
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Ekki þannig að myndavélar verði settar í hvert horn og hver sem er hleraður
Umræðan um frumvarp um rannsóknarheimildir lögreglu ber keim af áróðri að sögn dómsmálaráðherra. Frumvarpið hefur sætt nokkurri gagnrýni en ráðherrann segir ekki nógu skýr ákvæði um heimildir lögreglu til staðar. Það standi alls ekki til að setja myndavélar í hvert horn og hlera fólk sem ekkert hafi af sér gert heldur þurfi einfaldlega að tryggja öryggi borgara.

„Þetta varð alltaf verra og verra“
Talið er að um fimm þúsund börn hafi dvalið á um þrjátíu vistheimilum á vegum hins opinbera frá síðustu öld. Þá er ótalið öll þau börn sem dvöldu á sveitabæjum. Nú hafa sanngirnisbætur verið greiddar eða eru á leiðinni fyrir dvöl á næstum öðru hverju heimili. Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir að algjört eftirlits-og stefnuleysi hafi ríkt í málaflokknum á sínum tíma. Það sé því miður raunin að nokkru leyti ennþá.

Segir Lilju harma skipun þjóðminjavarðar en ekki geta dregið hana til baka
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður Íslandsdeildar International Council of Museums (ICOM), segir Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra hafa harmað skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar á Safnaþingi á Austfjörðum í síðustu viku.

„Mannkynsins vegna, þarf Úkraína að sigra“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra gagnrýndi innrás Rússa í Úkraínu harðlega í ræðu hennar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir. Hún minnti á hið fornkveðna; að með lögum skal land byggja, en eigi með ólögum eyða.

Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert
Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum.

Stóralvarlegt ef mikið vopnabúr fylgi öfgafullum skoðunum
Það er eitt að hafa skoðanir en það er stóralvarlegt og getur leitt af sér mikinn skaða ef því fylgir að búið sé að safna miklu vopnabúri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, aðspurð um hvort að hún hafi áhyggjur af því að öfgafullar skoðanir og viðhorf hafi hreiðrað um sig hér á landi.

Sigurður Ingi braut engar siðareglur að sögn forsætisnefndar
Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi engar siðareglur brotið þegar hann lét umdeild ummæli falla um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.

Allt að tveggja ára fangelsi fyrir ölvunarakstur á rafmagnshlaupahjóli
Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á umferðarlögum er varða reiðhjól. Samkvæmt frumvarpinu bætast rafmagnshlaupahjól við lögin. Allt að tveggja ára fangelsi mun liggja við akstri hjólanna undir áhrifum áfengis.

Frumvarp Jóns ekki tengt meintri hryðjuverkatilraun
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að til skoðunar sé að auka viðbúnað hjá lögreglu. Bregðast þurfi við aukinni skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi.

„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“
Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan.

Fornleifafræðingar funda með ráðherra vegna skipunar þjóðminjavarðar
Stjórn Félags fornleifafræðinga fundar með safnamálaráðherra næstkomandi mánudag um ráðningu þjóðminjavarðar. Formaður félagsins segir réttast að draga ráðninguna til baka og byrja upp á nýtt. Staða Þjóðminjavarðar sé ein sú bitastæðasta innan safnastarfs á Íslandi.

Lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinist að fjölmiðlum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinast að frjálsum fjölmiðlum sem fjalla um viðkvæm samfélagsmál. Hún minnir á að hún hafi látið verkin tala þegar kemur að lagasetningu um vernd heimildarmanna fjölmiðla.

„Þurfum að fara að stíga fast til jarðar“
Fjórir voru handteknir í gær vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og viðamikil vopnalagabrot. Sérsveit tók þátt í aðgerðum, sem eru taldar hafa orðið til þess að afstýra hættuástandi á staðnum. Dómsmálaráðherra segir komið að því að stíga fast til jarðar í baráttunni við glæpahópa. Lögregla reiknar með að boða til blaðamannafundar í dag vegna aðgerðanna í gær.

Spurði hvort hann ætti að lána ríkisstjórninni hækjurnar eftir að þær duttu með látum
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, nýtti tækifærið er hækjur hans duttu í gólfið með látum í miðri ræðu hans á Alþingi, hvort hann ætti ekki að lána ríkisstjórninni hækjurnar til að halda uppi almannatryggingakerfinu.

