
Fjölnir

Tryggði Snæfelli fyrsta sigurinn með ótrúlegum flautuþristi
Snæfell vann sinn fyrsta sigur í Subway deild kvenna á tímabilinu þegar Fjölnir kom í heimsókn í Hólminn í gær. Eva Rupnik skoraði sigurkörfu Snæfellinga í þann mund sem leiktíminn rann út.

Fyrsti sigur Snæfellinga kom í botnslagnum
Snæfell vann nauman þriggja stiga sigur er liðið tók á móti Fjölni í botnslag Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 85-82. Var þetta fyrsti sigur liðsins á tímabilinu.

Ógeðslegt fyrirbæri skilaði liðinu áfram í úrslit í Kviss
Seinni undanúrslitaviðureignin í Kviss fór fram á laugardaginn á Stöð 2. Þar mættust ÍR-ingar og Fjölnir en ÍA hafði áður tryggt sér sæti í úrslitunum.

Gott gengi Þórs heldur áfram
Þór Akureyri heldur áfram að gera gott mót í Subway-deild kvenna í körfubolta. Nýliðarnir unnu Fjölni með tíu stiga mun í dag, lokatölur 85-75.

„Ég mun væla eins og stunginn grís yfir dómaratríóinu“
Hallgrímur Brynjólfsson, þjálfari Fjölnis, var vægast sagt heitt í hamsi eftir fimm stiga tap gegn Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld, 76-81.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Grindavík 76-81 | Grindvískur karakter
Grindavík vann fimm stiga sigur á Fjölni í 10. umferð Subway-deild kvenna í kvöld, 76-81. Grindavík hrinti frá sér ítrekuðum áhlaupum Fjölnis, leiddi mest allan leikinn og sigurinn sanngjarn.

Haukar komust aftur á sigurbraut
Eftir fjögur töp í röð eru Haukar aftur komnir á sigurbraut í Subway-deild kvenna í körfubolta eftir nauman fimm stiga útisigur gegn Fjölni í kvöld, 77-82.

Snæfell leiddar til slátrunar í Ljónagryfjunni á meðan Fjölnir vann í Smáranum
Njarðvík vann stórsigur með stóru S-i á Snæfelli í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 108-46. Þá vann Fjölnir tólf stiga sigur á Breiðabliki í Smáranum, lokatölur 86-98.

„Ég þurfti að láta þær heyra það“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var að vonum sáttur með 15 stiga endurkomusigur sinna kvenna á öflugu liði Fjölnis í Subway-deild kvenna í kvöld, 61-76.

Umfjöllun og viðtal: Fjölnir - Njarðvík 61-75 | Gestirnir kláruðu dæmið í fjórða leikhluta
Njarðvík vann góðan sigur á Fjölni þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í Grafarvogi í kvöld. Leikurinn var jafn lengst af en Njarðvík keyrði yfir heimakonur í fjórða leikhluta.

Allt vitlaust þegar liðið komst áfram í undanúrslit á lokaspurningunni
Það var heldur betur háspenna lífshætta í Kviss á laugardagskvöldið þegar Fjölnir og Dalvík/Reynir mættust í 8-liða úrslitum.

KA, HK, Fjölnir og Fram áfram
KA, HK, Fjölnir og Fram eru komin í 16-liða úrslit Powerade-bikarsins í handbolta.

Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
16-liða úrslitum Poweradebikars kvenna lauk í kvöld með nokkuð óvæntum úrslitum. Íslandsmeistarar Vals sátu hjá þessa umferð og fara beint í þá næstu.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Snæfell 83-71 | Annar sigur Fjölnis
Fjölnir vann sinn annan sigur í Subway deild kvenna í kvöld er liðið lagði Snæfell.

Sú markahæsta riftir samningi sínum við Fjölni
Alda Ólafsdóttir var markahæst allra á Íslandi á ný afstaðinni leiktíð ef horft er í meistaraflokks knattspyrnu á Íslandi. Hún hefur nú rift samningi sínum við Fjölni og gæti farið í nýtt lið á næstu dögum.

Alda skoraði langmest allra á Íslandi sumarið 2023
Knattspyrnukonan Alda Ólafsdóttir var án nokkurs vafa markadrottning sumarsins 2023 í íslenskum fótbolta.

