Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

„Þetta sem gerðist á Landakoti er auðvitað grafalvarlegt“
Heilbrigðisráðherra segir áhrif hópsmits á Landakoti grafalvarleg og treystir því að spítalinn fari í saumana á allri atburðarásinni. Næstum hundrað og tuttugu manns hafa smitast í hópsýkingunni þar.

Sér fram á hertar aðgerðir og boðar skýrar reglur
Svandís Svavarsdóttir heilbirgðisráðherra segist hafa verið í sambandi við sóttvarnalækni bæði í gær og í dag vegna fjölgunar smita í samfélaginu.

Allt að 3,5 milljarðar í tekjufallsstyrki til ferðaþjónustunnar
Áætlað er að tekjufallsstyrkir vegna kórónuveirufaraldursins til minni ferðaþjónustufyrirtækja, leiðsögumanna og fleiri geti numið um 3,5 milljörðum króna.

Bjarni segir að útgjöld til velferðarmála hafi aukist en ekki verið skert
Fjármálaráðherra segir að útgjöld til velferðarmála hafi snar aukist hér á landi og að nú fari um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda til almannatrygginga, sem sé tvöföldun frá árinu 2013.

Leyfa erlendum sérfræðingum að dvelja á Íslandi í hálft ár
Ráðherrar hafa kynnt aðgerðir til að gera fólki utan EES kleift að vinna fjarvinnu á Íslandi í allt að sex mánuði. Nýsköpunarráðherra vonar að þetta muni örva nýsköpun á Íslandi.

Bein útsending: Katrín og Guterres fjalla um faraldurinn
Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, eru meðal þeirra sem taka þátt opnum fundi um kórónuveirufaraldurinn.

Hefur áhyggjur af nýjum þungunarrofslögum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af nýjum þungunarrofslögum í Póllandi, sem takmarka mjög rétt kvenna þar í landi til þungunarrofs.

Telur allt í eðilegu ferli varðandi sýkinguna á Landakoti
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir forgangsmál að ná utan um hópsýkinguna sem kom upp á Landakoti.

Kristján Þór heitir stuðningi við bændur í riðubaráttunni
Ríkið mun greiða bændum, sem skera þurfa niður fé sitt vegna riðuveiki í Skagafirði, bætur og kostnað vegna riðunnar.

Ætlar að færa eftirlit með pósti á Sauðárkrók
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hefur í hyggju að Byggðastofnun taki yfir póstmál, hlutverk sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur haft með að gera hingað til.

Telur ríkisstjórnina ætla að keyra öldrunarheimilin í þrot
Forstjóri Grundarheimilanna, dvalar- og hjúkrunarheimila fyrir aldraða, segir ríkisstjórnina viljandi svelta öldrunarheimilin með það að markmiði að rekstrinum verði skilað til ríkisins. Ríkisstjórnin geri allt hvað hún geti til að keyra öldrunarheimilin í þrot.

Kynþáttafordómar séu ekki ríkjandi innan lögreglunnar en fánamálinu verði fylgt eftir
Dómsmálaráðherra segir að haturstákn séu ekki liðin innan lögreglunnar. Fánamálinu svokallaða verði fylgt eftir með aukinni fræðslu eða menntun lögreglumanna.

Fjármálaráðherra vill skoða breytingar á fjármálum sveitarfélaga
Fjármálaráðherra sagði í umræðum um fjárhagsstöðu sveitarfélaganna á Alþingi í morgun að hlutur þeirra af útgjöldum hins opinbera væri mun lægra en á hinum Norðurlöndunum. Skoða þyrfti stöðu þeirra nú í því ljósi og hvort breyta ætti tekjustofnum þeirra.

„Lögreglumanna að vera meðvitaðir um að gefa ekki nein slík merki frá sér“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það alveg vera skýrt að haturstákn og sjónarmið verði ekki liðin innan lögreglunnar, ekki nú né framvegis.

Gefur fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar falleinkunn
BSRB segir nær öll þau störf sem skapa eigi með fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vera hefðbundin karlastörf. Því sé fyrirsjáanlegt að átakið muni auka á kynjamisrétti.