Verndari virkrar samkeppni
Verðbólgan getur ýtt undir frekari samþjöppun og skaðað samkeppnismarkaðinn til lengri tíma litið. Þess vegna er mikilvægt að bæta ekki á vandann með samkeppnishindrunum og öðrum aðgerðum sem grafa undan samkeppni. Þessi ríkisstjórn hefur hins vegar sýnt að hún er enginn verndari virkrar samkeppni. Miklu heldur á fákeppnin þar skjól.

Hafa ekkert heyrt frá Lilju
Félag fornleifafræðinga hefur hvorki heyrt frá Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra né umboðsmanni Alþingis vegna kvörtun þeirra á skipun Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar.

Nancy Pelosi og Katrín Jakobsdóttir funduðu á Capitol Hill
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings funduðu í dag í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna.

Formaður BÍ segist ekkert botna í því hvað Bjarna gangi til
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), segist ekki vita hvað Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, gangi til með að vilja blanda sér mál sem snýr að rannsókn lögreglu á fjórum blaðamönnum. Afstaða hans standist enga skoðun.

„Ég skal axla ábyrgð á þessu máli“
Þingmaður í stjórnarandstöðunni ætlar að taka ábyrgð í máli sem enginn annar virðist vilja taka ábyrgð á.

Áhugaleysið uppmálað
Nú er á fimmta ár frá því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur settist að völdum – svo við getum séð núverandi stöðu í loftslagsmálum sem afrakstur þeirrar stefnu sem stjórnin hefur staðið fyrir. Staðan er vægast sagt ekki nógu góð.

Arnar Már skipaður forstjóri Byggðastofnunar
Innviðaráðherra skipaði Arnar Má Elíasson forstjóra Byggðastofnunar til fimm ára. Arnar Már hefur verið starfandi forstjóri stofnunarinnar frá því í febrúar og staðgengill forstjóra frá árinu 2016.

Útvarpi Sögu hafnað um rekstrarstuðning
SagaNet-Útvarp Saga ehf. sem rekur bæði útvarpsstöðina Útvarp Saga og samnefndan vefmiðil var hafnað um rekstrarstuðning frá fjölmiðlanefnd. Félagið var eitt þriggja sem var hafnað um stuðning.

Ingvar kemur í stað Teits
Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann kemur í stað Teits Björn Einarssonar sem er nýorðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Segir mælanlegan árangur af loftslagsaðgerðum engan: „Þyngra en tárum taki“
Þrátt fyrir metnaðarfull áform er mælanlegur árangur af loftslagsaðgerðum stjórnvalda enn sem komið er enginn, að sögn veðurfræðings. Það er staðreynd sem hann segir að við verðum að horfast blákalt í augu við - á degi íslenskrar náttúru.

Forsætisráðherra segir réttlætismál að greitt sé útsvar af fjármagnstekjum
Forsætisráðherra segir réttlætismál að þeir sem einungis hafi fjármagnstekjur greiði útsvar til sveitarfélaga. Á næsta ári verði helsta verkefnið að draga úr verðbólgu og styrkja um leið og verja almannaþjónustuna, almannatryggingakerfið og húsnæðismarkaðinn.

Skoða betur í hverju gagnrýni fyrrverandi starfsmanna felst
Menningar- og viðskiptaráðherra segir að ráðuneyti sitt kanni nú í hverju óánægja nokkurra fyrrverandi starfsmanna Listasafns Íslands með stjórnunarstíl Hörpu Þórsdóttur, sem ráðherrann réð án auglýsingar í stöðu þjóðminjavarðar, felst.

Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar
Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Teitur starfaði áður sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Fjölflokka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjarna Benediktssonar og xD
Við erum með einn stjórnmálaflokk á Íslandi sem stýrir landinu, tvo sem láta eins og þeir séu í stjórnarandstöðu miðað við málflutninginn í stóru málaflokkunum. Ráðherrar Vinstri grænna og Framsóknar tala um fjármagnstekjuskatt, álag á stórútgerð og hvalrekaskatta.

„Gunnar Smári getur líklega lagt niður flokkinn sinn með þessu áframhaldi“
Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir of langt gengið í aukinni skattlagningu með nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Svo langt gengið raunar, að óhætt væri fyrir sósíalista að segja þetta gott, enda erindið þrotið. Gunnar Smári Egilsson gefur lítið fyrir þetta og segir nú lag að hækka bankaskatt og sækja gróðann sem þar hafi myndast.

Segir ekkert samkomulag hafa náðst um breyttar áherslur í heilbrigðismálum
Ekkert samkomulag hefur náðst milli stjórnarflokkana um að breyta áherslum í heilbrigðismálum, að sögn Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra og fyrrverandi heilbrigðisráðherra.