Gæludýr

Gerir undanþágu svo flóttafólk geti tekið gæludýr sín með til Íslands
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að veita undanþágu frá gildandi banni við innflutningi gæludýra frá Úkraínu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Safnar sögum um ketti sem finnast langt að heiman: „Þetta getur ekki verið tilviljun“
Nýjum Facebook hóp er ætlað að kortleggja sögur af köttum sem týnast og finnast langt frá heimili sínu en nokkuð hefur borið á því undanfarið. Stofnandi hópsins telur að í einhverjum tilvikum séu óprúttnir aðilar að fara með kettina í annað bæjarfélag. Hún segir það óskiljanlega mannvonsku að fara illa með ketti og því sé mikilvægt að ná þeim sem stunda slíkt.

Betri borg fyrir dýr
Líkast til hefur áhugi manna á að eiga gæludýr sjaldan verið meiri en á síðustu misserum á meðan COVID hefur geisað með tilheyrandi einangrun og lokunum. Við vitum að gæludýr, sérstaklega hundar og kettir, hafa mannbætandi áhrif á flesta, vinna gegn einmanaleika og andlegum vandamálum.

Furðar sig á mikilli andstöðu við gæludýr á veitingastöðum
Um helmingur svarenda í nýrri könnun er andvígur því að fólk megi taka með sér hunda eða ketti á veitingastaði. Eigandi Kattakaffihússins í miðbæ Reykjavíkur furðar sig á andstöðu landsmanna við gæludýr á kaffihúsum og segir Íslendinga alveg sér á báti miðað við nágrannalöndin.

Niðurgangsvaldandi sníkjudýr greindist í íslenskum ketti í fyrsta sinn
Sníkjudýr sem getur valdið krónískum niðurgangi í köttum greindist nýverið í fyrsta sinn í ketti á Íslandi. Ekki er talið að sníkjudýrið geti valdið sýkingum í öðrum dýrum en köttum og er það almennt ekki talið hættulegt fólki.

Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti
Mikill kattaskortur virðist vera hér á landi og stefnir ekki í að það muni draga úr eftirspurninni á næstunni. Dæmi eru um að venjulegir kettlingar seljist fyrir tugi þúsunda og er jafnvel mikil eftirspurn eftir eldri köttum. Aðeins einn köttur er nú í heimilisleit hjá Kattholti.

Hyggjast lóga 2.000 hömstrum vegna Covid-smits
Yfirvöld í Hong Kong hyggjast aflífa um það bil 2.000 hamstra eftir að SARS-CoV-2 fannst á ellefu dýrum í gæludýraverslun í borginni. Sýnin voru tekin af 178 dýrum verslunarinnar eftir að starfsmaður greindist með Covid-19.

Matvælastofnun rannsakar dularfullan hósta meðal hunda á höfuðborgarsvæðinu
Matvælastofnun hefur sett af stað rannsókn í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans á Keldum til að reyna að komast til botns í því hvað veldur hósta hjá hundum sem hefur gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu undanfarið.

Páfinn segir það sjálfselskt að velja gæludýr fram yfir börn
Frans páfi segir sjálfselskt þegar fólk velur að eignast gæludýr í stað barna. Fólki kynni að þykja það fyndið en svona væri raunveruleikinn, sagði hann þegar hann ávarpaði viðstadda í Páfagarði.

Eigandi Dimmu er í áfalli: Lausir hundar drápu kött á hrottalegan hátt
Agnes Gróa Jónsdóttir, eigandi kattar sem tveir hundar drápu með hrottalegum hætti á Þorláksmessu, segir köttinn Dimmu hafa verið sér allt og að hún ætli að kæra málið til lögreglu.

Páll Óskar syrgir Gutta: „Takk fyrir að velja mig sem lífsförunaut“
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson kvaddi köttinn Gutta á föstudag eftir alls átján ára samveru. Gutti var orðinn nítján ára gamall þegar nýru hans byrjuðu að gefa sig.

Óboðlegt að dýr fái ekki hjálp
Formaður Dýralæknafélags Íslands segir það ekki boðlegt að dýraeigendur sem reyni að ná í lækni vegna veiks dýrs fái ekki hjálp. Fjármagn skorti til þess að halda úti aukinni neyðarþjónustu dýralækna.

„Það er skelfilegt að vera með slasað dýr í höndunum og geta ekkert gert“
Kona sem reyndi ítrekað að ná í neyðarnúmer dýralækna um síðustu helgi þegar hundur hennar slasaðist alvarlega kallar eftir svörum frá Matvælastofnun. Hún segir óásættanlegt að fólk þurfi að horfa upp á dýr sitt þjást. Varaleið þurfi að standa til boða ef neyðarvakt svarar ekki.

Reyndu ítrekað að ná í neyðarvakt dýralækna án árangurs
Dæmi komu upp um síðustu helgi þar sem ekki náðist í neyðarnúmer dýralækna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að málið sé til skoðunar en segir gríðarlega mikið álag á vöktunum mögulega skýringu.

Hundur sem rúntar um á rafhlaupahjóli
Hundurinn Ronja veit fátt skemmtilegra en að ferðast um á rafhlaupahjóli og verður fúl ef eigandinn tekur hana ekki með á rúntinn.

Bjóða útiketti velkomna á Blönduósi: „Ég botna ekkert í félögum mínum á Akureyri“
„Sum sveitarfélög halda kattaskrá. Ekki öll birta hana á netinu. En það gerir Blönduós og nú langar mig að heimsækja allar kisurnar á Blönduósi. Myndi byrja hjá Snöru Snar.“

Lausaganga katta bönnuð á Akureyri
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að banna lausagöngu katta í bænum frá 1. janúar 2025. Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu þess efnis sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum eftir langar umræður. Fjórir voru á móti.

