvalda kostaði þúsundir mannslífa
Niðurstaða rannsóknar faraldursfræðinga við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum hefur leitt í ljós að ef brugðist hefði verið við faraldri kórónuveirunnar viku fyrr hefði mátt bjarga allt að 36 þúsund mannslífum.

Stefna á að klára tímabilið 20. ágúst
Ítalska knattspyrnusambandið hefur gefið út að tímabilinu þar í landi muni ljúka þann 20. ágúst, aðeins tólf dögum áður en fyrsti leikur á næsta tímabili eigi að fara fram.

Meðvitaður um neyðarástand sem er uppi í nokkrum sveitarfélögum
Sigurður Ingi Jóhannsson, sveitarstjórnarráðherra, segist vera meðvitaður um það neyðarástand sem uppi er í nokkrum sveitarfélögum landsins vegna kórónuveirufaraldursins.

Ekkert smit síðasta sólarhringinn
Ekkert smit kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 greindist síðasta sólarhringinn hér á landi.

Varar við að ríkari aðildarríki ESB verði látin borga brúsann
Friedrich Merz, fyrrverandi leiðtogi þingflokss Kristilegra demókrata í Þýskalandi, segir Evrópusambandið þurfa að gæta sín að verða ekki „millifærslusamband“ þar sem ríkari aðildarríki eru látin borga brúsann fyrir fátækari aðildarríkin.

Gylfi Þór vonast til að Everton endi tímabilið vel
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson vonast til að enda tímabilið vel en frestun deildarinnar hafi komið illa niður á Everton þar sem Carlo Ancelotti var nýtekinn við félaginu.

Maguire leið vel með að snúa aftur á völlinn | Fyrirliði Watford ekki sama sinnis
Harry Maguire, fyrirliði enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, leið vel með að snúa aftur á æfingasvæði félagsins í vikunni. Troy Deeney er ekki sama sinnis.

Fleiri en fimm milljónir staðfestra kórónuveirusmita
Staðfest tilfelli kórónuveiru eru nú orðin fleiri en fimm milljónir í heiminum. Meira en ein og hálf milljón tilfella hafa greinst í Bandaríkjunum.

Þýska ríkið eignast 20 prósenta hlut í Lufthansa gangi samningar eftir
Þýska flugfélagið Lufthansa er í viðræðum við þýska ríkið um 9 milljarða evra björgunaraðgerð til að reyna að koma í veg fyrir fall félagsins vegna kórónuveirufaraldursins.

Ríkiskaup leitast við að leiðrétta rangfærslur um útboð á kynningarherferð
Ríkiskaup hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að fjölmiðlaumfjöllun um nýafstaðið útboð kynningarherferðarinnar „Ísland – saman í sókn“ feli í sér rangfærslur sem tilefni sé til að leiðrétta.

Banna át á villtum dýrum í Wuhan
Yfirvöld í kínversku borginni Wuhan, hvaðan kórónuveiran sem valdið getur Covid-19 er talin eiga uppruna sinn, hafa nú tekið ákvörðun um að banna neyslu á kjöti villtra dýra í borginni.

Aldrei fleiri smit greinst á heimsvísu
Forsvarsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sögðu í dag að á milli daga hafi stofnuninni borist tilkynningar um rúmlega hundrað þúsund ný tilfelli nýju kórónuveirunnar á heimsvísu.

Framdi skotárás eftir að hafa verið beðinn um að vera með grímu
Lögreglan í Aurora í Colorado-ríki í Bandaríkjunum hefur handtekið 27 ára mann sem grunaður er um skotárás.

Opnun landamæra getur tryggt tekjur vegna afbókunarskilmála
Ef svartsýn spá Seðlabankans rætist mun það hafa slæmar afleiðingar fyrir mörg ferðaþjónustufyrirtæki að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Með opnun landamæra er þó líklegra að þeir sem eigi pantaðar ferðir til landsins standi við ferðaplön sín vegna afbókunarskilmála.

Kante æfði ekki með Chelsea í dag af ótta við veiruna
Það var enginn N’Golo Kante sjáanlegur á æfingu Chelsea í dag og Matt Law, blaðamaður á The Telegraph, segir að það eigi sér eðlilega skýringu. Hann hafi fengið frí frá æfingu dagsins og óvíst hvenær hann æfir aftur með liðinu.

Trump hótar ríkjum sem auðvelda fólki að kjósa í faraldrinum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag tveimur ríkjum Bandaríkjanna að hann myndi stöðva fjárveitingar alríkisstjórnarinnar til þeirra ef þau hættu ekki við áform um að bjóða upp á utankjörfundar- og póstatkvæði til að draga úr smithættu vegna kórónuveirufaraldursins í kosningum á þessu ári.

„Miklu, miklu hraðar“ létt á aðgerðum hér
Þórólfur Gunason sóttvarnalæknir segist hafa áhyggjur af því að landsmenn passi minna upp á sýkingarvarnir, svo sem handþvott og spritt, nú en þegar kórónuveirufaraldurinn var í miklum vexti. Víðir Reynisson segir að skipuleggjendur stórra viðburða í sumar verði að átta sig á ástandinu sem sé í gangi.

Varnarmaður Watford með veiruna
Einn leikmaður og tveir úr starfsliðinu greindust með kórónuveiruna.

Margt hefur breyst en sem betur fer ekki allt
Það hefur margt breyst í samfélaginu okkar eftir COVID-19 en sem betur fer ekki allt.