Sjáðu viðbrögð forsætisráðherra við skjálftanum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í miðju viðtali við blaðamann bandaríska blaðsins Washington Post þegar skjálftinn reið yfir á öðrum tímanum í dag.

Stjörnvöld sökuð um að hafa varpað allri ábyrgð á þríeykið
Þingmaður Miðflokksins sakar ríkisstjórnina um að hafa varpað allri ákvarðanatöku í faraldrinum yfir á þríeykið í stað þess að meta ástandið heildstætt.

Segir heilbrigðisráðherra hafa vitað af málinu síðan í febrúar
Formaður MS-félagsins segir mannréttindi konu með MS fótum troðin þegar henni var synjað um heimaþjónustu og húsnæði. Heilbrigðisráðherra hafi lengi vitað af málinu og ekkert gert. Nú sé verið að skoða lagalega stöðu konunnar.

Heilbrigðisráðherra staðfestir í meginatriðum tillögur sóttvarnalæknis
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi þriðjudaginn 20. október.

MS- félagið skorar á stjórnvöld að leysa mál Margrétar
MS-félag Íslands segir að yfirvöldum hafi margítrekað verið bent á aðstæður Margrétar Sigríðar Guðmundsdóttur en hún hefur verið heimilislaus síðan í janúar. Félagið harmar stöðu hennar og telur nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða.

Telur aðgerðir ríkis og sveitarfélaga ekki vinna saman
Aðalhagfræðingur Kviku banka segir fráleitt að sveitarfélög þurfi að skera niður fjárfestingu vegna meðan ríkið auki í. Hún telur mikilvægt að ríkið styðji betur við sveitarfélögin í landinu.

Innan við helmingur hefur notað ferðagjöfina
Alls var gert ráð fyrir að aðgerðin myndi kosta ríkissjóð einn og hálfan milljarð króna.

Kópavogsbær ætlar í samvinnu við ríki að reyna að útvega konunni þjónustu
Kópavogsbær hefur sent frá sér tilkynningu vegna málefna konu með MS- taugahrörnunarsjúkdóms sem var synjað um áframhald á heimaþjónustu hjá bænum. Þar kemur fram að bærinn telji óásættanlegt að fólk lendi á gráu svæði milli ríkis og sveitarfélaga. Bærinn ætli eftir bestu getu að reyna að verða viðkomandi úti um þá þjónustu sem hún á rétt á í samvinnu við ríkið.

Svandís tekur aftur til starfa í dag
Svandís fór í leyfi fyrir rétt rúmri viku.

Mest allt íþróttastarf barna leggst af með nýjum takmörkunum
Allt íþrótta- og tómstundastarf sem krefst snertingar og skólasund barna verður óheimilt á höfuðborgarsvæðinu þegar nýjar sóttvarnaráðstafanir taka gildi á þriðjudag. Á landsbyggðinni verða takmarkanir færðar nær þeim sem hafa gilt á höfuðborgarsvæðinu í á aðra viku. Reglur um skólastarf verða óbreyttar.

Bein útsending: Kynna aðgerðir til stuðnings listum og menningu
Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra boða til blaðamannafundar um stuðningsaðgerðir við listir og menningu í Kaldalónssal í Hörpu í dag klukkan 15.

Tveggja metra regla um allt land á ný
Tveggja metra reglan verður innleidd á öllu landinu á ný þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um kórónuveiruaðgerðir tekur gildi í næstu viku.

Boðar áframhaldandi hertar aðgerðir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráhðerra vonar að hækkandi hlutfall fólks sem greinist hér á landi í sóttkví séu merki um að hertar aðgerðir séu að skila árangri. Um leið berist fréttir af andláti vegna Covid-19 sem minni á mikilvægi aðgerða.

Ætla að bæta leiðsögumönnum og sviðslistafólki tapaðar tekjur
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að samþykkja að leggja fyrir Alþingi frumvarp um svokallaða tekjufallsstyrki.

Ráðherra vill auka fjármagn í Bjargráðasjóð
Ráðherra hefur lagt til að Bjargráðasjóði verði tryggt aukið fjármagn á þessu ári vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna síðasta vetur.