Dýralæknir MAST segir Gústa Jr. sýna skýr merki um streitu og telur brotið á honum
Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST), segist telja þörf á því staðreyndir í máli refsins Gústa Jr. komi fram, en talsvert hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum að undanförnu. Hún segir það skýrt að verið sé að brjóta gegn velferð refsins.

Opna netspjall fyrir þá sem vilja flytja inn hund eða kött
Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda einstaklingum undirbúning innflutnings hunda og katta. Frá þessu er greint á vef MAST.

Samdi lag um átökin við MAST: Tvísaga um hvort hann sé raunverulegur eigandi
Héraðsdómur Reykjavíkur veitti lögreglu þann 12. október heimild til húsleitar á heimili Ágústs Beinteins Árnasonar. Vísir greindi frá því í síðustu viku að lögregla og fulltrúar Matvælastofnunar (MAST) hafi gripið í tómt þegar til stóð að sækja ref sem Ágúst hefur haldið sem gæludýr.

Refir falli undir skilgreiningu um gæludýr
Lögmaður ungs manns sem á ref telur afar skrýtið hvernig Matvælastofnun hefur beitt sér í því að ná refnum af honum. Hann segir að ekki sé hægt að útiloka að refir geti skilgreinst sem gæludýr ef þeir alast upp á heimili manna.

Aðstoðarvarðstjóri á eftirlaunum átti ref og skilur ekkert í Matvælastofnun
„Ég skil ekkert í Matvælastofnun að hafa ruðst inn til greyið stráksins til að reyna taka af honum refinn,“ segir Hlöðver Magnússon, fyrrverandi aðstoðarvarðstjóri hjá lögreglunni. Og kona hans, Ástríður Sveinsdóttir, eða Ásta, tekur undir með honum: „Já, mér finnst það bara dónaskapur,“ segir hún. Hjónin áttu sjálf ref árið 1993 og voru þekkt fyrir að ganga um með hann í bandi.

Ruddust inn með leitarheimild til að taka refinn en gripu í tómt
Ágústi Beinteini Árnasyni brá heldur betur í brún þegar tveir einkennisklæddir lögreglumenn mættu að heimili hans ásamt fulltrúa Matvælastofnunar (MAST) í síðustu viku með húsleitarheimild. Markmiðið var að finna og taka af Ágústi, sem er kallaður Gústi B, ref sem hann hefur haldið síðasta eina og hálfa mánuðinn, Gústa Jr. Þeir gripu þó í tómt.

Mótmæla aflífun dýra hverra eigendur hafa greinst með Covid-19
Yfir 150 þúsund manns í Víetnam hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem kallað er eftir því að þarlend yfirvöld hætti að drepa dýr af ótta við smithættu vegna Covid-19. Undirskriftasöfnuninni var hrundið af stað eftir að tólf gæludýr pars sem greindist með sjúkdóminn voru drepin á meðan þau dvöldu á spítala.

Of seint fyrir Gústa að aðlagast náttúrunni og sambúðin versni þegar hann þroskast
„Gústi refur hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu og þá sérstaklega „eigandi“ hans Tiktok stjarnan Ágúst Beinteinn Árnason. Refur þessi er haldinn að því er virðist í miðborg Reykjavíkur þar sem hann er í tjóðri eiganda síns honum til skemmtunar. Það þarf að sjálfsögðu ekki að fjölyrða um að hér er um lögbrot að ræða, enda refir villt dýr sem ekki má halda án sérstaks leyfis.“

Reyndu að taka refinn og koma honum í Húsdýragarðinn
Refurinn Gústi Jr. hefur vakið talsverða lukku á samfélagsmiðlinum TikTok en það er Ágúst Beinteinn Árnason, sem á hann. Á miðlinum hefur hann birt fjölda myndbanda af sér og refnum á flakki um bæinn. Matvælastofnun er ekki eins hrifin af uppátækinu, hefur reynt að taka refinn af Ágústi og segir málið vera í ferli hjá héraðsdýralækni.

Vilja að sett verði sérstök lög um þjófnað á gæludýrum
Stjórnvöld á Englandi skoða nú að setja sérstök lög um þjófnað á gæludýrum eftir aukinn fjölda þjófnaðarmála í kórónuveirufaraldrinum. Eins og stendur er farið með þjófnað á gæludýrum eins og þjófnað á hverri annarri eign.

Flykkjast í Skeifuna til að hitta einn frægasta kött landsins
Einn frægasti köttur landsins er fastagestur í Skeifunni og státar af þúsundum aðdáenda á Facebook. Borið hefur á því að fólk geri sér sérstaka ferð í Skeifuna til að berja stjörnuna augum.

Kötturinn Birta er einn öflugasti plokkari landsins
Kötturinn Birta er einn öflugasti plokkari landsins. Hún fyllir um tvo ruslapoka í hverjum mánuði og hefur hlotið styrk frá umhverfissamtökunum Bláa hernum.

Telur hóp drengja hafa kastað ketti fyrir bíl
Svo virðist sem hópur unglingspilta hafi tekið sig til og kastað ketti fyrir bíl á Nýbýlavegi seint í gærkvöldi. Kristinn Ólafur Smárason lýsir atvikinu í Facebook-hópnum Íbúar Digranesi og tilkynnti það til lögreglu.