Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Opið í hraðpróf og viðburðahaldarar hvattir til að láta vita
Heilsugæslan hefur nú opnað fyrir að fólk fari í hraðpróf vegna viðburða á heilsugæslustöðinni á Suðurlandsbraut 34. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hvetur viðburðahaldara til að láta vita af stórum viðburðum svo starfsmenn heilsugæslunnar séu undirbúið fyrir mannfjöldann.

25 greindust innanlands
Alls greindust 25 með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrettán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 52 prósent. Tólf voru utan sóttkvíar, eða 48 prósent.

Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku
Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný.

Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu.

Geta ekki haldið HM vegna Covid
Japan hefur þurft að gefa frá sér gestgjafahlutverkið á HM félagsliða sem fram fer í desember vegna kórónuveirufaraldursins.

Þórólfur vill fara hægt í afléttingar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir reiknar með að skila heilbrigðisráðherra nýju minnisblaði innan fárra daga en varar við því að farið verði of geyst í slökun á sóttvarnaaðgerðum.

Faðir barnsins segir Jakob Frímann aðeins hafa talið sig vera að hjálpa
Faðir barns segir að Jakob Frímann Magnússon, tónlistar- og athafnamaður, hafi ekki vitað betur en hann væri að greiða fyrir málum þegar hann reit utanríkisráðuneytinu bréf og óskaði eftir liprunarbréfi til að barnið kæmist utan til föður síns.

Norðurkóreskt varnarlið marseraði í hlífðarbúningum
Norður-Kórea fagnaði því að 73 ár eru liðin frá stofnun ríkisins í nótt með skrúðgöngu. Athygli hefur vakið að allir þeirra sem tóku þátt í skrúðgöngunni voru klæddir í appelsínugula hlífðarbúninga en engin flugskeyti voru til sýnis, sem gjarnan eru sýnd á slíkum viðburðum í Norður-Kóreu.

Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi
Greinarhöfundar unnu sem lokaverkefni í MBA námi við Háskóla Íslands verkefni sem gekk út á að meta stöðuna í ferðaiðnaði á Íslandi og hvort nota mætti aðferðir nýsköpunar til að styrkja stöðu sjálfbærni og bæta markaðsímynd Íslands.

44 greindust smitaðir af veirunni í gær
Að minnsta kosti 44 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Nítján voru í sóttkví við greiningu en 25 utan sóttkvíar.

Afturkölluðu liprunarbréf vegna ósanninda í umsókn
„Við höfum ítrekað viðurkennt að þarna voru gerð mistök og beðist afsökunar á því,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins, um svokallað „liprunarbréf“ sem ráðuneytið neyddist til að endurkalla.

Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala
Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka.

Starfsfólki mögulega gert að skila Covid niðurstöðum fyrir viðburði
Sóttvarnir virðast vera komnar til að vera en nánast ekkert er um það rætt hjá fyrirtækjum hvort krefja eigi starfsfólk um að fara í bólusetningar. Fyrir fjölmenna viðburði á vegum vinnustaða, velta fyrirtæki hins vegar fyrir sér að krefjast neikvæðra Covid niðurstaðna frá starfsfólki áður en það mætir á viðburðinn.

Sex tilkynningar um alvarleg atvik hjá 12 til 17 ára í kjölfar bólusetningar
Lyfjastofnun hafa borist sex tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetningar 12 til 17 ára barna gegn Covid-19, þar af þrjár vegna sjúkrahúsvistar.

Spítalinn af hættustigi: Sjö inniliggjandi og einn á gjörgæslu
Landspítalinn er kominn niður af hættu stig og á óvissustig samkvæmt ákvörðun farsóttarnefndar og viðbragðsstjórnar í dag. Óvissustig er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

Blikar fá að spila 60 milljóna leikinn þrátt fyrir að leikmaður hafi smitast
Einn leikmaður Breiðabliks hefur greinst með kórónuveirusmit í aðdraganda seinni leiksins við króatíska liðið Osijek, í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun.

Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt
Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta.

Þórólfur segir Kára í jötunmóð og beina sverðinu að fóstbróður sínum í faraldrinum
Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til snemmbúinna tilslakana líkt og ráðherrar hafa kallað eftir. Þá sé ekki rétt að afnema fjöldatakmarkanir líkt og Kári Stefánsson leggur til. Hann segir Kára í jötunmóð og nú beina sverðinu að fóstbróður sínum í Covid.

Þykir leitt að hafa gleymt sér á hárgreiðslustofunni
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hafa gleymt sér þegar hún fór í klippingu á mánudag án þess að bera sóttvarnagrímu. Hún birti mynd af sér í klippingunni á Story á Instagram en slíkar myndir hverfa eftir sólarhring.

37 greindust með Covid-19 innanlands í gær
37 greindust með Covid-19 í gær. 544 eru í einangrun og 930 í sóttkví.

Þrettán í sóttkví eftir smit hjá starfsmönnum Heilsustofnunar í Hveragerði
Alls hafa þrettán verið sendir í sóttkví eftir að tveir starfsmenn Heilsustofnunar í Hveragerði greindust með Covid-19 í gær.

Fyrrum troðslukóngur NBA-deildarinnar á tíunda degi á gjörgæslu
Cedrid Ceballos fyrrum troðslukóngur NBA-deildarinnar hefur nú legið í tíu daga á gjörgæslu sökum kórónuveirunnar. Hann biður fólk um að biðja fyrir sér og segir baráttu sína hvergi nærri búna.

Lengja opnunartímann í bólusetningu til klukkan 19 á morgun
Á morgun verður opið í bólusetningar frá kl. 10 til 19 á Suðurlandsbraut 34. Með þessu vonast Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu til að fleiri sjái sér fært að mæta.

Svandís segir hilla undir fjöldasamkomur
Heilbrigðisráðherra segir hilla undir að hægt verði að heimila stórar fjöldasamkomur. Mögulega verði slakað á sóttvarnareglum áður en þær sem nú eru í gildi renni út á föstudag í næstu viku.

Hækkar skatta vegna Covid-19
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag frumvarp um að leggja 1,25 prósenta skatt á Breta og bresk fyrirtæki. Þannig á að safna um 36 milljörðum punda (rúmum sex billjónum króna) á þremur árum sem verja á til heilbrigðis -og félagsmála.

Langþreyttir foreldrar leikskólabarna í Reykjavík
Til þeirra sem málið varðar. Ég er foreldri tveggja barna á leikskólaaldri. Yngri sonur minn er að hefja skólagöngu sína í leikskóla hjá Reykjavíkurborg núna á föstudaginn, hann er rúmlega tveggja ára. Eldri sonur minn er að hefja síðasta vetur sinn á leikskólanum.

Munu þurfa sýna fram á bólusetningu eða neikvætt próf við komuna á Old Trafford
Frá og með leiknum gegn Newcastle United sem fram fer þann 11. september mun Manchester United krefjast þess að þau sem ætla að sjá leiki liðsins á Old Trafford sýni fram á annað hvort bólusetningu eða 48 klukkustunda gamalt PCR-próf.

Á von á minnisblaði: Ráðherra segir forsendur til að ráðast í tilslakanir
„Þetta gengur vel, þetta lítur bara mjög vel út; þróun faraldursins... og þessi bylgja er á öruggri niðurleið,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi nú í þessu.

25 greindust innanlands
Alls greindust 25 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 68 prósent. Átta voru utan sóttkvíar, eða um 32 prósent.

Hefur farið í 100 sýnatökur: „Get haldið þessu áfram fram í rauðan dauðann“
Það væri heiður að vera sýnatökukóngur Íslands, segir leikarinn Jóhannes Haukur sem fór í sína eitt hundruðustu skimun á föstudag. Hann segist vanur sýnatökupinnanum og gæti haldið þessu áfram fram í rauðan dauðann.