Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

211 smitaðir og þrettán milljónir í útgöngubann
Ráðamenn í Kína hafa settum þrettán milljón íbúa borgarinnar Xi’an í útgöngubann vegna útbreiðslu kóronuveirunnar þar. 63 greindust smitaðir af Covid-19 í borginni í gær og hafa alls 211 greinst smitaðir á undafarinni viku.

Jólaleikjum frestað í ensku úrvalsdeildinni
Leikjum Liverpool og Leeds annars vegar, og Wolves og Watford hins vegar, sem áttu að fara fram á öðrum degi jóla hefur verið frestað.

Öllum leiksýningum og tónleikum aflýst yfir jólin
Helstu sviðslistahús landsins hafa ákveðið að aflýsa öllum leiksýningum og tónleikum um jólin. Lokunin gildir að minnsta kosti fram að áramótum en undatekning verður þó gerð vegna tónleika sem fram fara í Hörpu í dag og vegna ferðamannaviðburða.

Undanþágur gerðar vegna meðalhófs
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að fjölmörg fordæmi séu fyrir því að veittar séu undanþágur þegar takmarkanir beri brátt að. Gæta beri meðalhófs. Þá segir hann að að Kári Stefánsson hafi bara lagt gott eitt til í gegnum faraldurinn.

„Mönnunin er Akkilesar-hællinn“
Alma Möller landlæknir segir að um fjörutíu starfsmenn Landspítalans séu í einangrun vegna Covid-19. Mönnun spítalans er að hennar sögn Akkilesar-hællinn og verið er að leita allra leið til að létta álagi af Landspítalanum.

Neyðumst til að bregðast við breyttum eiginleikum veirunnar
Kórónuveirufaraldurinn er og hefur verið óútreiknanlegur, sem hefur neytt yfirvöld til að aðlaga sóttvarnaaðgerðir að nýjum eiginleikum veirunnar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi rétt í þessu.

443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.

Hefði lokað í dag frekar en að velja milli kúnna
Jakob Jakobsson á Jómfrúnni er einn þeirra veitingamanna sem fékk undanþágu frá hertum takmörkunum í dag. Hann segir málið ekki snúast um tekjutap heldur að hann hafi ekki viljað vísa kúnnum á dyr á Þorláksmessu.

Kári segir Willum hafa orðið á mikil mistök
Heilbrigðisráðherra varð á mikil mistök með því að veita undaþágur til vínveitingastaða í aðdraganda jólanna að mati Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Í morgun fékk Íslensk erfðagreining send 518 sýni til raðgreiningar.

Svona var 191. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar í dag, á Þorláksmessu, klukkan 11:00. Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu hér á Vísi.

Tæplega fimm hundrað greindust með Covid-19 í gær
Rúmlega fimm hundruð sýni bárust Íslenskri erfðagreiningu til raðgreiningar í morgun. Þetta segir Kári Stefánsson í samtali við Vísi.

Opið í einkenna- og sóttkvíarsýnatökur alla daga yfir hátíðirnar
Opið verður í sýnatökur á Suðurlandsbraut 34 frá klukkan 8 til 12 á morgun, aðfangadag. Á jóladag verður ekki opið í hraðpróf né PCR-sýnatökur fyrir ferðalög en opið verður í PCR einkenna- og sóttkvíarsýnatöku frá klukkan 10 til 14.

Rannsóknir benda til þess að ómíkron valdi minni veikindum
Rannsóknir í Suður-Afríku og Bretlandi virðast benda til þess að ómíkron-afbirgði kórónuveirunnar sé vægara en delta. Talið er að afbrigið nýja valdi 30 til 70 prósent færri innlögnum á sjúkrahús en önnur afbrigði.

Tónleikagestur neitaði að bera grímu og hrækti á starfsfólk
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af að minnsta kosti sjö einstaklingum í gær sem eru grunaðir um sóttvarnabrot. Sex voru saman í hóp og voru að yfirgefa veitingastað með áfengisflöskur í höndum þegar lögregla sá til þeirra.

Þessar takmarkanir tóku gildi á miðnætti
Hertar takmarkanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar tóku gildi á miðnætti. Fjöldatakmarkanir miðast nú við 20 manns, opnunartími veitingastaða styttist og þá taka gildi sérstakar reglur um fjölmenna skipulagða viðburði og hraðpróf. Sérstök undanþága verður veitt fyrir rekstraraðila og tónleikahaldara á morgun.