Dofri leggur skóna á hilluna
Dofri Snorrason hefur ákveðið að kalla þetta gott og hefur lagt skóna á hilluna eftir þrettán ár í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Hann hóf ferilinn með uppeldisfélaginu KR en hefur einnig spilað fyrir Víking, Selfoss og Fjölni á ferli sínum.

Stjörnukonur sóttu sinn fyrsta sigur
Stjarnan vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta í dag.

Oft blóðugir bardagar milli systkinanna
María Dögg Nelson, Þróttari og systir bardagakappans Gunnars Nelson, segir mega þakka slagsmálum þeirra systkinanna sem börn að Gunnar hefði náð svo langt í sinni grein. Þetta kom fram í síðasta þætti af Kviss þar sem Fjölnir og Þróttur mættust í 16 liða úrslitunum.

Leik lokið: Fjölnir - Þór Ak. 70-62 | Fjölnir lagði nýliðana
Raquel Laneiro átti stórleik í liði Fjölnis er liðið vann sinn fyrsta sigur í Subway deild kvenna í kvöld gegn nýliðum Þórs.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Fjölnir 81-71 | Iðnaðarsigur í Grindavík
Grindavíkurkonur unnu góðan tíu stiga sigur er liðið tók á móti Fjölni í fyrstu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 81-71. Sigur Grindavíkurkvenna var aldrei í mikilli hættu en þær þurftu þó að hafa töluvert fyrir honum.

Úlfur Arnar: Veit hvað ég þarf að laga fyrir næsta tímabil
Fjölnir er úr leik í úrslitakeppni Lengjudeildar karla eftir jafntefli gegn Vestra sem vann einvígið 2-1 samanlagt. Eftir að hafa byrjað leikinn og lent marki undir í fyrri hálfleik tókst Fjölnismönnum að jafna í byrjun seinni hálfleiks og voru orðnir manni fleiri aðeins fimmtán mínútum síðar.

Umfjöllun: Laugardalsvöllur bíður Vestra
Vestri er á leiðinni í umspil á Laugardalsvelli um sæti í efstu deild að ári eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni í dag. Liðið mætir þar Aftureldingu sem lagði Leikni örugglega í dag, 3-0.

Fjölnir galopnaði toppbaráttuna
Fjölnir opnaði toppbaráttu Lengjudeildar karla í knattspyrnu upp á gátt með 4-2 sigri á toppliði Aftureldingar í kvöld. Þróttur Reykjavík lyfti sér upp úr fallsæti með 5-0 sigri á Grindavík.

Fjölnir pakkaði Grindavík saman
Fjölnir vann 5-1 sigur á Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá gerðu Ægir og Grótta 2-2 jafntefli en heimamenn í Ægi voru manni færri allan síðari hálfleikinn.

Mosfellingar enn taplausir á toppnum | Þróttur stal stigi af Fjölni
Afturelding trónir enn taplaus á toppi Lengjudeildar karla eftir góðan 3-1 útisigur gegn Þór frá Akureyri í dag. Á sama tíma vann Fjölnir mikilvægan 2-1 útisigur gegn Þrótti Reykjavík.

Fjölnismenn halda í við toppliðið en Leiknir enn við botninn
Fjölnir vann góðan 4-1 sigur er liðið tók á móti Leikni í 10. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

Mosfellingar héldu út og styrktu stöðu sína á toppnum
Afturelding er nú með fimm stiga forskot á toppi Lengjudeildar karla eftir nauman 4-3 sigur gegn Fjölni í toppslag deildarinnar í kvöld.

Tvö jafntefli í Lengjudeild karla en markasúpa hjá konunum
Tveir leikir fóru fram í áttundu umferð Lengjudeildar karla og einn í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu. Fjölnir og Vestri skildu jöfn á Extra vellinum í Grafarvogi, 1-1. Njarðvík og Þór skildu einnig jöfn á Rafholtsvellinum í Njarðvík, 2-2. Kvennamegin fóru Fylkiskonur í heimsókn í Fjarðarbyggðarhöllina og unnu 4-2 sigur á FHL.

Fjölnir á toppinn eftir sigur í Grindavík | Auðvelt hjá Fylki í Árbænum
Grindvíkingar töpuðu þremur dýrmætum stigum í toppbaráttu Lengjudeildarinnar í kvöld þegar Fjölnismenn komu í heimsókn á Stakkavíkurvöllinn. Með sigri hefði Grindavík jafnað Fjölni að stigum í 2. sæti.