Fólk getur skort hugrekki til að framkvæma almennilegt hraðpróf
„Ég held að þetta geti verið bundið við þann sem er að taka prófið. Það þarf ákveðið hugrekki til að setja pinnann alveg inn í nefkokið og það getur vel verið að sumir veigri sér við það. En ég vona ekki samt,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

Stjórnvöld ekki búin að bjarga málunum: „Stemningin er orðin frekar súr“
Samtök fyrirtækja í veitingarekstri fagna því að hlustað hafi verið á rekstraraðila en hafa áhyggjur af takmörkunum á opnunartíma veitingastaða. Klukkutíminn skipti verulegu máli í rekstrinum enda nær ómögulegt að ná inn tveimur hollum af gestum þegar veitingastöðum ber að loka klukkan níu.

Veitingamenn fá einnig undanþágu frá hertum takmörkunum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá hertum samkomutakmörkunum á morgun.

Náð betri árangri ef stjórnvöld hefðu sleppt því að veita undanþágur
Sóttvarnalæknir telur að betri árangur náist í baráttunni við kórónuveiruna með því að halda sig við þær samkomutakmarkanir sem ákveðnar hafa verið.

Pfizer fær grænt ljós á lyf gegn Covid
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa nú veitt leyfi fyrir notkun lyfsins Paxlovid við kórónuveirunni. Lyfið er framleitt af fyrirtækinu Pfizer, sem áberandi hefur verið í framleiðslu á bóluefnum gegn Covid-19.

Ómíkron geti markað upphafið að enda faraldursins
Ómíkron er að verða ráðandi afbrigði kórónuveirunnar hér á landi en sjötíu prósent af þeim sem greindust í gær voru með það. Einn hefur þurft að leggjast inn á sjúkrahús með ómíkron en svo virðist sem yngra fólk sé líklegra til að fá það en fyrri afbrigði.

Óska eftir undanþágu fyrir ríflega 130 fyrirtæki á veitingamarkaði
Samtök fyrirtækja í veitingarekstri hafa nú fyrir hönd ríflega 130 fyrirtækja óskað eftir undanþágu á sóttvarnarráðstöfunum til að lágmarka tjón sem hlýst af aðgerðunum. Stjórnarmaður samtakanna segir fordæmi fyrir slíkum undanþágum en heilbrigðisráðuneytið er nú með beiðnina til skoðunar

Þríeykið snýr aftur á upplýsingafundi á Þorláksmessu
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun, fimmtudaginn 23. desember, klukkan 11.

Jakob á Jómfrúnni: „Við erum eftir á þegar kemur að áfengissölu"
Breyttar reglur um áfengissölu hefðu nýst veitingastöðum vel þegar þeir voru neyddir til að takmarka þjónustu vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra. Breyta hefði mátt reglum tímabundið líkt og gert var í öðrum ríkjum en það var ekki gert þrátt fyrir ákall veitingamanna.

Mikill meirihluti smitaðra með ómíkronafbrigðið
Ómíkron verður sífellt meira ráðandi afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Af þeim 267 innanlandssmitum og 51 landamærasmiti í gær var um sjötíu prósent samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu.

Bjarni segir skaða af sóttvarnaaðgerðum verða bættan
Fjármálaráðherra heitir því að ríkið muni hlaupa undir bagga með fyrirtækjum sem lendi í áframhaldandi rekstrarerfiðleikum vegna kórónuveirufaraldursins. Borgarstjóri gagnrýnir hins vegar að ekki séu gefin skýr skilaboð um aðgerðir til að mæta stöðu fólks og fyrirtækja.

Sóttvarnir sem drepa niður samfélag
Þegar árið 2021 rennur sitt skeið á enda verða liðin næstum því tvö ár frá því að fyrsta kóvid-smitið greindist á Íslandi. Á þessum tíma hefur samfélagið fært ómældar fórnir, bæði efnislegar og óefnislegar, í þágu sóttvarna. Hversu mikið hefur áunnist?

Forsendur undanþágu fyrir tónleika gildi einnig um veitingahúsin
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það skjóta skökku við að heilbrigðisyfirvöld hafi veitt tónleikahöldurum undanþágu frá sóttvarnaraðgerðum þar sem samtökin hafi ítrekað óskað eftir undanþágum án árangurs. Forsendur þess að undanþágur voru veittar fyrir tónleikahaldi geti einnig átt við um veitingarekstur.

Leikmenn Íslendingaliðs í Danmörku spiluðu leik með kórónuveirueinkenni
Sjö leikmenn danska handboltalandsliðsins GOG eru smitaðir af kórónuveirunni. Fréttir frá Danmörku herma að leikmenn liðsins hafi spilað veikir í síðasta leik.

Jómfrúin óskar líka eftir undanþágu
Rekstraraðilar Jómfrúarinnar í Lækjargötu hafa óskað eftir undanþágu frá takmörkunum á samkomum vegna Þorláksmessu. Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir beiðni veitingastaðarins fullkomlega sambærilega þeim undanþágum sem hafi verið veittar.